. - Hausmynd

.

misskilningur á misskilning ofan

Nú á Viktorían mín ekki nema 5 vikur eftir af meðgöngunni. Eins og venjulega lítur hún rosalega vel út þessi elska.

Hún hringir í mig og spyr hvort ég sé til í að koma með henni og skoða fæðingardeildina. Biggi var á sjónum og kemst ekki í land í tæka tíð. Það var sjálfsagt mál að fara með henni og hafði ég ekki síður gaman af því að skoða deildina....án þess að fara sjálf í fæðingu...hef aldrei gert það.

Ég segi við yngri dömurnar mínar að ég þurfi að skreppa og pabbi komi heim innan tíðar. Dísin mín spyr mig hvert ég sé að fara og ég segi henni einfaldlega að ég sé að fara með Viktoríu að skoða fæðingardeildina á spítalanum. Ég kvaddi dömurnar og fór.  

Við Viktoría mælum okkur mót. Ég var varla komin út úr húsi þegar mamma hringir í farsímann og ég heyri að henni er mikið um að tala við mig. Spyr hvort ég geti talað og hvort ekki allt sé í lagi. Ég hváði við og sagði að allt væri í stakasta lagi og vissi ekki hvar hún fengi aðrar upplýsingar. Hún vildi ekki svara því og spurði jafnframt hvort Viktoría sé ekki í lagi og hvar hún er.

Ég var ekki alveg að skilja þennan asa og fékk hana til að anda með nefinu og segja mér hvað henni lægi á hjarta.

Þá hafði hún móðir mín hringt heim og fengið þær upplýsingar hjá stelpunum heima að ég væri inn á fæðingardeild með Viktoríu!!!!!!

Svona getur misskilningurinn orðið.

Inn á fæðingardeildinni hitti ég gamla kunningjakonu sem er alltaf jafn almennileg þegar við hittumst. Hún varð stóreyg þegar hún sá mig með hópnum sem var að skoða fæðingardeildina og spurði hvort ég væri að koma aftur!?....Nei..ég benti á dóttur mína og sagði að ég væri bara með henni, þá stækkuðu augu hennar enn frekar og ég heyrði að hún fékk smá sjokk þegar hún sagði: "ha! ertu að verða AMMA?"

Ég hló við og sagðist ekki svo vera...heldur væri hún Viktoría mín bara að verða mamma Joyful

Ég veit ekki hvar fólk heldur það að ÉG sé að verða AMMA....bara skil þetta ekki!! Whistling

Skemmtilegur heimur Kissing 

hér er svo prinsessan mín komin 30v 

Viktoría Rós 30v 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hehe :D

Viktoría Rós (IP-tala skráð) 18.5.2010 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

245 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband