. - Hausmynd

.

Starbucks er jú ágætt.....eeeen

Fór á þetta marg-um talaða Starbucks í Hong Kong núna í nóvember. Jú, voða sætt og notalegt kaffihús, kaffið á viðráðanlegu verði, ágætt að sötra á og allt það. Mér finnst það ekkert betra/verra en mörg önnur kaffihús sem ég hef farið á hér á landi.

Það sem gerist þegar/ef Starbucks kemur hingað, er einfaldlega að rekendurnir af sjoppunni, munu okra svo svakalega á landanum (eins og 90% annarra fyrirtækja hér á landi) að maður verður tekinn í þurrt BÍB á staðnum Shocking Mig langar ekki að setjast niður á okurhús...ég meina kaffihús þar sem kaffibollinn kostar fúlgu fjár! Undecided

Ég hef heyrt að Starbucks muni aldrei selja keðjuna heldur opna nýtt hús og láta svo aðra rekstrar aðila reka það. Mér finnst það mjög sniðugt og styð það svo sem. Hinsvegar er verðið gefið frjálst og það er notað til hins ýtrasta.


mbl.is Ræðir við Starbucks um opnun á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

það besta við að fá starbucks er það að það skiptir engu máli hvaða dagur er eða hver er að vinna, þú færð alltaf nákvæmlega sama kaffið. það er mjög þægilegt að ganga að því vísu hvað maður er að fá, annað en það sem tíðkast á kaffihúsunum í dag.

þórunn (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 13:33

2 identicon

Starbucks eða ekki? Ég dvaldi um skeið í sumar í kaffihúsaborginni miklu Seattle og fór á hundrað eða þúsund kaffihús þar. Ég get ekki séð að Starbucks sé neitt betra en önnur og langt í frá að vera best, ég held meira að segja að ég hafi farið í fyrsta Starbucks kaffihúsið í Seattle. Hérna á Íslandi eru mörg frábær kaffihús sem gefa Starbucks og öllum þessum keðju-kaffihúsum ekkert eftir, nema síður sé. Við látum gráðugan lýð okra á okkur undir ýmsum nöfnum eins og Dominos, KFC, TG Fridays, McDonalds, Burger King, o.s.fr. og höfum ekkert að gera með kaffiokur líka. Hvar þekkist það í hinum vestræna heimi að borga 2000 kr fyrir fjöldaframleidda drasl-pizzu eins og á Dominos á Íslandi? Fyrir sömu pizzu borgar maður 5 til 6 dollara eða 400 til 500 kr íslenskar í USA. Þetta sjúklega okur hér á við engin rök að styðjast önnur en græðgi. Fjandinn hirði þessa Starbucks hugmynd, við höfum nóg af okrurum fyrir.

Frikki (IP-tala skráð) 18.12.2007 kl. 15:03

3 Smámynd: Helga Linnet

Ég fór til Slóveníu í nóvember líka og þar fórum við hjónin inn á pizza stað og keyptum okkur pizzu og 2 bjóra og fyrir þetta allt borguðum við 400kr íslenskar  Meira að segja Slóvenía er ekki þekkt fyrir að vera ódýrust í heimi...en þetta kalla ég ekki dýrt svo ég er sammála því að það er glæpur að kaupa pizzu á 2000-2500kr hér heima. Því miður þá látum við þetta yfir okkur ganga, sama hvað það er

Helga Linnet, 18.12.2007 kl. 15:12

4 Smámynd: 365

Eigum við Íslendingar að fara að kaupa kaffi hjá þeim er styrkja Sea Sheppard?

365, 18.12.2007 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 259625

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

249 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband