. - Hausmynd

.

Deildu ekki við dómarann!

Það átti að vera myndataka í leikskólanum hjá Sunnu litlu í dag. Þetta vissi ég í byrjun mánaðarins og ákvað að undirbúa hana undir þessa myndatöku því ég vissi að ef hún grípur eitthvað í sig, þá er henni ekki aftur snúið, þvílíkur þrákálfur sem hún er.

Ég vissi alveg hvað klukkan sló hjá minni þegar hún benti mér á það að hún færi ekki í neina asnalega myndatöku. Sama hvað ég reyndi að rökræða við hana, þá gaf hún sig ekki, ætlaði sko EKKI að vera með á myndinni og hvað þá fara í einstaklings töku!

Svona gekk þetta í 2 vikur og alltaf var sama svarið, ÆTLA EKKI AÐ FARA. Svo ákvað ég að reyna aðra leið. Hún VÆRI að fara og spurning um fataval. Lét það líta út voða spennó að nú væri hún að fara í myndatökuna og ég ætlaði sko að greiða henni voða flott og allt það.

Skyndilega snéri hún uppá sig, gekk inn í herbergið sitt, opnaði fataskápinn og sagðist geta farið í þessa myndatöku ef hún fengi að fara í þessum kjól GetLost

Ég leit á kjólinn, sem er sparikjóll og með uppgjafartón gafst ég upp og sagði að hún mætti fara í þessum kjól með því skilyrði að hún myndi BROSA og vera góð í myndatökunni. Þetta var díll.

Í morgun vaknaði hún spræk, tilbúin til að fara í kjólinn en ég ákvað að reyna að rökræða örlítið við dömuna um annan klæðnað en hún stóð fast við sinn keip....ekki í annan...þetta er kjóllinn. Pouty

Hún fór í kjólinn, ég greiddi henni og glöð hélt hún af stað í leikskólann, klædd í sínu fínasta pússi.

flott í jólakjólnum

Og svo er sagt að ÉG sé þrákálfur....döööh...held ekki Pinch


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Hún veit hvað hún vill

Gunnar Helgi Eysteinsson, 20.2.2008 kl. 14:37

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

WinkEkki ólík Alexöndru Von Athenu frænku sinnihún er þrákálfur eins og Sunna þín og ef hún tekur eitthvað í sig,þá er ekki aftur snúið.því miður.

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.2.2008 kl. 10:58

3 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Úpps gleymdi-þetta er flott mynd af Sunnu prinsessuni þinni og kjóllin bara smartWinkkv.linda frænka

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 21.2.2008 kl. 11:00

4 Smámynd:

Takk fyrir bloggvináttu frænka góð. Það verður gaman að fylgjast með blogginu þínu.

, 23.2.2008 kl. 01:05

5 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Bestu kveðjur og góða helgi

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 23.2.2008 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 259625

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

249 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband