. - Hausmynd

.

Myndir dagsins

Fyrsti dagurinn í vinnunni í dag eftir 6 vikna frí. Það liggur við að maður þurfi að fara í endurhæfingu til að geta byrjað að vinna aftur!! Annars fannst mér það góð tilfinning að fara í vinnuna aftur. Hlakka til að takast á við verkefnin....sem hlóðust aðeins upp á meðan prinsessan var í fríi. Halo

Litla Sunnuskottið mitt fór í fyrsta sinn í skólann í morgun. Mikill spenningur lá í loftinu en jafnframt pínu stress að koma öllum á réttum tíma í skólann. Viktorían átti að vera mætt 8:05 í Flensborg en Sunnan og Dísin 8:10 hér í skólanum. Það munaði samt minnstu að ég gleymdi að taka mynd af dömunni en fattaði það á síðasta snúning og vippaði liðinu út aftur til að taka myndir.

Fanney Lísa og Hólmfríður Sunna
Fanney Lísa og Hólmfríður Sunna

Í gær fór ég og mamma á pínu myndarúnt og tók nokkrar myndir. Fórum á hina ýmsu staði.

Straumur
Kópavogskirkja
Kópavogur
Kópavogur

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lilja G. Bolladóttir

Æ æ, hvað þær eru sætar stelpurnar.... alltaf rosa stór viðburður að byrja í skóla....

Tell me about it að byrja að vinna eftir sumarfrí, ég er enn í aðlögun finnst mér, er pínu utangátta ennþá. Mundi reyndar ekki hvaða skáp ég átti í búningsherberginu okkar þegar ég sneri aftur úr fríi, enda bara búin að eiga hann í hálft ár.....

Lilja G. Bolladóttir, 27.8.2008 kl. 21:13

2 Smámynd: Gúnna

Já, það er sko SVO STÓR stund að byrja í skóla. Ég man enn þegar ég fór með þá elstu fyrsta daginn í Melaskóla (hún er 23 ára) og hinar tvær skotturnar í Varmárskóla. Yndisleg upplifun.

Flottar myndirnar þínar :)

Eigðu góða helgi.

Gúnna, 30.8.2008 kl. 16:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 8
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 259621

Annað

  • Innlit í dag: 7
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

250 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband