. - Hausmynd

.

í dag, þriðjudaginn 28. október.....

...vaknaði ég og fór í sturtu, klæddi mig, fann föt á Sunnu, Dísin gaf henni að borða á meðan ég kláraði mín morgunverk. Eftir morgunmatinn og þegar allir voru klæddir lét ég stelpuna lesa þar sem það gleymdist í gærkvöldi og kvittaði í bókina hennar með stöfunum "þri 28.okt - mamma"

Nú þar sem var þriðjudagur þá sleppti ég því að láta hana með leikfimisföt í skólann því það er leikfimi á mán-, mið- og föstudögum og í dag var þriðjudagur. Skutlaði krökkunum í skólann og skundaði í vinnuna.

Kláraði daginn í vinnunni og þá var komið að þvi að skila skýrslu fyrir daginn í dag en áttaði mig á því að það voru mistök í skýrslunni frá því í gær. Ég varð að finna út úr því áður en ég færi heim en samkvæmt skýrslunni hafði ég fyllt út fyrir daginn í dag (þriðjudag) í gær! Eftir langa umhugsun spurði ég bossinn minn hvort það væri ekki örugglega þriðjudagur í dag en svarið innan úr skrifstofunni var einfalt. "Nei, Helga mín, það er miðvikudagur"

Ég gat ekki trúað því og leit á dagatalið enn einusinni, kíkti í dagbókina á símanum, fór á netið, athugaði klukkuna á tölvunni og allt benti til þess að ég hafi ekki verið á réttum degi. Þetta minnti einna helst á myndina Groundhog Day (1993) með Bill Murray í aðalhlutverkum.

allavega uppgötvaði ég það að ég hafði ekki sent barnið með leikfimidót í skólann svo nú hlýt ég að fá titilinn "kærulaus móðir"

Hvað sem því líður þá breyttist dagurinn hjá mér í miðvikudaginn 29. október, kl 14:00. Spurning um hvaða tíma-zone ég er á! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

248 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband