. - Hausmynd

.

ömmu og afa dagur

Já, það er ömmu og afa dagur í leikskólanum hjá Sunnu. Amma & afi eru á Akureyri svo ég hringdi í pabba en hann var fastur í vinnu upp á Hellisheiði og amma Rósa fyrir vestan svo það var enginn til að fara til dömunnar. Ég var með hnút í maganum yfir þessu öllu saman svo eftir þennan heimsóknartíma ákvað ég að hringja á leikskólann og athuga statusinn á dömunni. Jú, hún var ekkert að spá í þetta og kippti sér ekkert upp við það að enginn kom í heimsókn til hennar Pouty. Mér finnst þetta samt svo sárt að hún fái ekki neina heimsókn, það var danssýning í leikskólanum og ég komst ekki til hennar á þessum tíma og hún var rosalega sorgmædd yfir því að ég kom ekki. Ég ræddi þetta við hana þegar við komum heim og ég sagði henni að ég hefði verið ofsalega sár yfir því að hafa ekki komist, hún faðmaði mig að sér og sagðist alveg geta fyrirgefið mér InLove. Hún er svo ljúf......þegar hún tekur sig til Wink

Það er svo komið á hreint að ég fer með fimleikastelpunum út í lok júlí til Svíþjóðar. Þær eru að fara í æfingabúðir og verða í 10 daga. Það var aðeins eitt foreldri búið að bjóða sig fram og ég var spurð hvort ég gæti ekki farið með, ég lét til leiðast og fer með stelpunum. Ég þarf líklega að taka litla skottið með mér út þar sem leikskólinn er lokaður á þessum tíma en það verður bara að hafa það svo þá er bara að redda Dísinni minni, ekki get ég haft hana eina heima allan daginn. Stefán verður reyndar heima en líklega verður hann að vinna í rútubílaakstri og það gæti verið í einhverja daga í senn svo það þarf að finna einhvern flöt á því. Kemur allt í ljós þegar nær dregur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

248 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband