. - Hausmynd

.

FBI - Special agent

Ég var að gera svona FBI skilríki fyrir blakið. Þemað hjá okkur er Sandra Bullock (var ákveðið af blaknefnd...ekki okkur) svo við höfum allar lagt höfuðið í bleyti um hvernig best er að takast á við þetta þema. Ég prentaði risa stórt "plaggat" út af andlitinu á S.Bullock og fór með til eins kennarans sem er með mér í blakinu, hún tók þessa mynd, setti hana á pappa og skar hana út, festi svo á beinagrind sem skólinn á og klæddi beinagrindina í uniformið okkar Tounge. Svo fengum við þær fréttir hvernig það gekk og sagði hún eftirfarandi: "Sandra er að taka á sig mynd og ætlar að mæta geðveikt fersk í fyrsta leik á laugardag... hefur aldrei litið betur út... enda búin að vera á ströngum megrunarkúr síðasta mánuð..!!! Hún titrar í hnjáliðunum af tilhlökkun...". Ég gerði svo FBI skilríki handa okkur öllum en við erum 20 í allt. Þegar ég fór að vinna þau, fannst mér glatað að hafa eina mynd af henni í þessum skilríkjum svo ég náði í 20 ólíkar myndir af SB svo hver og ein er með spes mynd. Setti svo "strikamerki" neðst á skilríkin (svona eins og þegar maður rennir í gegnum aðgangskerfi). Fór með svo skilríkin til forsvarsmanns hvers hóps fyrir sig. Það er óhætt að segja að þetta hafi fengið góðar viðtökur.

Það er ekkert endilega einhver ensk....eða útlensk meining á bakvið FBI...þetta getur sko alveg staðið fyrir "Félag Blak Iðkenda" Grin

Ég reyndar byrja morgundaginn á því að mæta í Bjarkarhúsið kl 8 og vera ritari þar í keppni sem þar fer fram. Ég enda svo 10:30, það passar að ég skýst í Garðabæinn og keppi þar með mínu liði. Semsagt....ég sit ekki eirðarlaus þessa dagana Sideways


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 259616

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

250 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband