. - Hausmynd

.

Casino Royal

Við hjónaleysin gerðum okkur dagamun í gærkveldi. Ákváðum að skella okkur í bíó til að rifja upp þessa stemningu í bíósalnum. Við höfum jú verið dugleg að fara með krakkana á barnamyndir en þá hefur maður verið svo upptekinn við að gæta þess að börnin séu prúð og stillt og séu ekki að sparka í stólinn á næsta bekk fyrir framan svo maður situr ekkert afslappaður og fylgist eingöngu með myndinni. Eins förum við mjög oft í leikhús með krökkunum, það er mjög góð skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

Við ákváðum semsagt að skella okkur í Regnbogann og ástæðan fyrir því vali var að þar var hún sýnd kl 22:20 eða einum 30 mín á undan Smárabíó sem er töluvert nær okkar heimahögum en Regnboginn.

Við komum í Regnbogann hæfilega tímanlega, skelltum okkur í miðasöluna og viti menn, það var UPPSELT á myndina W00t. Ég lét hugann reika og athugaði daginn. Var viss um að hafa farið dagavillt, en nei, það VAR fimmtudagur og vinnudagur hjá lang-flestum næsta dag (allavega hjá mér). Konan í miðasölunni bauð okkur að kaupa miðana hjá sér í Smárabíó ef við vildum fara þangað. Við þáðum það og versluðum miðana. Höfðum nægan tíma svo við dóluðum okkur í Kópavoginn.

Þegar upp var komið í Smárabíó sáum við múg og margmenni. Aftur lét ég hugann reika og fékk það aftur út að það VAR fimmtudagur. Við biðum eftir því að bíósalurinn opnaði og þar sem ég er með þær sérþarfir að vilja sitja aftast, gætti ég mín á því að standa mjög nálægt dyrunum. Eitthvað voru starfsmenn bíósins seinir fyrir og var mannskapurinn farinn að ókyrrast þegar klukkan var orðin 23 en myndin átti að byrja samkvæmt áætlun 22:50.

Loks opnuðust dyrnar og ég laumaði mér inn með ösinni og náði tveimur sætum á aftasta bekk. Bíósalurinn fylltist á augabragði og auglýsingarnar byrjuðu ca 1 mín eftir að hurðin opnaðist.

Ég hallaði mér aftur í sætið og lét fara vel um mig með mitt popp og kók.

Bondinn byrjaði var sannfærð um að hafa villst á mynd þegar ég sá þenna líka myndarlega skolhærða, bláeygða og vel vaxinn mann akandi um á Ford bifreið. Ekki það að hann var ágætlega flottur en gat ekki betur séð en að bíllinn hafi verið af tegundinni Focus sem þykir ekkert rosa dýrir og flottir bílar Shocking. ég hugsaði með mér að þetta gæti ekki verið Bond him self, hann væri alltaf á einhverjum græjubíl. Svo þegar hann leit á klukkuna, þá sást ekkert í klukkuna, bara að hann hafi litið á hana til að fylgjast með tímanum. Í öllum hinum Bond myndunum sá maður að þetta var Rolex eða e-ð álíka FootinMouth. Enn hugsaði ég að þetta GETUR ekki verið Bond. Jæja, myndin byrjaði á þessu, strax upphófst spenna á fyrstu mínútunum. Myndin heltók mann strax í byrjun og gaf lítið eftir allan tímann. Góður söguþráður var á myndinni og maður hafði í raun aldrei það á tilfinningunni að maður væri að horfa á Bond. Þessi mynd hefði alveg geta verið bara "venjuleg" spennumynd. Stúlkurnar voru jú glæsilegar en Bondinn var ekki eins kvensamur og í flestum öðrum myndum. Ég held meira að segja að hann hafi bara sofið hjá tveimur konum í þessari mynd Joyful.

Þetta er hörku spennandi mynd og ég mæli með henni. Góð spenna allan tímann sem heldur manni við efnið. Flott tækni þó svo að sumt hafi verið full óraunverulegt þá tókst framleiðandanum að láta mann gleyma því að þetta gæti ekki verið svona. Wink Auðvitað er þetta rosalega fyrirsjáanlegt allt saman eins og allar þessar Bond myndir og fleiri til en það gerir ekkert til því maður var svo upptekinn af því sem var að gerast.

Ég var allavega ekki ósátt við að hafa borgað 900kr pr haus á þessa mynd + popp & kók Wizard

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

245 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband