. - Hausmynd

.

sætar táslur

Ég fór til vinkonu minnar að taka myndir af kökkunum hennar og nýfæddum syni. Stóðst ekki mátið að taka mynd af táslunum af gutta.

Hér eru 10 krúttlegar tásur. Smile

tásur-2

upprifjun

Ég fékk það verkefni í vinnunni að setja upp heimasíðu fyrir stofuna. Mér fannst það mjög ögrandi verkefni því ég hef ekki sett upp heimasíðu frá grunni síðan ég var í Háskólanum í Reykjavík.

Ég ákvað að grafa upp síðuna sem ég gerði þá og kom það sjálfri mér meira að segja á óvart hvað hún var vel gerði!

Síðuna má finna hér en það þarf að leyfa henni að hlaða sér inn smá stund og svo eftir það er ekkert mál að vafra um fram og til baka. 


James Bond í kreppu!

Snilldar myndband.

 


Ertu þreytt/ur á snúrunum við sjónvarpið?

þá gæti þetta verið lausnin fyrir þig Wink

tul


Vel alinn eiginmaður

Ég get með stolti sagt að minn maður sé mjög vel alinn. Hann er svo ljúfur þessi elska að hann drattast með mér á allra handa viðburði, hvort sem þeir eru taldir kvenlegir eða ekki. Hann hefur að vísu ekki enn komið með mér á konukvöld Joyful

Á laugardagskvöldið fórum við saman á ABBA show-ið sem var haldið í Vodafone höllinni. Við ætluðum að mæta vel tímanlega svo við fórum af stað rétt um átta þar sem þetta átt að byrja kl 9.

Þegar við vorum komin upp á Bústaðabrúnna, þyngdist umferðin töluvert og á fyrstu ljósunum áttuðum við okkur á því að umferðin sat föst! Við komumst hægt áfram en það tók okkur um 30 mínútur að fara ca 1.5km (svo hratt gekk þetta)

Þegar við vorum komin inn í höllina var klukkan orðin 8:40 og ekki svo mikið sem EITT sæti eftir! Fólk var farið að hrúga sér á gólfið og allstaðar var fólk. Við fundum lítið gat á tjaldi, hinum enda salarins en samt beint á móti sviðinu og ákváðum við að vera þar. Við sæjum allavega eitthvað.

Sitthvoru megin við sviðið var hinsvegar "stórt" tjald með mynd af sviðinu. Ég horfið vantrúuð á tjöldin tvö því myndin á tjöldunum var minni heldur en það sem maður sá "a live", með öðrum orðum var myndin ca 1/5 af sviðinu sem þýðir að þetta þjónaði engum tilgangi!

Við stóðum upp á endann í rúma 3 tíma án þess að geta hreyft okkur svo fæturnir voru ansi lúnir þegar heim var komið. Ekki skánaði það þegar maður vaknaði morguninn eftir, það var eins og maður stigi á þyrna!

Í gær færðu systurnar pabba sínum blóm í tilefni feðradagsins. Ég er svo klikkuð að ég varð að velja "myndhæft blóm" svo ég gæti tekið myndir mér til ánægju. Þetta varð fyrir valinu. Blómið er svona fagur blátt. Ekki breytt neinu. Smile 

blóm

öðruvísi myndefni

Fór austur fyrir fjall að mæla með bossinum mínum og komum við á Hótel örk í leiðinni að mæla. Ákvað að smella af "öðruvísi" myndum.

hótel örk-6
hótel örk-2

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

198 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband