. - Hausmynd

.

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Frekar illa farin

Það er hreint ótrúlegt hvað ein nótt getur skemmt mikið.

Á miðvikudag fór ég í rúmið nálægt miðnætti sem hefði alveg verið í lagi nema að ég vakna aftur um kl 2 við það að Viktoría hafði sofnað út frá bókarlestri með tónlist á og allt upp ljómað svo ég fór frammúr og slökkti á öllu hjá henni. Lagðist upp í rúm og sofnaði.

kl 3 hrekk ég upp við það að hurðin að svefnherberginu er alltaf að skellast. Glugginn var opinn í herberginu og komst að dragsúgur að hurðinni sem aldrei náði að lokast almennilega svo hún skelltist alltaf aftur. Frammúr fór ég enn einu sinni til þess að opna hurðina upp á gátt.

Rétt fyrir 5 hringir bakvaktarsími Stefáns og hélt ég í fyrstu að þetta væri vekjaraklukkan. Reyndi ítrekað að slökkva en allt kom fyrir ekki svo ég ýtti við Stefáni og bað hann um að slökkva á klukkunni sinni...hann rauk þá á fætur til að svara símanum. Hann rauk svo út í framhaldi af því.

Korter yfir fimm kemur litla dýrið mitt og segist þurfa að fara að pissa.

hálf sex hringir vekjaraklukkan hans Stefáns. Hann hafði gleymt að slökkva á henni áður en hann fór og var ekki kominn aftur svo ég neyddist til að fara og slökkva á henni.

klukkan 7 hringir mín vekjaraklukka og þá var ég svo hrikalega búin á því að það var ekki til staður á líkamanum sem mig verkjaði ekki í Frown

Frammúr drattaðist ég og kom krökkunum á sinn hvern staðinn og skellti mér svo í ræktina...sem ég held að hafi ekki verið mjög skynsamlegt því nú er öxlin endanlega farin aftur og nú duga engin verkjalyf Crying

Nú er kominn föstudagur og ég er enn sárþjáð í bölvaðri öxlinni. Þetta ætlar að taka tíma að jafna sig þetta drasl GetLost


Til hamingju stelpur með daginn :)

rós - macro 

Ég fór að velta því fyrir mér á hvaða tímapunkti ég breyttist úr stelpu í konu. Eða er ég kannski enn stelpa? Ég man ekki eftir einhverjum skilum þarna á milli svo ég lít enn á mig sem unga stúlku. Jú, vissulega er ég þriggja barna móðir...og börnin eldast hratt...allavega hraðar en ég!! Woundering Ég þver tek fyrir að horfa á mig sem konu...því orðið kona finnst mér eiga bara við mömmu og KONUR á þeim aldri Joyful

Annars sváfu litlu systkinin mín hjá mér í nótt. Litla skottið sem er 3 ára var himin lifandi að fá að gista hjá mér sem mér fannst bara æði. Sunna og Guðrún ná rosalega vel saman þrátt fyrir 2 ára aldursmun á milli þeirra. Logi var hinsvegar ekki eins kátur, vill bara vera heima og hvergi annarstaðar. En svona er þetta bara, drengurinn kominn langt á 13 ár svo ég skil hann alveg fullkomlega. Undecided

Í morgun heyrði ég svo í litlu skottunum þegar þær vöknuðu. Vissi það að Stefán minn þurfti að fara í vinnuna og vera mættur 7:30 í morgun svo hann var farinn. Ég ákvað að leyfa stelpunum litlu að vekja mig, nennti ómögulega fram strax. Næsta sem ég viss var að ég vaknaði við koss frá manninum mínum. Spurði mig hvort ég ætlaði að sofa í allan dag. Ég leit í örvæntingu á klukkuna og sá mér til mikillar gremju að hún var ekki einu sinni orðin NÍU Pinch Ég ákvað samt að dröslast frammúr og það sem mætti mér í eldhúsinu var hlaðborð af girnilegum kræsingum og stór blómvöndur. Þessi elska skaust heim úr vinnunni, kom við í bakaríinu og blómabúðinni og eins og öll hin árin á undan, þá skildi hann hinar dömurnar ekki útundan og þær fengu sína rósina hver.

Um leið og allir voru komnir að matarborðinu og farnir að háma í sig kræsingar, þurfti hann að fara aftur í vinnu. Frown

konudagsblómin

 

Það er nóg að gera hjá mér í dag við að sækja og senda litla grislinga (og hunda) og svo var ég víst búin að lofa DA uppkasti af búðinni...svo það þarf víst að spýta í lófana ef ég á að ná öllu í dag áður en ég skelli mér á æfingu í kvöld. Cool


Deildu ekki við dómarann!

Það átti að vera myndataka í leikskólanum hjá Sunnu litlu í dag. Þetta vissi ég í byrjun mánaðarins og ákvað að undirbúa hana undir þessa myndatöku því ég vissi að ef hún grípur eitthvað í sig, þá er henni ekki aftur snúið, þvílíkur þrákálfur sem hún er.

Ég vissi alveg hvað klukkan sló hjá minni þegar hún benti mér á það að hún færi ekki í neina asnalega myndatöku. Sama hvað ég reyndi að rökræða við hana, þá gaf hún sig ekki, ætlaði sko EKKI að vera með á myndinni og hvað þá fara í einstaklings töku!

Svona gekk þetta í 2 vikur og alltaf var sama svarið, ÆTLA EKKI AÐ FARA. Svo ákvað ég að reyna aðra leið. Hún VÆRI að fara og spurning um fataval. Lét það líta út voða spennó að nú væri hún að fara í myndatökuna og ég ætlaði sko að greiða henni voða flott og allt það.

Skyndilega snéri hún uppá sig, gekk inn í herbergið sitt, opnaði fataskápinn og sagðist geta farið í þessa myndatöku ef hún fengi að fara í þessum kjól GetLost

Ég leit á kjólinn, sem er sparikjóll og með uppgjafartón gafst ég upp og sagði að hún mætti fara í þessum kjól með því skilyrði að hún myndi BROSA og vera góð í myndatökunni. Þetta var díll.

Í morgun vaknaði hún spræk, tilbúin til að fara í kjólinn en ég ákvað að reyna að rökræða örlítið við dömuna um annan klæðnað en hún stóð fast við sinn keip....ekki í annan...þetta er kjóllinn. Pouty

Hún fór í kjólinn, ég greiddi henni og glöð hélt hún af stað í leikskólann, klædd í sínu fínasta pússi.

flott í jólakjólnum

Og svo er sagt að ÉG sé þrákálfur....döööh...held ekki Pinch


Dvínandi stjarna....eða hvað

Almáttugur hvað maðurinn er skemmdur. Eftir allt sem á hefur gengið hjá mann greyinu, þá ætti hann að vera þakklátur fyrir það eitt að hafa verið boðinn þarna á annað borð Shocking
mbl.is Jackson rekinn af hátíðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mömmur!!

Dálítið mikið til í þessu. Gjörsamlega frábært myndband.....rosalegt að REYNA að fylgjast með textanum LoL


skömmuð!!

Nú fékk ég það sko óþvegið hjá gigtarlækninum mínum í morgun. Ég er að drattast til hans fyrst núna eftir slysið mitt 24.sept 07. Hann varð æfur yfir því afhverju í ósköpunum ég hefði ekki komið fyrr til hans, honum þætti ekkert varið í það að moka sama skurðinn oft! Blush 

Kláraði lyfin mín í síðustu viku og hef ekki tekið þau síðan og þar með er ég komin á byrjunarreit hvað það varðar og hann var ekki kátur. Benti mér á það (dálítið æstur) að við hefðum verið svo langt komin í meðferðinni og nú víst ég asnaðist ekki til þess að koma til hans strax og stöðva ógæfuferlið, þá værum við á núll punkti aftur...semsagt ný meðferð að hefjast Frown (átti kannski eftir ár til þess að geta útskrifað mig...en þau verða víst fleiri...út af asnaskap í mér) En eins og ég sagði við hann að ég hélt bara að þetta hefði ekki verið neitt og er alltaf að átta mig á því að þetta er miklu meira en það....Errm

jæja...ég verð víst að sætta mig við þetta. Búið og gert. Vonandi fara verkirnir aftur að minnka héðan í frá. Undecided

Stefán minn hló að þessu og sagði að það hefði verið kominn tími til að einhver læknirinn minn skammaði mig...ég kannski myndi hlusta betur næst LoL

það verður ekkert NÆST! GetLost


we say hey hey hey

Ég er dálítið mikið að fíla þetta lag...og vona það innst inni að þetta fari út í okkar Eurovision keppni í ár Tounge


Macro myndir

já...ég viðurkenni það...ég ER skrítin...og mun allaf vera það Tounge

Setti inn macromyndir inn. Ef þú nennir að skoða...þá er það bara frábært. Smile

giftingahringur

búin að tapa glórunni!!

Mig hefur dreymt um svokallaða macro linsu á vélina mína. Fann jú eina sem mig langaði að kaupa og ætlaði að setja hana í "favorite" á netinu hjá mér en snarlega hætti við þegar ég sá að hún kostaði litlar $2800 Shocking, nei...geymi það aðeins.

Las mig til á netinu um hinar ýsum stillingar og jafnframt bent á það að það sé hægt að nota hinn endann á linsunni líka...smá maus...en á sumum vélum er það hægt. Auðvitað opnuðust mín augu á staðnum svo ég ákvað að fara að gera tilraunir með myndavélina. Í fyrstu kom ekkert að viti upp en svo smátt og smátt áttaði ég mig á því hvernig þetta virkar.

Fyrsta tilraun og sko alls ekki sú síðasta í minni "macro" pælingu LoL

macro hringur
macro hringur 2

með hor út á kinn

Agalegt hvað maður verður slappur þegar maður verður svona kvefaður.

Lagð af stað í vinnu í morgun en hætti við, snéri við og hringdi mig inn veika. Kvefið fer allt í augun á mér svo ég sé ekki út og tárast út í eitt.

Lagðist upp í rúm og lokaði augunum. Var þar í 1-2 tíma, gafst upp og strunsaði fram í sófa til að reyna að glápa á e-ð í imbanum. Ekki tókst betur en það að helv#$% myndlykillinn frá Símanum var bilaður svo ég gat ekki leigt neitt skemmtilegt. Langaði þá bara að fara að dunda mér með myndavélina en komst að því að ég hef heldur ekki heilsu í það!! þá er mikið sagt W00t

læt eina fylgja af tilraunum mínum.

 

Leiðin að hjartanu

Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 46
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

241 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband