10.7.2007 | 09:28
sundgarpurinn minn
Það er hreint út sagt ótrúlegt hvað þetta barn lætur sig hafa. Hún er ekki nema 5.ára og er ekki orðin synd en ég setti hana á sundnámskeið um daginn. Vissi að hún myndi hafa ótrúlega gott og gaman að því. Ég fékk svo að koma síðasta daginn til að horfa á dömuna og sjá hvað hún er orðin dugleg. Ég kem frekar seint þar sem ég þurfti að fá frí í vinnunni til að horfa á dömuna. Þegar ég kom heyrði ég bara andköf og stunur hjá foreldrunum sem mættir voru. Ég heyri svo þar sem aðstoðarmanneskjan í sundinu segir við mína dömu að ég sé komin að horfa á. Í sömu andrá snúa allir foreldrarnir sér við og spyrja hvort þetta sé mitt barn. Jú, ég gat ekki neitað því og þá fékk ég að heyra að hún sé mesti brjálæðingurinn í hópnum. Hún er langt um minnst og nær ekki í botninn. Hún þver tekur fyrir að hafa kúta en þar sem hún er ekki synd þá átti hún að vera með þá. Hún reddaði því hratt og örugglega. Hún buslar í kafi og svo þegar hana vantar súrefni lætur hún sig síga í botninn og spyrnir sér upp og grípur andann á lofti!
Ég fylgdist með henni smá stund og stóð ekki á sama, hún reddaði sér samt algjörlega úr öllum vandræðum. Synti á milli bakka og leiktækja eins og ekkert var....kútalaus! Það var ein manneskja algjörlega með henni og fylgdi henni hvert fótmál.
Kennarinn hafði orð á því að þetta barn þyrfti 100% eftirfylgni í sundi.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
32 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.