11.9.2007 | 10:09
Það er FRÚ Helga sem talar :)
Nú er allt yfir staðið. Allur dagurinn stóðst undir væntingum. Ég vildi skemmta mér og að aðrir myndu skemmta sér eins vel....allavega ekki verr en mér.
Ég var alltaf búin að ákveða það að brjóta aðeins formleg heitin upp í kirkjunni en vissi ekki hvort ég myndi þora því svona öllu jöfnu. Ég var aldrei stressuð, leið alltaf voðalega vel allan tímann, fór yfir það í huganum hvar og hvað og hvernig ég ætlaði að brjóta þetta formfasta kirkju brúðkaup upp. Þegar ég var orðin ákveðin í að brjóta það upp (ég var þá ennþá við hlið pabba í kirkjunni þegar ég ákvað þetta) þá fór ég virkilega að stressast upp. Ég hugsaði margt og fannst það á þessum tímapunkti að ég mætti ekki gera NEITT fyrr en ég væri orðin LÖGLEG FRÚ .
Við krupum við altarið eftir að búið var að setja hringa og þá ákvað ég að klípa létt í rassinn á honum....og ég gerði það. Það kom kliður um kirkjuna og þá áttaði ég mig á því að það sáu þetta kannski bara flestir....jæja....var það ekki bara ágætt??? Markmiðinu mínu var allavega náð....að brjóta þetta aðeins upp
Veislan heppnaðist ótrúlega vel í alla staði. Maturinn var súper góður, veislustjórinn frábær og allir þeir sem treystu sér upp á svið að "bulla" voru æði. Sigga svilkona sló í gegn með video show-inu en fimm mín í brúðkaup ákvað ég að kenna henni á movie maker svo hún gæti sett upp video-show-ið. Ég fann til myndir og lét hana hafa tilbúnar myndir en svo setti hún texta og svoleiðis skemmtun inn á. Ég skemmti mér konunglega yfir þessu en Stefán minn fölnaði nú yfir einhverjum myndum sem við Sigga fundum .
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 260383
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
249 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
Innilegar hamingjuóskir með brúðkaupið.
Kveðjur, Helena, Örvar og Elma Katrín.
Helena og familí (IP-tala skráð) 11.9.2007 kl. 19:58
ELSKU HELGA OG HERRA... VILDI BARA KASTA Á YKKUR KVEÐJU OG ÓSKA YKKUR INNILEGA TIL HAMINGJU BRÚÐKAUPIÐ. ÞIÐ ERUÐ STÓRGLÆSILEG Á MYNDUNUM!!! tIL HAMINGJU.... KVEÐJA hLÍN BLAKVINKONA
hLÍN (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 22:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.