19.2.2008 | 11:32
skömmuð!!
Nú fékk ég það sko óþvegið hjá gigtarlækninum mínum í morgun. Ég er að drattast til hans fyrst núna eftir slysið mitt 24.sept 07. Hann varð æfur yfir því afhverju í ósköpunum ég hefði ekki komið fyrr til hans, honum þætti ekkert varið í það að moka sama skurðinn oft!
Kláraði lyfin mín í síðustu viku og hef ekki tekið þau síðan og þar með er ég komin á byrjunarreit hvað það varðar og hann var ekki kátur. Benti mér á það (dálítið æstur) að við hefðum verið svo langt komin í meðferðinni og nú víst ég asnaðist ekki til þess að koma til hans strax og stöðva ógæfuferlið, þá værum við á núll punkti aftur...semsagt ný meðferð að hefjast (átti kannski eftir ár til þess að geta útskrifað mig...en þau verða víst fleiri...út af asnaskap í mér) En eins og ég sagði við hann að ég hélt bara að þetta hefði ekki verið neitt og er alltaf að átta mig á því að þetta er miklu meira en það....
jæja...ég verð víst að sætta mig við þetta. Búið og gert. Vonandi fara verkirnir aftur að minnka héðan í frá.
Stefán minn hló að þessu og sagði að það hefði verið kominn tími til að einhver læknirinn minn skammaði mig...ég kannski myndi hlusta betur næst
það verður ekkert NÆST!
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 260128
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
32 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
Ég segi nú bara það sama: Skammastu þín
Gunnar Helgi Eysteinsson, 19.2.2008 kl. 19:59
kvitt kvitt
Linda Linnet Hilmarsdóttir, 19.2.2008 kl. 21:09
Nú ætla ég að SKJÓTA á þig til baka...... þú ert bara það sem við köllum á spítalamáli "með lélega meðferðarheldni"......
En í alvörunni, þá vona ég að þú fáir það betra og verkirnir minnki og að læknirinn þinn gefist ekki upp á þér..... hvað heitir hann annars?
Kv. Lilja
Lilja G. Bolladóttir, 19.2.2008 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.