29.2.2008 | 10:03
Frekar illa farin
Það er hreint ótrúlegt hvað ein nótt getur skemmt mikið.
Á miðvikudag fór ég í rúmið nálægt miðnætti sem hefði alveg verið í lagi nema að ég vakna aftur um kl 2 við það að Viktoría hafði sofnað út frá bókarlestri með tónlist á og allt upp ljómað svo ég fór frammúr og slökkti á öllu hjá henni. Lagðist upp í rúm og sofnaði.
kl 3 hrekk ég upp við það að hurðin að svefnherberginu er alltaf að skellast. Glugginn var opinn í herberginu og komst að dragsúgur að hurðinni sem aldrei náði að lokast almennilega svo hún skelltist alltaf aftur. Frammúr fór ég enn einu sinni til þess að opna hurðina upp á gátt.
Rétt fyrir 5 hringir bakvaktarsími Stefáns og hélt ég í fyrstu að þetta væri vekjaraklukkan. Reyndi ítrekað að slökkva en allt kom fyrir ekki svo ég ýtti við Stefáni og bað hann um að slökkva á klukkunni sinni...hann rauk þá á fætur til að svara símanum. Hann rauk svo út í framhaldi af því.
Korter yfir fimm kemur litla dýrið mitt og segist þurfa að fara að pissa.
hálf sex hringir vekjaraklukkan hans Stefáns. Hann hafði gleymt að slökkva á henni áður en hann fór og var ekki kominn aftur svo ég neyddist til að fara og slökkva á henni.
klukkan 7 hringir mín vekjaraklukka og þá var ég svo hrikalega búin á því að það var ekki til staður á líkamanum sem mig verkjaði ekki í
Frammúr drattaðist ég og kom krökkunum á sinn hvern staðinn og skellti mér svo í ræktina...sem ég held að hafi ekki verið mjög skynsamlegt því nú er öxlin endanlega farin aftur og nú duga engin verkjalyf
Nú er kominn föstudagur og ég er enn sárþjáð í bölvaðri öxlinni. Þetta ætlar að taka tíma að jafna sig þetta drasl
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 260128
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
32 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.