8.9.2008 | 10:15
Pappírsbrúðkaup
Er það ekki þegar maður á 1.árs brúðkaupsafmæli
Í dag eigum við Stefán 1. árs brúðkaupsafmæli. Ótrúlegt að heilt ár sé liðið. Það leið bara "kviss bang"
Þennan dag fyrir 11. árum síðan trúlofuðum við okkur líka.
Þennan dag eiga tengdaforeldrar mínir brúðkaupsafmæli. Þau eiga 41.árs afmæli.
Nú er spurning hvort Stefán minn man eftir þessum degi (ætla ekki að minna hann á þetta). Ætla samt að elda eitthvað ótrúlega gott handa okkur og hafa Kósý-kvöld
Hjúskaparafmæli:
1 árs: Pappírsbrúðkaup
2 ára: Bómullarbrúðkaup
3 ára: Leðurbrúðkaup
4 ára: Blóma- og ávaxtabrúðkaup
5 ára: Trébrúðkaup
6 ára: Sykurbrúðkaup
7 ára: Ullarbrúðkaup
8 ára: Bronsbrúðkaup
9 ára: Leirbrúðkaup/pílubrúðkaup
10 ára: Tinbrúðkaup
11 ára: Stálbrúðkaup
12 ára: Silkibrúðkaup
12½ ára: Koparbrúðkaup
13 ára: Knipplingabrúðkaup
14 ára: Fílabeinsbrúðkaup
15 ára: Kristalsbrúðkaup
20 ára: Póstulínsbrúðkaup
25 ára: Silfurbrúðkaup
30 ára: Perlubrúðkaup
35 ára: Kóralbrúðkaup
40 ára: Rúbínbrúðkaup
45 ára: Safírbrúðkaup
50 ára: Gullbrúðkaup
55 ára: Smaragðsbrúðkaup
60 ára: Demantsbrúðkaup
65 ára: Króndemantsbrúðkaup
70 ára: Platínubrúðkaup/járnbrúðkaup
75 ára: Gimsteinabrúðkaup/atómbrúðkaup
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
33 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
Vá til lukku flottu hjón.
Sesselja Fjóla Þorsteinsdóttir, 8.9.2008 kl. 10:54
Til hamingju með daginn!! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt... finnst ekki vera liðið heilt ár síðan ég steig í fyrsta sinn inn í Akureyrarkirkjuna og krakkarnir stálu teygjum af öllum sem þeir gátu
Eyrún Linnet, 8.9.2008 kl. 11:57
Til hamingju með daginn frænka :)
Margrét frænka (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 20:01
Æ, til hamingju með brúðkaupsafmælið, Helga mín. Ótrúlega falleg á brúðkaupsmyndinni.
Ég vona að þið hjón eigið gott og kósý kvöld í kvöld
p.s. .....sakna þín á síðunni minni....
Lilja G. Bolladóttir, 8.9.2008 kl. 20:33
Innilega til hamingju, já þetta líður hratt
Sóley (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.