11.2.2009 | 21:02
Heltekin!
Ég er dálítið upptekin af áhugamálinu mínu í dag. Skellti mér með í ferð með nokkrum eitur-hressum ljósmyndaáhugamönnum og var stefnt á Krísuvík og Kleifarvatn. Þetta var mjög skemmtileg ferð í alla staði. Rosalega gaman að fara með fólki sem á ótrúlegan búnað. Maður fékk eiginlega bara minnimáttarkennd þegar maður horfði á allt dótið hjá þessum ágætu köppum.
Ég og SÓ vinkona ákváðum að freista gæfunnar og fara um kvöldið og reyna að veiða norðurljós. Norðurljósin létu ekki sjá sig þetta kvöld en tókum við samt nokkrar fallegar næturmyndir af Kleifarvatni.
Kleifarvatn að degi til
Kleifarvatn að nóttu til
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
249 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
Svo gaman að þessu :) Snilld að taka sama sjónarhornið um daginn og svo aftur um kvöldið.
Sóley (IP-tala skráð) 14.2.2009 kl. 11:45
Helga Linnet; Þú klikkar ekki frekar en hinn daginn. Rosalega eru þetta fallegar myndir. Maður verður ósjálfrótt stoltur af því að eiga heima á þessu fallega landi með þessu hreina og tæra lofti með meiru.
Merkileg finnst mér útkoman í neðri myndinni: "Kleifarvatn að nóttu til" en þar blandar þú saman næturbirtunni (tunglskininu) og ljóskastara á hraunstúfinn næst myndavélinni. Það kemur glettilega vel út.
Nú skilur maður betur en nokkru sinni hví Ísland er kallað: "Landið bláa".
Kvðeja, Björn bóndi bloggvinur
Sigurbjörn Friðriksson, 20.2.2009 kl. 01:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.