18.5.2009 | 21:51
Vatn verður að víni!!
Ég komst að því að á þessum síðustu og verstu tímum að auðvelt er að breyta vatni í vín!
Ég greip tóma bjórdós sem var á eldhúsborðinu og skolaði hana vel og vandlega og notaði hana til að vökva blómin mín. (sem eru ekkert óskaplega mörg...en þau sem eru þurfa jú vatn)
Ég var búin að vökva eitt blómið þegar ég lagði bjórdolluna frá mér til þess að hagræða að næsta blómi. Því næst gríp ég aftur bjórdolluna til að vökva en þegar ég helli þá kemur bara bjór! Ég tók ekki strax eftir þessu en um leið og ég átta mig á mistökunum hætti ég snarlega að sjússa blómið og greip rétta bjórdós
Ég var með afmælisveislu um helgina....eða réttara sagt ég átti afmæli og ætlaði ekki að bjóða neinum en minn elskulegi maður tók þetta í sínar hendur og bauð fullt af fólki án þess að segja mér neitt sérstaklega frá því og kom mér því á óvart.
Auðvitað sá hann til þess að það yrði nóg af bakkelsi og fékk "kokkinn" til að smyrja "nokkrar" snittur.
Allt heppnaðist þetta ljómandi vel og var ég al-sæl með þessa óvæntu veislu.
Hér koma svo nokkrar myndir úr veislunni.
Fallega frænkan og kærastinn hennar
Litla skottið mitt
Guðrún Alda litla systir...algjör skvísa
Föðuramma mín
Móðir mín
Frænkurnar (og vinkonur mínar)
Stefán og "Kokkurinn" í góðum gír
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
32 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.