13.12.2006 | 18:44
staffsettnninngar!!!
dísess hvað maður er lesblindur....ég skrifaði hér í gær forÉtinn.....auðvitað er þetta FORRÉTTINN. Ég er nefnilega ein af þeim sem HATA stafsetningavillur og verð mest ill út í mig sjálfa ef ég geri villur. Ég fékk nefnilega póst frá manni í gær sem er nota bene rosalega vel menntaður og ætti að kunna þetta sæmilega svona miðað við það stöðugildi sem þessi maður gegnir...en í einni smá setningu voru tvær HRIKALEGAR villur Setningin var nákvæmlega svona (koperað)
"þið lítið yfir þessar teikningar og ath hvort það þurfi að breita einnhverju"
Jæja...þið hin sem takið ekkert eftir þessu......HEPPIN ÞIÐ
Annað mál á dagskrá....ein góð vinkona mín benti mér á ótrúlegan hlut nú um daginn. Hún var að fárast yfir jólatrjáasölunum sem eru víðsvegar um borgina (og landið að sjálfsögðu). Ég hafði svosem aldrei gert neitt veður út af þessari setningu
JÓLATRÉSSALA......
auðvitað á þetta að vera JÓLATRJÁASALA.....ekki eru þeir að selja EITT tré....þó svo að fólk kaupi í flestum tilfellum bara EITT tré þá eru þessir kappar að selja heilan haug af jólatrjám og auðvitað er það ekki þá rétt að skrifa JÓLATRÉSSALA. Bara svo þetta sé á hreinu. Ekki voga þeir sem selja flugelda að segja þeir séu með einn flugeld....niiii....þetta eru víst margir flugeldar
Jæja. Síðasta prófið á föstudaginn. Engar EINKUNNIR eru komnar inn so far....ég er að drepast yfir því....finnst þetta ekkert sérlega réttlátt Vona það besta allavega.
until later.....
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
30 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
Nei maður!!! Bara jólatrjáasala. En ef fólk er svona voðalega obsessed af því að hafa orðið jólatré en ekki trjáa væri einfaldast að skrifa Jólatré til sölu. En Svo fussar fólk yfir unglingunum í dag sem "kunna ekki íslensku" hvernig er hægt að ætlast til þess ef við kunnum hana ekki sjálf.!!!!!
Addú (IP-tala skráð) 13.12.2006 kl. 21:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.