. - Hausmynd

.

Það er bara allt farið í steik

Þó svo að við hjónin höfum ekki há erlend lán á okkur eða höfum lifað hátt undan farin ár þá kemur þetta illa við okkur eins og þjóðina alla.

Við eigum jú einbýlishús á fallegum stað sem við byggðum sjálf fyrir hart nær 10 árum. Húsið er enn í "vinnslu" því við höfum gert það smátt og smátt eða eftir efnum.

Við eigum jú tvo bíla, annan 14 ára gamlan en hinn tæplega 2 ára sem við keyptum þó notaðan en hvorugur bíllinn er upp á margar milljónir.

Við erum með húsnæðislán sem var ekki svo ýkja hátt þegar við tókum það en það hefur aldeilis hækkað undanfarin misseri.

Nú er svo komið að greiðslan af íbúðaláninu er svo há að við höfum þurft að skera helling niður af því sem við leyfðum okkur til dæmis leikhús- og bíóferðir, út að borða með fjölskylduna svo eitthvað sé nefnt. Það í sjálfu sér er allt í lagi en þegar matarkarfan hefur hækkað um 100% á einu ári þá hlýtur það að koma við kaunin á manni. Við erum með langveikt barn sem þarfnast lyfja og endurhæfingar en það fer að verða munaður líka mjög fljótlega. Við skerum allt annað niður áður en það fer að bitna á börnunum, en það sorglega við það er að það er óskaplega stutt í það.

Nú er svo komið að ég er meira og minna atvinnulaus. Arkitektageirinn nánast lagðist útaf. Maðurinn minn er orðinn tæpur í sínu starfi en hætt er við því að hans vinnustaður leggist niður. Ég get ekki gengið í hvaða vinnu sem er því ég lenti í umferðaróhappi sem olli því að ég er orðin að hálfgerðu grænmeti og get orðið ekki hvað sem er.

Hvað gerum við þá?

Eins og þorri þjóðarinnar viljum við sjá eitthvað gert. Ekki lofað einhverju sem ekki stendur eða er gert svo seint að 80% landans er farinn á hausinn.

Þó svo að við höfum alla burði að flytjast búferlum þá stoppar það okkur samt því við sitjum í steypuklump sem við getum ekki selt og styttist í að við getum ekki borgað af.

Hvernig væri að ríkisstjórnin færi og gerði eitthvað í málunum og næðu í þessa peninga sem "útrásarvíkingarnir" stálu og kæmu með þá í þjóðfélagið aftur? Þeir teknir og látnir vinna samfélagsvinnu til að sýna þeim að þjóðinni stendur ekki á sama.

Það hlýtur að vera hægt að ná í skottið á þessum einstaklingum sem komu okkur ofan í hyldýpið mikla og láta þá svara til saka. Þeir geta sko bara setið í 3 herbergja gettó íbúðum og þeim skaffaðir 140.000,- á mánuði til að lifa af.

Þeim mun lengra sem líður, þeim mun erfiðara uppdráttar eiga þeir sem enn hanga á skerinu.

Það styttist verulega í það að ég fari niður á Austurvöll með potta og sleifar að mótmæla....og þá er mikið sagt. GetLost


mbl.is Þetta er bara allt farið í steik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það hlýtur að vera hægt að ná í skottið á þessum einstaklingum sem komu okkur ofan í hyldýpið mikla og láta þá svara til saka........ segir þú

Það virðist ekki vera, lagabókstafurinn virðist vinna með þeim.  Hér norðan heiða, nánar tiltekið á Akureyri, ekur einn af þessum "höfðingjum" um á sínum glansandi fína Range Rover, hans fyrrverandi á sínum glansandi fína Land Rover og "heimasætan" á sínum glansandi fína VW.  Ekki veit ég hver á aðra fína bíla sem standa stundum við hús þeirra.  Frúin fyrrverandi á víst flotta húsið við Eyrarlandsveg, auk þess sem hún er sögð eiga heilsurækt við Strandgötu, sem er víst ein sú fullkomnasta á landinu, segja sögur.  Fyrir nokkrum vikum var þessi "höfðingi", að sögn fréttamiðla, lýstur gjaldþrota og fluttur til Rússlands.  Hér talar fólk um að hann sé í heimsókn á Akureyri og hugi að sínum "fyrirtækjum".  Þegar "venjulegt fólk" liggur andvaka, sefur þessi "höfðingi" væntanlega rótt í sínu stóra og fallega Höepfnershúsi við Hafnarstræti og lætur sig dreyma um uppbyggingu á sínum fyrirtækjum, sem sögð eru komin á "trygg nöfn".  Það er víst komið í tísku hjá þessum "útrásarhöfðingjum" að fara í mál við fólk sem ræðir þeirra "viðkvæmu private-mál", enda virðast þeir hafa lagabókstafinn með sér, ekki ég eða þú.

Já, þessir "höfðingjar" lifa víst ekki sama lífi og ég og þú og annað "venjulegt fólk" enda voru það þeir sem komu Íslandi víst á "heimskortið" og það þarf víst að borga mikið fyrir þá auglýsingu. 

Sennilega endum við flest, þessi venjulegu, í tjöldum á Austurvelli eða Ráðhústorgi, það er víst orðið ódýrt fyrir þessa fyrrum "útrásarvíkinga" að kaupa eignir á Íslandi í dag, þeir gerast bara "innrásarvíkingar" og þjóðin borgar enn og aftur. 

Páll A. Þorgeirsson (IP-tala skráð) 6.9.2009 kl. 12:24

2 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Sorrý frænka mín,ég er bara ORÐLAUS:o(

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 6.9.2009 kl. 20:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

33 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband