Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007
8.11.2007 | 15:43
Heimshornaflakkarinn á förum
Er að skella mér til Slóveníu (á eftir). Verður nett helgarferð og ætla ég ekki að lofa því að vera blá-edrú allan tímann
Í stað þess að þeyta börnunum út um allan bæ í gæslu, þá "flytur" frænka mín til okkar.
Farið varlega...
Helga flakkari
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2007 | 18:47
Hver er maðurinn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2007 | 14:47
hey! en hún er hvort eð er ónýt!
í alvöru...ég horfði á síðasta þátt og þá lenti hún í því (í myndinni) að vondikallinn náði að skera í hana og peysuna...svo peysan er ónýt...
það er kannski þess vegna sem þeir vilja fá aðra peysu?!
Mér finnst þetta bara bera vott um metnað...segi ekki annað. Styð þessa Védísi (þó ég viti ekki hver hún er)
Íslenskur hönnuður beðinn að stela danskri glæpapeysu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2007 | 13:26
fréttaþulur á rúv
Ég ætlaði sko að sækja um starfið sem fréttaþulur á rúv. Fór að lesa og skoða inntökuskilyrðin og þegar ég var búin að fara í gegnum þann pakka, ákvað ég að vera ekkert að því.
Til að fá starf sem fréttaþula, þarf maður að uppfylla svakalegt skilyrði, það er að geta dregið að sér andanum....svona *áinnsoginu*, halda því inni í ca 5 sekúndur, eða á meðan stefið er, og geta lesið alla fréttina án þess að anda og í einni belg og biðu...prufaðu...dragðu andann djúpt og lestu þetta án þess að draga andann...
*Aðgerðlögregluyfirvaldavegnakomunorrænnafélagaívélhjólasamtökunum HellsAngelstillandsinserlokiðAðgerðinvarmjögviðamikiloggangurhennarallur samkvæmtáætlunsegirítilkynningufráríkislögreglustjóraFréttastofanAPsegir fráþvíaðsjálfsvígsáráshafiveriðframiníverksmiðjuþarsemafganskirþingmenn ogættbálkahöfðingjarvoruískoðunarferðAðminnstakostisexerulátnirþarafeinn þingmaður.*
Nei, ég segi bara svona....ég missi allavega alla athyglina þegar maður heyrir ekki skilin á milli frétta eða skilin á milli orða! Svo eru þau að flýta sér svo mikið að manni líður eins og maður sé orðinn allt of seinn!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.11.2007 | 09:23
GPS og góður útbúnaður
Hvað varð um svoleiðis græjur? Nóg er úrvalið!
Held að fólk verði að átta sig á því að það ÞARF að fara vel útbúið á fjöllin, sama hversu vel þessir aðilar þykist kunna landsvæðið, maður veit aldrei hvað gæti gerst. Eins og máltækið segir, Vona það besta en búast við því versta.
Fegnir að fá frí frá rjúpnaveiðimönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.11.2007 | 12:19
sú eina sanna
ég átti mjög skemmtilegt símtal í vinnunni nú í morgun. Það hringdi maður til að athuga stöðu á sendingu til Suðureyrar. Ég vissi hver maðurinn var, þekkti hann fyrir margt löngu en ég var svosem ekkert að upplýsa það á staðnum. Ég sagði við þennan einstakling (sem ég hef ekki hitt í 11 ár) að ég skyldi hringja í hann til baka um leið og ég finn út hver staðan væri á sendingunni til hans.
Ég finn svo út stöðuna og hringi til baka og kynni mig fullu nafni. Það kom hik og hann spurði aftur: "fyrirgefðu, hvað sagðistu heita?" Ég svara því auðfúslega og vissi að hann hefði kannast við mig á eftirnafninu. Þá spyr hann aftur: "ha...sú eina sanna?!" En það er einmitt heitið mitt hér á blogginu...sú eina sanna. Það er víst engin alnafna hér á landi svo ég er sú eina og sanna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.11.2007 | 10:43
Frábær söngkona
Langar að sjá norðurljósin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.11.2007 | 10:40
Friðarþorpið fyrir austan fjall
Svei mér þá, ég held barasta að það sé allt að verða vitlaust þarna fyrir austan. Ekki er ýkja langt síðan að þetta var hálfgerður svefnbær og allt voða rólegt. Svo ákveða einhverjir snillingar að best væri að byggja upp gott þorp í stóran bæ, Selfoss og Hveragerði og selja lóðir fyrir lítið. Jú, ráðhagurinn heppnast, margir byggja og flytja og í kjölfari af því virðist eins og þetta dópistalið hafi ætlað að ná einhverjum markaði þarna og síðan hefur allt verið í hers höndum! Endalausar fréttir þarna á Selfossi um líkamsmeiðingar, dóp, ölvun, hraðakstur svo eitthvað sé nefnt.
Ég er ekki að halda því fram að Reykjavík er eitthvað skárri, síður en svo...bara ótrúlegt að þessir hálfgerðu svefnbæir skuli allt í einu rísa upp á afturlappirnar með látum.
Sex handteknir í kjölfar húsleitar á Selfossi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
2.11.2007 | 15:44
nett spaug!
sem getur endað með ósköpum ef hann verður fundinn sekur.
Mig undrar það að þessi Svíi skuli ekki hafa áttað sig á því hvað bandaríkjamenn eru miklir bananar!! Ef maður myndi voga sér að segja "BÚH" við ameríska löggu, þá verður maður skotinn til bana!! Þetta vita allir...og Svíar ættu að vita þetta líka
Svíi ákærður fyrir að ljúga upp á tengdason sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.11.2007 | 11:26
í góðum sköpum
Hraðaksturinn ekki jafn slæmur í mílum talið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
325 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín