. - Hausmynd

.

Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2007

arg garg og argaþras

Það er ótrúlegt hvað eitt leiðir af öðru, alveg búin að sjá það að maður stjórnar lífi sínu akkúrat ekkert. Við erum eins og strengjabrúður í þessum heimi.

Í febrúar á þessu ári ákvað ég að rífa mig upp á ras$%&/$#" og koma mér í form. Auðvitað var hrikalega erfitt að byrja og allt það...er bara þannig þegar maður hefur verið í lægð. Í raun ákvað ég þetta ekki sjálf, heldur DA vinkona mín. Hún gerði ekki annað en að senda mér sms um það að ég eigi að koma mér af stað. Hótaði að láta einkaþjálfann sinn hringja í mig og koma mér af stað. Ég átti ekki sérlega mikið von á því að einkaþjálfinn HENNAR myndi hringja í mig svo ég hló að þessu. Ekki leið á löngu þar til ég fékk símtal (sennilega 2 klst frá síðasta sms-inu). Jú, passaði, einkaþjálfinn hennar hringir og peppar mig upp í það að kíkja við í ræktinni og skoða málið.

Þar sem ég fékk svo mikla hvatningu frá DA ákvað ég að láta slag standa og mæta í ræktina. Fór með blendnu hugarfari, hef ekki mikinn áhuga á að vera innan um alla hina kroppana sem eru svo flott og fitt, það væri bara til að skemmta hinum með minni nærveru Blush

Þessi ágæti einkaþjálfi reyndist mér rosalega vel, hélt vel utan um allt og hvatti mig áfram allan tímann. Kílóin fuku eitt af öðru og þegar upp var staðið, voru ein 17 kíló farin Grin og fullt af sentímetrum. Fataskápurinn var orðin eitthvað skrítinn, engin föt pössuðu og vildi ég ekki fara strax af stað að kaupa föt þar sem ég átti eftir að reita af mér "örfá" kíló til viðbótar!

Svo kom sumar og Helga litla var bara erlendis.is og sinnti ræktinni lítið. Tók sig á aftur og byrjaði á fullu í ágúst. Allt virtist vera að smella og maður bara orðinn afskaplega hamingjusamur með lífið og tilveruna og einhvernvegin í stakk búin til að takast á við allt.

24.september síðastliðnum lendi ég í hörku árekstri. Keyrt aftan á mig á fullri ferð (en ég var stopp) og ég endasendist á annan bíl svo úr varð 3 bíla árekstur. Mér fannst þetta nú ekkert mál þann morgun, en eftir hádegið fer ég á slysó þar sem ég var farin að kenna til í öxlinni og hálsinum. Næstu dagar á eftir var maður í LYFJARÚSSI þar sem meiðslin virtust hafa haft meiri afleiðingar en maður átti von á.

Nú 7 vikum síðar er ég enn nánast óvinnufær, hætt í ræktinni þar sem ég má ekkert taka á, stunda sjúkraþjálfun 2-3x í viku og er gjörsamlega farlama. Hef ekkert geta stundað blakið mitt sem mér finnst svo skemmtileg íþrótt og í hvert sinn sem klukkan slær "blak", á ég mjög erfitt með að vera til...langar svo að stökkva af stað á æfingu. Verkirnir eru enn óbærilegir, svefnvana, þreytt og orkulaus. Þetta ástand fer að minna mig á þegar Dísin mín var veik og ég þurfti að standa vaktina 24/7. Ég komin með vott af þunglyndi sem gerir það að verkum að ég er hætt að hugsa um útlitið, fatnaðinn og það sem er verst í þessu öllu saman er að ég er farin að draga fram fötin sem ég var búin að pakka niður vegna stærðar!!!! W00t

Ég bara VERÐ að ná mér upp úr þessum pakka. Dreymir um verkjalausan dag....en það eru víst bara draumar. Reyni að hanga í vinnunni....en ég næ ekki að vinna fullan dag ennþá. Þarf aðstoð við alla mögulega hluti og það er ofsalega erfitt að viðurkenna það, hef alltaf verið mjög sjálfstæð og vil gera allt SJÁLF! Sjúkraþjálfinn hvetur mig til að mæta í blakið þegar ég er sæmileg en gæta þess að fara varlega...ekki endilega vera í framlínu og reyna við smössin. Ég veit ekki...hef reyndar ekki mætt lengi lengi þar sem ég hef verið svo slæm af verkjum.

Það versta við þetta allt saman er að þessi veikindi sjást ekki...þess vegna tekur enginn eftir þeim. Ég græt í hljóði en næ mikið að gráta utan í Stefán mínum sem hefur sýnt mér ótrúlega þolinmæði og samúð. Alveg með það á hreinu að hann þarf að standa vaktina enn oftar og gera enn meira en hann hefur gert (og var hann samt duglegur fyrir). Þetta finnst mér ótrúlega erfitt að viðurkenna...en verð!

Ég bara HLÝT að fara að sjá ljósið...ég trúi ekki öðru...þessi einusinni 17 kíló verða að nást aftur og miklu meira en það.....

HILFE!


full tilhlökkunar

Er að "lesa" Konungsbók eftir Arnald, langt komin svo nú er bara að bíða spenntur eftir að þetta komi út í hljóðbók svo maður geti haldið áfram að "lesa" Kissing
mbl.is Sviðakjammar og pönnukökur í tilefni Harðskafa Arnaldar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 10
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 49
  • Frá upphafi: 259705

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

237 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband