. - Hausmynd

.

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007

Lápur, Skrápur og Jólaskapið

Ég fór með þær yngri á þetta fína jólaleikrit, Lápur, Skrápur og Jólaskapið. Það var ekki laust við að maður fór í smá jólaskap við að horfa á þetta. Börnunum fannst þetta æði. Það sem gerði þetta hvað skemmtilegast var að maður var "á" sviðinu við að horfa á þetta leikrit. Leikararnir voru í nokkra sentímetra fjarlægð sem gerði það að verkum að maður fann meiri tilfinningar en þegar maður situr í fínum og flottum leikhúsum. Þetta leikrit ættu allir foreldrar að fara með börnin sín á. Einstaklega skemmtilegur og lifandi leikur og ekki skemmti að krakkarnir fengu að hitta Láp, Skráp og Sunnu á eftir og ræða öll heimsins málefni við þau.

 

Canon 307 (Large)

Sunna & Sunna

Canon 312 (Large)

Sunna, Skrápur og Lápur (með könnuna)

Canon 317 (Large)

Sunna að fá jólaöl hjá Lápi


Notalegur jólaundirbúningur

Ég ætla að breyta út af vananum hvað varðar jólastress og fara með krakkana á sýninguna Lápur, Skrápur og Jólaskapið. Þessi sýning er í kvöld sem við ætlum á og ætla ég svo sannarlega að njóta þess að fara frá öllu draslinu sem er heima og njóta samvistanna með börnunum mínum á rólegum nótum. Maður má víst ekki gleyma yngstu kynslóðinni, hún má ekki alast upp í einhverju stressi og kvíða hvað jólin varða. Hvað tiltektina varðar....þá fer það ekki langt...og ég geri þetta bara þegar börnin eru komin í ró Joyful

Náttúruleg fjölgun eða innflutningur!

Okkur finnst þetta há tala. Staðreyndin er sú að þessi fjöldi er í höfuðborginni Ljubljana í Slóveníu. Samt er Slóvenía ekki nema 1/5 af Íslandinu góða og þar er meira að segja nokkuð strjálbýlt eins og hér. Ekki það að ég vilji hafa yfir 300.000 í höfuðborginni einni saman....þá fyrst er ekki hægt að "skreppa" inn í Reykjavík Shocking

Gaman væri að vita hversu margir aðfluttir útlendingar væru í þessari tölu. (á heildina litið) Ég er ansi hrædd um að sú tala séu ansi margir þúsundir FootinMouth


mbl.is Íslendingar orðnir 312 þúsund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dýrkeypt mistök

Mistök eru mannleg og allt það. En spáðu í því að þeir högnuðust um 30 millur á þessari kerfisvillu og þetta er allt peningur sem átti að renna til BANKANS W00t Sjáðu hvað þeir græða á HVERRI MÍNÚTU!

"Fólkið notaði netbanka til að kaupa dollara fyrir evrur og seldi síðan strax aftur fyrir evrur. Kerfisvillan gerði það að verkum að mennirnir fengu í sinn hlut álagsgreiðslur, sem áttu að renna til bankans.   Fjórmenningarnir högnuðust um alls 30 milljónir króna"

Ég segi nú bara HÚRRA fyrir þessum einstaklingum að opna augu okkar hinna um hvað bankarnir eru stórtækir í sínum viðskiptum. Þetta er spurning um hver er að stela af hverjum hér GetLost


mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir að nýta sér kerfisvillu banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

meðferð!

Þeir mega líka skammast sín þessir bandaríkjamenn fyrir að koma svona fram við fólk almennt. Það eru alltaf fleiri og fleiri að koma með svipaðar sögur fram í dagsljósið og fær maður ónotahroll þegar maður heyrir af fleiri málum. Það er bara ekkert víst að allir þoli svona meðferð og sumir jafnvel bera aldrei þess bætur að hafa fengið svona meðferð eins og sem Erla Ósk fékk um daginn. Undecided
mbl.is Harma meðferðina á Erlu Ósk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennsla í akstursháttalagi við hraðahindranir

Ég get ekki skilið það þegar maður kemur að hraðahindrunum að þá er eins og fólk eigi lífið að leysa og gerir ekkert annað en að vekja gremju hjá öðrum.

Eins og svo oft áður, þá þarf bara örfáa til að skemma fyrir öllum hinum svo hér er um að ræða einstaklinga en ekki alla ökumenn.

Þegar maður kemur að hraðahindrun sem er þrengin frá öðrum kanntinum og að miðju götunnar, þá er alveg ljóst að aðeins einn bíll á réttinn. Það er ekki spurning hvor kemur fyrr að hraðahindruninni heldur hvoru megin er þrengingin.

Í morgun var ég nærri lent í árekstri við bíl á hraðahindrun þar sem ég átti klárlega réttinn en hinn ökumaðurinn virti ekki þann rétt og enduðum við tveir bílarnir inn í hraðahindruninni sem er aðeins gerð fyrir einn bíl. Um er að ræða klára frekju hjá hinum ökumanninum og þar sem þessi einstaklingur sýndi ekkert annað en frekju, ákvað ég að gefa mig ekki því ég þoli ekki frekju. Ég vil ekkert frekar en að umferðin gangi eins og "tannhjól" en því miður er aksturslag íslenskra ökumanna ekki í samræmi við það. Við þurfum jú ÖLL að líta í eigin barm (og að sjálfsögðu ég líka) og hugsa aðeins fram í tímann.

Ég ákvað að teikna upp eitt slíkt dæmi um hraðahindrun frá öðrum vegarhelmingnum.

Hér kemur smá kennsla. Myndirnar tala sínu máli

hindrun a-b

 

hindrun a-b-arekstur

 

hindrun a-c

 

hindrun a-c2

 


enn og aftur sögur af frægafólkinu

Ég hef nú ekki verið mikið gefin fyrir að lesa slúðrið um frægafólkið en auðvitað hefur maður gluggaði í eitt og eitt blað. Alveg sló það mig út af laginu í gær þegar ég beið eftir afgreiðslu í Eymundsson að þá sá ég blað sem ég man ekki nafnið á og utan á því var þessi marg um talaða Britney Spears. Ég ákvað að glugga á meðan ég beið og rak þá augun í fyrirsögnina "Britney orðin ólétt af 3 barninu sínu". Þetta fannst mér of mikið svo ég lagði blaðið frá mér aftur..... Shocking
mbl.is Britney á biðilsbuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starbucks er jú ágætt.....eeeen

Fór á þetta marg-um talaða Starbucks í Hong Kong núna í nóvember. Jú, voða sætt og notalegt kaffihús, kaffið á viðráðanlegu verði, ágætt að sötra á og allt það. Mér finnst það ekkert betra/verra en mörg önnur kaffihús sem ég hef farið á hér á landi.

Það sem gerist þegar/ef Starbucks kemur hingað, er einfaldlega að rekendurnir af sjoppunni, munu okra svo svakalega á landanum (eins og 90% annarra fyrirtækja hér á landi) að maður verður tekinn í þurrt BÍB á staðnum Shocking Mig langar ekki að setjast niður á okurhús...ég meina kaffihús þar sem kaffibollinn kostar fúlgu fjár! Undecided

Ég hef heyrt að Starbucks muni aldrei selja keðjuna heldur opna nýtt hús og láta svo aðra rekstrar aðila reka það. Mér finnst það mjög sniðugt og styð það svo sem. Hinsvegar er verðið gefið frjálst og það er notað til hins ýtrasta.


mbl.is Ræðir við Starbucks um opnun á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert í óhófi

Potterinn sjálfur segist "ekki ætla að kaupa neitt óhóflega dýrt" fyrir peningana sem frúin í Hamborg gaf honum. 270 millur er nú ekki neitt Shocking Drengurinn alveg innan skekkjumarka....svona miðað við lifnaðarhátt sumra frægra einstaklinga Whistling
mbl.is Potter kaupir penthouse-íbúð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í strumpalandi

.....Skyldi Halli og Laddi vita af´essu? LoL (eru þeir ekki umboðsmenn strumpanna....bwahaha)


mbl.is París móðgaði tvo strumpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 259667

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

242 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband