. - Hausmynd

.

hollur morgunverður

Ég skellti mér í ræktina í morgun eins og alla aðra miðvikudaga. Eftir ræktina ákvað ég að fara á Wellnes café og láta hræra fyrir mig í morgunmat. Ég bað um eitthvað sem heitir bragðarefur og í honum er eftirfarandi:

 

2 msk ananas brytjaður

2 msk jarðaber söxuð

2 msk melóna (gul) söxuð

2 msk all bran

2 msk haframjöl (solgryn)

1 msk hörfræ

2 msk rúsínur

1 msk hnetur

1/3 dolla af KEA skyr bananasplitt (stór dolla)

200 ml Sojamjólk

nokkrir klakamolar

allt sett í blandara og mixað. Gosh....þetta var hrikalega gott. Ef maður vill meira prótein er gott að setja 1 msk af hreinu próteini með.


Ég er í svo miklu stuði.....

Við þetta var ég vakin kl 6:30 í morgun. Litla daman alvega að andast úr spenningi yfir að eiga afmæli í dag. Syngjandi kát fór hún fram og dró pabba sinn með til að fá morgunmat. Strunsað í leikskólann í spariklæðnaði og minn á það hressilega að Í DAG ætlum við að fara og láta setja göt í eyrun. Wink

sagan af hafnfirsku ljóskunni

Viktoría hringdi í mig og bað mig ótrúlega fallega um að koma með sér í Kringluna, nánar tiltekið í La Sensa til að kaupa einhvern sérstakan haldara þar sem hún er að fara á árshátíð. Ég gerði smá díl við hana að ef hún myndi sækja litlu systur sína á leikskólann og fara með henni í strætó út í Garðabæ, myndi ég sækja þær þangað og halda beint í Kringluna. Þetta varð að díl og beið ég eftir símtali frá henni um kl 16. Svo hringir daman og þær komnar í Garðabæinn svo ég skellti mér út og sótti þær. Ég vildi endilega byrja á því að fara í HB búðina á Strandgötunni í Hafnarfirði í þeirri von að ég þyrfti ekki inn í Kringlu á þessum tíma. Jú, við fórum í HB búðina og þar var ekkert að finna sem hentaði þessari dramatísku. Þegar ég lít á litlu dömuna sé ég að hún var bara á sokkabuxunum einum klæða undir úlpunni (peysa innan undir). Ég spyr hana hvað hafi orðið af pilsinu sem hún fór í um morguninn og svarið sem ég fékk var einfalt.....bara GLEYMDI að setja hana í pilsið!! Blush Dööööh, ég skammaðist mín ofan í tær að fara með krakkann í Kringluna svona út-lítandi. Ég fór samt og reyndi að draga úlpuna vel niðurfyrir rass. Ég gafst upp og strunsaði í Zöru í Kringlunni og fann þar voða fallegar jogging buxur á 795kr sem ég vippaði henni í. Þar sem þetta er svo mikið písl, varð ég að taka stærð 4-5 ára og þurfti meira að segja að bretta uppá skálmarnar þar sem hún dró þær á eftir sér Errm. Ég sá svo peysu sem var í stíl við buxurnar og lét það eftir mér að kaupa hana líka en hún var á 995kr. Jæja, krakkinn var kominn í föt svo ég gat haldið áfram að versla. Enduðum svo leiðangurinn í Bónus að kaupa inn fyrir afmælið á morgun.

Allt er gott sem endar vel Joyful


Ég er bara fimm ára og kenna á því fæ.....

Við þetta lag vakti ég litla skottið mitt í morgun. Á morgun verður örverpið mitt 5.ára og hún er að deyja úr spenningi yfir þessu öllu saman.

Við vorum að skipuleggja afmælisveisluna og komumst að þeirri niðurstöðu að hún vildi bjóða vinkonum sínum í Veröldina Okkar í Smáralindinni. Við tíndum til nöfnin á vinkonunum og bjuggum til boðskort og keyrðum þau út. Eftir smá ígrundun áttaði hún sig á því að hún hafði ekki keyrt boðskort út til tvíburafrændsystkina sinna og heimtaði að ég gerði annað kort handa þeim. Ég var að reyna að rökræða við hana að þau væru bara eins árs ennþá og þau væru of ung til að koma í Veröldina Okkar. Hún horfði á mig með þvílíkum hneykslis svip og sagði svo: "Mamma, þau verða nú tveggja ára í SUMAR" Angry. Ég átti ekki orð yfir þessu svari þar sem ég hafði ekki hugmynd um að hún vissi hvenær þau áttu afmæli svona yfir höfuð og þess þá heldur að hún áttaði sig á því að þau væru að verða tveggja FootinMouth. Eftir smá rökræður féllst hún á það að fá að bjóða þeim heim á morgun í afmælið sitt. Hún ætlar að hringja í þau í kvöld og bjóða þeim persónulega ásamt hinum frænkunum og frændunum Joyful.

Næst fórum við að rökræða hvað hún gæti hugsanlega fengið í afmælisgjöf. Ég hef oft strítt henni á því að hún fái bara nærbuxur frá mér í afmælisgjöf og örugglega frá afa sínum líka. Hún verður alltaf jafn reið þegar ég byrja, þolir ekki þennan nærbuxna brandara Tounge. Svo sagði ég við hana: "jæja Sunna mín, hvað heldur þú að þú fáir í afmælisgjöf frá vinkonum þínum eða frænkum og frændum?" Þá kom svarið hratt og hátt: "EKKI NÆRBUXURGetLost, bara pony eða bratz eða barbie". Cool

Nú er bara að undirbúa afmælisveislu annað kvöld. Ég held ég hafi veisluna bara kl 17, hafi þá bara mat. Finnst það vera betra en kökupartý....það er svo fitandi Tounge

 


GRA 1389

það er svo erfitt að vera ég! og minn maður þarf sko að hafa sterk bein til að geta verið með mér Pouty.

Eftir að ég kláraði Frumgreinadeildina í HR um jólin, áttaði ég mig á því að allur heimurinn stendur opinn fyrir mér með þetta nám á bakinu. Smám saman hefur þessi krókur sem ég hef haft í Byggingartæknifræðina, beygst smám saman. Nú er það orðið svo að hann er farinn að beygjast í aðra átt! Ég fór að líta í kringum mig og fór í "naflaskoðun" hjá sjálfri mér og komst að þeirri niðurstöðu að gerast byggingartæknifræðingur er kannski ekki sá "challange" sem ég er að leita af. Ég ákvað að hugsa aðeins frekar og komst skyndilega að þeirri niðurstöðu að kannski ætti ég bara að sækja um í grafískri hönnun hjá Listaháskóla Íslands. Ég fór að lesa mig til í gær og komst skyndilega að síðasti séns til að sækja um skólavist þar var fyrir klukkan 16, föstudaginn 23. mars W00t. Ég ætlaði þá bara að gefa þetta upp á bátinn og hætta þessari vitleysu.

Ég talaði við eina af mínum bestu vinkonum og hún peppaði mig upp í það að gera þessa möppu hratt og örugglega, ég bað hana um að koma og aðstoða mig. Hún kom strax og í sameiningu náðum við að gera þessa ágætis möppu. Svo sagði hún mjög athyglivert við mig sem fékk mig til að hugsa. Hún sagðist alveg geta séð mig í svona námi þar sem ég hef allt mitt líf helgað mig einhverskonar listum. Þetta gæti ekki verið meira rétt hjá henni, ég áttaði mig allt í einu á því. (betra er seint en aldrei). Kannski hef ég lokað þetta frá mér þar sem enginn í fjölskyldunni er eitthvað í listum, ég vildi ekki vera eitthvað afbrigðileg! (ekki það að mörgum finnst ég STÓR skrítin Tounge, það er ekkert að marka alla þá sem halda því fram Cool) En hún amma mín í föður ætt er ótrúlega flink með pensilinn og ég elska allar myndirnar sem hún hefur málað í gegnum tíðina. Hefði gefið heilan helling fyrir að eignast fleiri af þeim en gamla vill ekki selja FootinMouth.

Í dag skrölti ég svo með svarta A2 möppu og upp rúllaðar model-myndir úr Myndlistaskólanum í Reykjavík í LHÍ. Þegar ég kom þangað sá ég að ég var MJÖÖÖG aftarlega á merinni. Það var biðröð eftir að komast að borðinu og þegar ég fór að líta í kringum mig, sá ég að þær sem voru að skila inn höfðu gert ALVÖRU möppu...semsagt, tekið ljósrit af öllu því sem þær ætluðu að tjalda, skalað niður/upp á A3, sett forsíðu, plast með einhverskonar mynd og látið gorma allt inn Frown. Mér leið eins og ég hefði mætt í gallabuxum á galakjólakvöld Blush. Ég reyndi að halda höfði og á möppuna mínu "fínu" var skellt hvítum miða og á hann skrifað: "GRA 1389" sem er númerið mitt.

Ég geri mér ekki miklar vonir um að komast inn. Mér skilst að einungis 10% þeirra sem sækja um, komast inn í skólann. Hverjar eru líkurnar á því að ÉG komist inn? Crying. Ég gæti kannski komist inn á þeim forsendum að hafa verið með "frumlegustu möppuna".......eða EKKI. GetLost


Þar af leiðandi...

Nú er ég komin í hring með annað orða samhengi. Nú get ég ekki áttað mig á því hvort er hvað svo þar AÐ leiðandi leita ég til ykkar sem gætuð vitað þetta hvort er réttara að segja: "Þar AÐ leiðandi eða þar AF leiðandi"!! GetLost

gleraugnaglámur

Það var hringt í mig úr leikskólanum í gær og sagt að barnið hefði brotið gleraugun sín. Ég ákvað að anda með nefinu og beið eftir að mínum vinnudegi myndi ljúka og fara svo og ná í stelpuna.

Sótti hana og sá gleraugun hennar. Hún hafði brotið spöngina sjálfa, hún var þannig brotin að ekki var séns að gera við þau. Ég ákvað að fara samt með þau í Sjónarhól og láta kíkja á þau þar sem gleraugun hennar eru ekki einu sinni orðin 3 mánaða gömul Frown. Þar fengum við þær fréttir að ekki væri hægt að gera við þau. (Ekkert sem ég ekki vissi...en vildi samt láta á reyna). Þau áttu eina spöng eftir sem er alveg eins og hennar. Ég varð að láta slag standa, ekki var hægt að hafa krakkann gleraugnalausan Shocking. Ég vissi það alveg að þetta er ekkert fríkeypis svo ég tjaldaði kortinu mínu á borðið og beið eftir upphæðinni. Konan sem afgreiddi mig fannst þetta jafn súrt og mér og ákvað að ég fengi veglegan aflsátt af þessu öllu, þurfti einungis að borga 2900kr LoL. Ég borgaði með GLÖÐU, þakkaði fyrir og fór út....með NÝ gleraugu. (þau settu reyndar gömlu glerin í) Mæli hiklaust með þeim í www.sjonarholl.is

ólátabelgur

 


fokið út í veður og vind

þetta er akkúrat það sem gerðist fyrir framan okkur á Teiknistofunni. Við vorum í mestum makindum við að teikna þegar samherji minn segir við mig að þakið á húsinu við hliðina á sé að koma í heilu lagi inn til okkar W00t. Við nánari athugun út um gluggann sáum við þar sem þakið var í bókstaflegri merkingu var að fjúka af. Þetta er hús sem brann í síðustu viku eða þar-síðustu og voru smiðir byrjaðir að laga þakið sem þurfti að rjúfa til að ná að stöðva vaskan framgang eldsins. Þeir höfðu ekki lokið þeirri vinnu og fóru frá húsinu hálf kláruðu. Það kom þeim aldeilis um koll núna. Við ákváðum að best væri að hringja í lögregluna áður en mikill skaði skeður. Klukkustund síðar var byrjað að reyna að negla niður þessar þakplötur sem eftir voru.

Við vorum ósköp fegnar því á stofunni að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af þaki nágrannans Wink

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1257363


mbl.is Skjólborð fuku af vörubíl á tvo fólksbíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.10.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 260766

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

78 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband