. - Hausmynd

.

heilræði dagsins í dag

Það eru margar leiðir til þess að leysa hvert verkefni og sú rétt sem við trúum á.


heilræði dagsins

Við getum aldrei verið svo öllum líki, þess vegna gildir það að vera sjálfum sér samkvæmur og vinna í sátt við sjálfan sig.

sleggjudómar

 Oft hef ég velt því fyrir mér afhverju maður er allaf að láta aðra hafa áhrif á mann. Afhverju getur maður ekki gert það sem maður vill án þess að hafa áhyggjur af því hvað aðrir segja?12 ára dóttir mín er með “stafrófið” af greiningum frá hinum ýmsu læknum. Hver læknir er sérfróður á sínu sviði og ég efa það ekki að þeir viti hvað þeir séu að segja. Þó svo að hún sé kannski ekki með verstu tilfellin í sumum greiningunum, þá er hún samt með þann veikleika og maður þarf að umgangast það eftir kúnstarinnar reglum.Til dæmis í morgun þá sá hún stóru systur sína með tösku sem Dísin á sjálf og fékk í jólagjöf í fyrra. Hún hefur t.a.m. aldrei notað þessa tösku sjálf. Hún var sett í skápinn með hinum töskunum fljótlega sem eru staðsettar í þvottahúsinu. Systirin hafði margoft notað þessa tösku en Dísin aldrei tekið eftir því fyrr en nú í morgun. Hún þvertók fyrir að leyfa systur sinni að nota töskuna. Það voru einungis 5 mínútur þar til skólinn átti að byrja og það tekur mig 3 mínútur að keyra í skólann. Ég sagði við hana að klukkan væri það margt að ekki væri hægt að skipta töskunni út og við yrðum að fara að hraða okkur. Þetta var ekki tekið gott og gilt og endaði í gráti og leiðindum. Þarna kom fram þráhyggjan sem tekur á sig skrítnar myndir. Stundum er maður ráðþrota hvernig maður á að “tækla” slíka röskun eins og þráhyggjan er þar sem rökræður duga nánast aldrei. Árátturöskunin er líka erfitt að meðhöndla þar sem hún gerir hlutina án þess að átta sig á því. Sumir segja þetta firru en þar sem ég er móðir hennar og umgengst hana á hverjum degi hlýt ég að vita eitthvað um málið….ekki satt.Ég er ein af þesssum “vondu” mömmum sem gef dóttur minni lyf. Ég hef henni þau ekki svo hún verði þæg og góð heldur til að hún nái einbeitingu í skólanum og hafi samskipti við jafnaldra sína. Eftir að hún byrjaði á lyfjunum hefur hún sýnt ótrúlegar framfarir í námi og þroska. Betur má ef duga skal og er þessum ferli langt frá því lokið. Margir þeir sem ekki þekkja almennilega til, finnst við foreldrarnir ekki nógu “ábyrgir” þar sem við kusum að gefa henni lyf í stað þess að nota aðrar lausnir. Við vorum búin að prufa aðrar lausnir en þær dugðu skammt.Fordæmingarnar eru með ólíkindum og þegar maður ræðir þessi mál við þá sem ekki þekkja til, fær maður feedback á þeim forsendum að aldrei myndi viðkomandi gefa barninu sínu slík lyf. Ég vil því segja við þá sem þekkja ekki svona dæmi. Hugsið áður en þið sláið sleggjudómum. Verið fegin að vera ekki sjálf í þessum pakka. Njótið þess að vera til og eiga börnin ykkar. Það er ekkert sjálfsagt í þessum heimi að börnin lifi mann, eignist heilbrigð börn eða hvað þá að eignast börn yfir höfuð.

einn.....tveir...............

úff...afskaplega er ég fegin að vera í starfinu sem ég er í núna heldur en að ver að telja fugla Shocking

einn.....tveir...............

úff...afskaplega er ég fegin að vera í starfinu sem ég er í núna heldur en að ver að telja fugla Shocking
mbl.is Allt með felldu í vetrarfuglatalningu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins

Þetta er AKKÚRAT það sem ég hef sagt lengi vel. Ég hef oft verið talin fljótfær (viðurkenni það aldrei) og nú er þetta orðið skjalfest....best er að hugsa ekki of vel um það heldur að stökkva á það Grin
mbl.is Skyndiákvarðanir geta stundum reynst vera þær bestu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

McNaug

Ekkert smá flott. Ég sá hana í morgun, himininn ótrúlega fallegur og svo sá ég þessa skrítnu stjörnu og halann hennar. Blótaði því í hljóði að hafa ekki þessa fínu myndavél mína svo ég hefði geta hlaupið út með þrífótinn og tekið myndir......
mbl.is McNaught-halastjarnan björt á himni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svakalegt

Mér finnst þessi frétt svakaleg. Þetta er kannski langt í burtu...en vá.... 3600 manns á einum mánuði er náttúrlega bara hrikalegt Woundering
mbl.is Mengun dregur fjölda íbúa Teheran til dauða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Okt. 2025
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.10.): 6
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 260776

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

77 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband