. - Hausmynd

.

Quality moment

Litla systir (4.ára) hefur verið hjá okkur síðan á fimmtudag. Hún á margar gullnar setningar og er mjög skemmtilegur krakki. Sunna og Guðrún ná vel saman þrátt fyrir aldursmun en það virðist ekki skipta máli.

Í gær vildi Guðrún fara í tölvuna á meðan Sunna væri í afmæli hjá vinkonu sinni og sat ég með mína tölvu í fanginu og sagði við hana að hún verði að fara í stóru tölvuna í horninu. (Það er borðtölva) Hún jánkaði því og hljóp inn í horn. Skömmu síðar kemur hún alveg niðurbrotin og segist ekki geta farið í stóru tölvuna. Hún er svo þung að hún geti ekki loftað henni!!! Ég er náttúrulega svo mikill púki að ég skelli hló yfir þessu.

Guðrún er af þeirri kynslóð að spurning hvort hún muni þegar hún verði eldri hvernig borðtölvur líti út!?!

Annars höfum við ÓH frænka verið að gera tilraunir í macro-stúdíóinu okkar. Höfum átt alveg yndislegar stundir saman.

Það er gríðarlegt magn af myndum á flickr síðunni minni fyrir þá sem hafa áhuga

Rósarblað
Rós
ávextir

Hvítlaukurinn

Ég fór að prufa að taka macro mynd af hvítlauk. Þetta var fyrsta skotið og tókst svona með ágætum vel. Smile

hvítlaukur

Fríkirkjan í Hafnarfirði

Ég og ÓH erum búnar að vera duglegar að mynda undanfarið.

Skruppum í leiðangur og þar tók ég þessar myndir af Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Skellti mismunandi myndvinnslu á myndirnar. Þið megið dæma sjálf hvað ykkur finnst. Wink

Fríkirkjan í Hafnarfirði er staðsett á:

 Linnetsstígur

og hér eru myndirnar:

Fríkirkjan í Hafnarfirði

 

Fríkirkjan í Hafnarfirði

 

Fríkirkjan í Hafnarfirði


óendanleg myndagleði

Ég og ÓH frænka höfum verið að sjóða saman stúdíó og höfum hertekið stofuna til þess arna. Við erum búnar að eiga frábæran dag og tókst okkur að gera ýmsar tilraunir og læra af þeim. Þegar við vorum búnar að fá nóg í bili af inni myndatökum, skelltum við okkur út fyrir dyr að mynda. Svo komum við heim aftur til að halda áfram í stúdíóinu og gera tilraunir.

Ætla að deila með ykkur nokkrum myndum en fleiri myndir má finna á flickr síðunni minni fyrir þá sem það vilja.

Tréið á Hamrinum
hafnarfjörður
gleraugun mín
hringir
abstrakt kertastjaki
tómatar í Rosendahl flösku!

heilsa, hollusta og gott útlit!

Við skelltum okkur í smá göngutúr í dag í þessu líka dásamlega veðri. Sleðinn var gripinn með til að draga þessa yngstu á og það kom í hlut Stefáns að draga....ég sá um að halda á myndavélinni Tounge

Enduðum svo í kaffi hjá yndislegum hjónum í Mosfellsbæ og fengum að sjá nýja slotið þeirra. Ekki laust við að manni finnist sitt hús óskaplega gamaldags miðað við þeirra!! Pinch

Hér eru svo nokkrar myndir.

göngutúr-10
göngutúr-14
göngutúr-43
göngutúr-3
göngutúr-4
göngutúr-35
Fleiri myndir má finna
 fyrir þá sem vilja fylgjast með

jólarósin

Fyrir jólin kom mamma færandi hendi. Hún kom með jólarós og peppaði mig uppí það að reyna að halda henni á lífi. Ég er fræg fyrir allt annað en að halda blómum á lífi en hef átt eitt blóm í dálítinn tíma sem er enn á lífi.

Nú er ég búin að eiga jólarósina í heilan mánuð og hún virðist ekkert vera farin að fölna. Ákvað að skella mynd inn af fallegum rauðum blöðum.

jólarós


Poker Face!

Þegar maður fær skrítnar hugmyndir í kollinn...þá á maður til að framkvæma þær.

Snéri stofunni við og breytti henni í stúdíó til að geta tekið nokkrar póker myndir. Ekki hvarflaði að mér að sitja fyrir sjálf og ekki er minn maður til í slíka vitleysu svo þessi mállausu voru gripin fram til að pína!!! W00t

Mikki er fyrirsætan og alveg til í að taka smá snúning í póker Wink

póker
mótherjinn var Batman Tounge
póker-2-2

Austurgatan í Hafnarfirði

Tók þessa mynd rétt fyrir jól. Mér hefur alltaf fundist vera mikill sjarmi yfir Austurgötunni. Þessi var tekin frekar seint um kvöld og ný búið að snjóa.

austurgata


« Fyrri síða | Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

199 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband