. - Hausmynd

.

á Kúbunni!

Það voru þreyttir ferðalangar sem opnuðu dyrnar á heimili sínu klukkan að ganga sjö í morgun Sleeping. Flugið var mjög fínt. Við fengum dálítið gott "stöff" hjá einni á heimleiðinni frá Halifax. Pínu kæruleysistöflur Joyful það gerði það að verkum að ég boraði ekki nöglunum í sætið um leið og var einhver ókyrrð og maður varð ekki eins pirraður á að sitja þessa klukkutíma í vélinni. Þetta var 10 tíma flug og ekki veitir af að hafa einhverskonar afþreyingu. Auðvitað var einn flugdólgur á ferð.....það þarf alltaf einhvern einn til að eyðileggja fyrir öllum hinum. Ég gjörsamlega MISSTI mig við hann og hellti mér yfir bjánann og hafði svo áhyggjur af því að fá fallhíf og vera hent út....úff... þetta var rosalegt....en nóg um það. Flugþjónn og freyja spjölluðu heillengi við dólginn og ekki dugði það svo annar flugstjórinn kom og ræddi málinn við kappann. Á endanum var hann settur í gæslu. Settur í gluggasæti og stór og mikill maður við hlið hans til að passa að hann komist ekki langt úr sætinu.

Ferðasagan verður sögð síðar. Eitt er þó víst að hitinn fór ekki niður fyrir 27°c en hékk í 35°c oft á tíðum. Mikið afskaplega varð maður þakklátur fyrir kuldann hér heima þegar maður kom Blush. Svona mikill hiti á ekki við mig. En maður kom sólbrenndur með sveittan skalla heim.....ekki spurning Wink. Set inn myndir við tækifæri.

Helga ferðalangur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Velkomin heim. Ég er búin að sakna þín allan tímann 

Rósa

Rósa Linnet (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 19:22

2 identicon

Velkomin heim! Ég hefði sko alveg verið til í að sleppa við brakandi frostið sem er búið að vera hér undanfarið og fá smá hita í staðinn. 35°C er kannski helst í það hæsta, en samt fínt:) Þið sluppuð nú samt við mesta frostið því það er að hlýna í dag vittu til;) Þvílík hamingja á okkar heimili þegar hitamælirinn sýndi allt í einu + tölu!!

Ég bíð svo ennþá eftir heimsókninni.... ;)

Eyrún Linnet (IP-tala skráð) 22.1.2007 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 259686

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

240 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband