6.3.2007 | 11:41
Incredible woman
Það gekk nú kannski ekki allt upp í gær sem átti að ganga upp . Ég átti að hitta einkaþjálfann minn kl 8:30 og vera þá búin að hita upp í 15-20 mín. Ég kepptist við að koma liðinu út á réttum tíma svo ég fengi ekki refsingu fyrir að mæta of seint. Tók til í töskuna mína, leikskólatöskuna hennar Sunnu og var með auka poka líka. Passaði upp á hádegisnestið mitt og svo frv. Henti öllu út í bíl og þar með talið krökkunum og brunaði af stað. Var orðin of sein svo ég vissi það að ég þyrfti að taka út refsingu hjá þjálfanum en hún felst aðallega í því að taka róður á sem skemstum tíma.
Ég legg fyrir utan Sporthúsið og hentist afturí til að ná í töskuna mína.......en þar var ENGIN taska . Í hamagagninum gleymdi ég að setja mína tösku í bílinn....hún var ENN í fortofunni . Ég sendi þjálfanum SMS og sagði honum hvað hefði gerst og ég LOFAÐI að bæta þetta upp. Ég sný við súr yfir þessum ósköpum en ég var í í þróttafötunum en vantaði bara skóna. Ef ég hefði verið með skóna mína hefði ég skellt mér í ræktina og farið svo bara heim í sturtu og mætt fersk í vinnuna en auðvitað voru skórnir í töskunni.
Stefán minn lenti svo í útkalli þessa nótt svo hann svaf sínu græna heima og ég vildi ekki hringja í hann og vekja hann þar sem ég hafði ekki hugmynd um það hvenær hann kom svo aftur heim. Þessi elska hringir svo um tíu og ég bið hann um að koma með töskuna mína í vinnuna þar sem ég var enn í íþróttafötunum. Ég ætlaði þá bara að skella mér í ræktina eftir vinnu (þó svo að ég hati að fara á þeim tíma). Í hádeginu var ég svo beðin um að færa bílinn minn þar sem flutningabíll þurfti að komast að. Ég greip þá bara töskuna mína og skellti mér í ræktina í hádeginu. Ég fór og puðaði eins og brjálæðingur og hætti ekki fyrr en það mátti vinda hverja flík utan á mér . Var semsagt ótrúlega dugleg. Svo skelli ég mér í sturtu og þegar ég fór að klæða mig, uppgötvaði ég að ég gleymdi hreinum brókum . Ég varð NETT pirruð yfir því og ég segi það sko EKKI hvernig ég tæklaði málið .
Endur nærð fór ég aftur í vinnuna og lagði pirringinn á hilluna, alsæl yfir því að hafa drattast í ræktina þrátt fyrir mótlæti.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
33 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
jessssssssssssss !
DA (IP-tala skráð) 7.3.2007 kl. 11:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.