7.3.2007 | 13:42
klofnar upp að herðarblaði, kafloðnar og kiðfættar
Ég passaði mig sko VEL þegar ég pakkaði ofan í íþróttatöskuna mína í morgun. Fór og setti nærbrók í töskuna svo ég gleymdi henni pottþétt ekki, fann hrein föt og setti í töskuna. Skellti mér í íþróttafötin og var á leið í ræktina í morgun. Leit yfir töskuna til að fullvissa mig á því að ég gleymdi ENGU. Fór aftur yfir töskuna en fann það alltaf á mér að ég væri pottþétt að gleyma einhverju. Tók allt upp úr töskunni og endurraðaða ofan í hana enn einu sinni. Fann ekki neitt sem gæti hafa gleymst. Tek til nestið mitt, börnin mín og bruna út. Pottþétt með íþróttatöskuna.
Skelli mér í ræktina, tók vel á því með þjálfanum mínum sem leist bara mjög vel á árangurinn. Skellti mér svo í sturtu og klæddi mig.......................... Í þetta skiptið gleymdi ég HALDARANUM Maður getur verið svoooooo dofinn stundum að það hálfa væri nóg!
Sem betur fer er ég að vinna á fámennum vinnustað og ég get sökkt mér í vinnu án þess að neinn taki eftir þessum óskunda
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
33 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
Scheisse, ég væri sko farin beinustu leið heim! Frekar væri ég brókarlaus en haldaralaus í vinnunni;) Djííí vona að það þurfi nú samt aldrei að reyna á það;)
Eyrún Linnet (IP-tala skráð) 7.3.2007 kl. 15:04
Smá athugasemd við bloggið, það vantar mynd af þér í ræktinni, sönnun sko, ræður hvað þú gerir í í haldara og brókum.... í myndamálunum ;)
DA (IP-tala skráð) 7.3.2007 kl. 20:04
hey....þeir sem vilja fá sönnur fyrir því að ég sé í ræktinni (sem ég skil vel að fólk dragi í efa) skulu bara mæta í sporthúsið á mán,mið,fös kl 8:30. Það væri hægt að leika "Papparazzi"
Helga Linnet, 8.3.2007 kl. 09:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.