. - Hausmynd

.

allt gert til að afsanna "saumavélakenninguna"

Við Gurra fórum að sækja saumavélina okkar sem við vorum búnar að borga fyrir. Þegar við komum þarna um kl 17 var hún ekki tilbúin Errm. Við náðum á líklega eigandanum, Jerry, sem brosti bara á móti okkur. Hann var greinilega þreyttur og mjööög pirraður en greip vélina og slengdi henni inn á borðið. Þetta var sýningarvél (sem útskýrir afhverju hún var ekki dýrari en þetta) kallar til samstarfsmanna sinna sem líta skelkuð á hann þar sem hann var greinilega ekki í góðu skapi. þylur upp hvað hann vilji og vanti en hinir yppta bara upp öxlum. Eftir smá stund kemur hann með kassa og það var greinilega ekki rétti kassinn svo hann grýtir frauðplastinu út um allt og helst í andlitið á öðrum kúnnum og bölvar á eigin tungumáli.

Eftir smá leit fann hann kassann sem hann leitaði að. Þá hófst að finna allt stöffið sem fylgdi með vélinni W00t Það var engu líkara en að tjernobyl sprengja hefði sprungið þarna með þeim afleiðingum að allt fór út um allt! Hann fann ekkert, setti sitt lítið af hverju í kassann sót bölvandi og fór mjög illa með alla þá hluti sem hann handfjatlaði. Okkur stjúpu var nú ekki alveg farið að standa á sama um þetta allt saman en ákváðum að halda sönsum þarna og anda inn og út um nefið. Eftir langa mæðu og mikið af blótsyrðum var allt komið í kassana tvo. Ég leit á þá og áttaði mig á því á þeirri stundu að ég var bara á YARIS....og kassinn var eiginlega stærri en Yarisinn sjálfur Whistling. Í bílinn skyldi þetta fara. Ekki leist okkur á þessi herlegheit og við vantreystum öllu því sem þessi "skunkur" gerði þarna svo við brunuðum beint heim og rifum upp vélina, bæklinginn með og ákváðum að fara yfir allt. Ekkert smá mikið af stöffi sem fylgdi henni.

Hófst þá ævintýrið. Í það fyrsta þá gleymdu þeir RAFMAGNSSNÚRUNNI W00t svo við gátum ekki sett vélina í samband!! Héldum við þá áfram að athuga hvað vantaði meira. Við krossuðum samviskusamlega við allar myndirnar og þegar upp var staðið, vantaði hvorki meira né minna en sjö hluti með vélinni. Upphófst þá ævintýrið að finna einhver NÚMER sem hægt væri að hringja í!!! Ég skellti mér á áður uppgefna heimasíðu hjá þeim og fann út fyrirtækisnúmerið....sem var obvíus ekki að ganga upp....mundi þá allt í einu eftir nafnspjaldi sem við fengum með....en þar kom símsvari með kallinum sem upphaflega seldi okkur vélina um að hann væri ekki lengur með þetta númer en hægt væri að ná í hann í 87654323498765459876544987654345698765434567 eða eitthvað álíka (allavega var ekki séns að ég gæti heyrt það sem maðurinn sagði því hann sagði það svo hratt) svo ég hringdi NOKKRUM SINNUM TIL ÚTLANDA í þetta áður uppgefna gsm númer til að ráða gátuna um hvað maðurinn sagði að númerið sitt væri. Jæja, ég taldi mig hafa náð því sómasamlega svo ég ákvað að hringja....EN NEI... enginn notandi með þetta FOK#$%&/ símanúmer W00t argh....ég var að verða pirruð....uuu...nei...frekar mikið pirruð....eða bara ROSALEGA pirruð þegar þarna var komið!! Ég ákvað að róa taugarnar aðeins og reyndi svo aftur síðar, mjög yfirveguð...en undur og stórmerki gerðust....HANN SVARAÐI!!! Happy

Hann var óskaplega sorry yfir þessu öllu saman og sagði að hann væri við lagerinn í Hagkaup í Kringlunni að pakka í bílinn. Bað mig um að koma A.S.A.P og hann myndi redda þessu fyrir mig. Ég hendist í bílinn og tók bókina með mér sem ég var búin að merkja í og sýndi honum allt sem vantaði. Hann fann þetta samviskusamlega allt saman....nema tvo saumafætur. Hann lofaði því að ef hann fengi heimilisfangið mitt þá myndi hann senda mér þá strax á þriðjudag. Hann var svo ræfilslegur þetta grey og svo aumkunarverður yfir þessu að ég gaf honum upp heimilisfang og svo frv. Svo spurði ég hann út í aukahlutina og sagðist vilja kaupa þetta af honum og hann sagði að ef þetta væri ekki mjög dýrt þarna úti myndi hann senda mér það í sárabætur Smile ÉG var alveg sátt við það. Við kvöddum þokkalega sátt við hvort annað.

ÉG fór heim og byrjaði að lesa manualinn og tók mín fyrstu skref á vélina...mjög einföld og skemmtileg í notkun...og ótal möguleikar.

Má ekkert vera að þessu...farin að sauma Grin

saumavélin 013

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 259687

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

239 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband