16.11.2007 | 19:07
Símtalið
Allt er breytingum háð. eins og Kínversk máltæki segir; "Til að höndla hið óvænta skaltu halda áætlun þinni sveigjanlegri." Ég fékk semsagt hringingu í gær frá DA vinkonu minni og hún spurði mig hvort ég kæmi með sér til Kína á miðvikudaginn. Ég hváði....eðlilega...hver hefði ekki gert það...flestir þurfa margra mánaðar undirbúning á svo langa ferð! Ég spurði hana hvað ég hefði langan umhugsunarfrest og þá var svarið einfalt: "KLUKKUTÍMA" Ég bað hana þá um að hringja eftir klukkutíma, þá skyldi ég svara henni.
Innan við klukkutíma síðar hringir DA til baka og spyr frétta. Ég var enn mjög ringluð yfir þessu öllu saman og beið eftir að ranka við mér úr rotinu. Þetta er semsagt Business trip á kostnað fyrirtækisins. Ég sagði já, hálfpartinn í semingi þar sem annarsvegar þetta er langt flug, 9 dagar í burtu, ég var að koma frá Slóveníu, skilja manninn eftir heima með börn og buru og ég kannski ekki alveg nógu góð í skrokknum til að dandalast svona.....but who cares about that! Hinn parturinn af mér var ákveðinn í að fara. Kannski þetta verði eina skiptið á minni ævi sem ég fer annarsvegar til Kína og hinsvegar svona langt flug og í það þriðja og alls ekki sísta að hafa manneskju sér við hlið sem er orðin hálft í hvoru "China specialist"
Það var ekkert annað að gera í stöðunni en að hendast heim og ná í passann og tilheyrandi gögn og renna þeim yfir til DA sem ætlaði að láta gera allt klappað og klárt.
Á ca 1 1/2 tíma frá símtalinu, var búið að panta far út fyrir okkur tvær og það á Saga Class (maður er ekki prinsessa fyrir ekki neitt) Ég er hér með hætt að kalla hana DA...heldur fær hún nafnið Móðir Theresa .
Planið er semsagt:
21.nóv R-vík - London - Hong Kong - Nanjing (alls 17 tímar í flugi, fyrir utan bið)
28.nóv Nanjing - Hong Kong
29.nóv Hong Kong - London - R-vík
Ekki slæmt plan
Ég hef aldrei ferðast mikið um ævina, en þetta ár er búið að slá öll met.
Jan 07 Rvík - Kanada - Kúba - Kanada - Rvík
júl 07 Rvík - Svíþjóð - Rvík
ágú 07 Rvík - Baltimore - Orlando - Baltimore - Rvík
sep 07 Rvík - Danmörk - Rvík
nóv 07 Rvík - Slóvenía - Rvík
nóv 07 Rvík - London - Hong Kong - Nanjing - Hong Kong - London - Rvík
des 07 HVER VEIT!
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
325 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
HNUSSSSSSSSSSSSSS
MÓÐIR THERESA ! (IP-tala skráð) 19.11.2007 kl. 15:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.