. - Hausmynd

.

Ég VANN!!

Þau voru ansi þung skrefin sem ég tók inn á bílasöluna í dag. Skammaðist í sjálfri mér fyrir að hafa ákveðið að selja bílinn. En jæja, það kemur bíll í bíls stað Smile

Patrolinn er á sprautuverkstæði þar sem við erum að láta laga rispur á stuðara sem voru á bílnum þegar við keyptum hann. Erum að fara að selja jeppann líka....það er ALLT AÐ GERAST. Helga litla gerðist frek við kallinn sinn og heimtaði að nú færi jálkurinn á sölu og í staðinn fengjum við okkur jeppling eða eitthvað álíka. Hann kom með hugmyndir á litla fólksbíla eins og Mazda 6 og Subaru Legacy sedan en þegar ég settist í Legacy-inn, þá fannst mér ég setjast ofan í götuna og ekki ná að sjá uppfyrir stýrið svo ég sagði pent NEI TAKK!! (frekjan ég). Kom með hugmynd á Subaru Forester í staðinn og þá hnussaði í mínum og sagði NEI TAKK...ekki "afa bíl". Ég kom þá með hugmynd að Nissan X-trail en minn kall ekki alveg nógu sáttur en sættist á að koma og skoða með mér 2 X-trail bifreiðar en á miðanum mínum sem ég var búin að "gúggla" voru 2 X-trail bílar og einn Forester, allir 2007 ágerðir. (en Stefán vissi ekki af þessum Forester á blaðinu)

Við prufuðum X-trailinn og Stefán var ekki nógu ánægður með vinnsluna og kraftinn í honum, enda er þetta 2.0L vél og stór bíll svo hann er mjög þunglamalegur. Ég fer inn aftur og kalla á hann að koma og skoða þennan líka flotta Forester "jeppa" og ég bað svo sölumanninn um að leyfa okkur að prufukeyra. Með semingi sættist Stefán á að prufa Foresterinn sem var 7-8 mánaða lúxus útgáfa af Forester. Auðvitað passaði ég mig á því að láta hann prufa fyrst og það var eins og við manninn mælt, hann gjörsamlega varð ástfanginn og þegar við settumst við afgreiðsluborðið hjá sölumanninum var hann enn slefandi. Svo var tekin ákvörðun um að versla þennan tiltekna Subaru Forester jeppa sem er ekki lengur "afa bíll" Tounge Ég get með hreinskilni sagt ÉG VANN Cool (þetta er nú bara þannig að ef maður ætlar sér eitthvað....þá getur maður það) Whistling

Bíðum eftir að jeppinn okkar komi úr viðgerð svo við getum skipt bílum.

Mamma var svo indæl að hún ætlar að lána mér bílinn sem hann elskulegi Ási heitinn átti. Þarf bara að fara með hann í dekkjaskipti og að láta skoða hann.

Herbergið hennar Sunnu fer alveg að verða klárt. Á eftir að setja "punktinn yfir i-ið" og þá er það tilbúð. Redda restinni í IKEA á morgun.

 

H.Sunna

 

 

H.Sunna
Herbergi sunnu
(tekið á símann)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með Foresterinn. Veit að það er enginn afabíll. Kalli í Bæ á svona bíl og hann kemst ekkert minna en ég á mínum 35" jeppa og búum við í snjóakistu. Að vísu er ekki hægt að kvarta yfir mokstinum til okkar. Þorvaldur hefur verið síðastliðin haust á svona bíl  vegna vinnunar þar sem hann er að ómskoða um vestfirði og síðasta haust var bílinn kominn í 350þúsund kílometra á sömu vél sem hlýtur að segja sitt. okkar bíll er kominn í 155þ. og það er búið að gera við hann fyrir eina millu sem segir sitt.

rósa (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 10:08

2 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Til hamingju með sigurinn

Gunnar Helgi Eysteinsson, 2.7.2008 kl. 15:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 259689

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

239 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband