16.7.2008 | 18:47
Sjúbbídú
Ekki laust við að maður fái hálfgerðan kjánahroll yfir þessari færslu....eeeeen
Málið er bara það að það er langt síðan maður upplifði það að eiga FLOTTAN bíl. Yarisinn var bara lítill sætur snattari, ágætt að keyra og allt það. Patrol er ekkert annað en stór dráttavél, þunglamaleg að keyra innanbæjar en frábær ferðabíll. Hann var rúmgóður og þægilegur að keyra og allt það.
Subaru er hinsvegar ljúfur og fer vel með mann í sætinu, skiptingin er svo mjúk að maður tekur ekki eftir því þegar hann skiptir sér. Er eins og hugur manns. Þó svo að hann hafi ekki beint verið ódýr, þá sé ég svo sannarlega ekki eftir því að hafa látið aðeins eftir okkur í lúxusvarningnum. Topplúga, leður, cruse, fjarstýring í stýri fyrir útvarp, A/C, tölvustýrð miðstöð, sjálfsk., allt rafdrifið og fleira og fleira.
Myndirnar tala sínu máli.
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
329 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Athugasemdir
Hjartanlega til hamingju.
Gunnar Helgi Eysteinsson, 16.7.2008 kl. 21:00
TIL HAMINGJU - æðislegt. Ég á enn eftir að upplifa það að eignast NÝJAN bíl. Á reyndar draumabílinn, Toyota Rav4. Orðinn soldið gamall greyið en dugar mér vel.
Gúnna, 17.7.2008 kl. 02:02
Til hamingju með gripinn!! .........Ég vildi kannski frekar verið gripin, eða þannig sko
Lilja G. Bolladóttir, 17.7.2008 kl. 05:10
Heyrðu Perla, heldurðu að maðurinn minn sé ekki bara svona svakalega viljugur að fara margar ferðir fyrir mig fram og til baka og þar með talið sorpu Það passar, hann var að henda gömlu skrifborði ásamt fleiru dóti úr geymslunni.
Takk fyrir hamingjuóskirnar Gunnar, Perla, Gúnna og Lilja.
Helga Linnet, 19.7.2008 kl. 21:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.