. - Hausmynd

.

Bylta á Álftanesi

Við vorum að koma heim eftir langan og strangan dag. Ég var með fullt fangið af dóti og steig út úr jeppanum með þeim afleiðingum að ég í orðsins fyllstu merkingu öðlaðist vængi í fyrsta sinn og flaug út úr bílnum Gasp. Það var ótrúlegt hvað tíminn virtist standa í stað og allt gerðist lygilega hægt. Þetta minnti helst á þegar verið er að endursýna hægt mörkin í boltanum. Ég reyndi að grípa í haldfangið á hurðinni en missti það, reyndi þá að snúa mér við í loftinu og grípa í sætið en rann af því, fæturnir fundu ekki festuna og spóluðu á malbikinu og á endanum hlunkaðist ég í malbikið hálf undir bílnum Frown. Auðvitað setti ég hendurnar fyrir mig og lenti illa á hendinni með þeim afleiðingum að öxlin fékk hnykk svo nú er ég að drepast í allri hliðinni og öxlinni. Ég sá að Stefán var að tæma skottið á jeppanum og bað hann um að aðstoða mig á fætur þar sem ég gat ekki sett hendina fyrir mig og reist mig upp. Aumingja maðurinn fékk nett sjokk þegar hann sá mig í götunni og hálf henti dótinu frá sér sem hann var að taka úr bílnum.

Þetta er í lagi eins og er, spurning hvort þetta dragi dilk á eftir sér eða ekki.....jú....svo er eitt í viðbót....Sandra Dís er aftur farin að kvarta um í eyrunum W00t. Ég sver það......ég veit ekki hvað ég á að gera....ætli ég byrji ekki á því að hringja á Lansann og tala við lækninn hennar. GetLost Ég nennissu ekki Angry

Helga skakka Undecided


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

221 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband