. - Hausmynd

.

myndir

Jæja, þá eru myndirnar komnar inn sem ég lofaði. Margar ágætar en það skal tekið fram að ég er algjör amatör í þessum efnum. Það stendur allt til bóta Wink

Nú er maður farinn að telja niður dagana í Kúbu. Farin að skoða hvað er í boði og svona leggja línurnar. Allt að skýrast í þessum efnum. Ég er samt ekki frá því að ég kvíði fyrir þessu 10 tíma flugi GetLost

Ég var ekkert smá sniðug í morgun. Græjaði litluna mína í bílinn með tilheyrandi leikskólagræjum. Rauk svo af stað á leikskólann og svo þegar þangað var komið var ótrúlega lítið um bíla.....eða bara ekki einn einasti bíll Gasp Allt í einu fattaði ég afhverju.....það var nefnilega starfsdagur í dag í leikskólanum og ég var búin að gleyma því W00t Nú voru góð ráð dýr. Ég ákvað að hafa hana bara með mér í vinnuna og gerði engar væntingar um að ég gæti unnið en þessi litla kom skemmtilega á óvart og var hin spakasta allan tímann. Lék sér aðeins í tölvunni og teiknaði myndir, rabbaði við arkitektinn sem var bara hin ágætasta barnapía LoL. Hann nostraði heilmikið með henni. Svo hafði ég samband við mömmu einnar vinkonu hennar og hún var á bæjarflandri og kom við hjá mér og leyfði henni að koma með sér heim að leika. Leikskólinn opnar á morgun svo hún fer þangað.

farin að sofa. Pouty


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

221 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband