. - Hausmynd

.

sagan af hafnfirsku ljóskunni

Viktoría hringdi í mig og bað mig ótrúlega fallega um að koma með sér í Kringluna, nánar tiltekið í La Sensa til að kaupa einhvern sérstakan haldara þar sem hún er að fara á árshátíð. Ég gerði smá díl við hana að ef hún myndi sækja litlu systur sína á leikskólann og fara með henni í strætó út í Garðabæ, myndi ég sækja þær þangað og halda beint í Kringluna. Þetta varð að díl og beið ég eftir símtali frá henni um kl 16. Svo hringir daman og þær komnar í Garðabæinn svo ég skellti mér út og sótti þær. Ég vildi endilega byrja á því að fara í HB búðina á Strandgötunni í Hafnarfirði í þeirri von að ég þyrfti ekki inn í Kringlu á þessum tíma. Jú, við fórum í HB búðina og þar var ekkert að finna sem hentaði þessari dramatísku. Þegar ég lít á litlu dömuna sé ég að hún var bara á sokkabuxunum einum klæða undir úlpunni (peysa innan undir). Ég spyr hana hvað hafi orðið af pilsinu sem hún fór í um morguninn og svarið sem ég fékk var einfalt.....bara GLEYMDI að setja hana í pilsið!! Blush Dööööh, ég skammaðist mín ofan í tær að fara með krakkann í Kringluna svona út-lítandi. Ég fór samt og reyndi að draga úlpuna vel niðurfyrir rass. Ég gafst upp og strunsaði í Zöru í Kringlunni og fann þar voða fallegar jogging buxur á 795kr sem ég vippaði henni í. Þar sem þetta er svo mikið písl, varð ég að taka stærð 4-5 ára og þurfti meira að segja að bretta uppá skálmarnar þar sem hún dró þær á eftir sér Errm. Ég sá svo peysu sem var í stíl við buxurnar og lét það eftir mér að kaupa hana líka en hún var á 995kr. Jæja, krakkinn var kominn í föt svo ég gat haldið áfram að versla. Enduðum svo leiðangurinn í Bónus að kaupa inn fyrir afmælið á morgun.

Allt er gott sem endar vel Joyful


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 259677

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

242 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband