. - Hausmynd

.

sundgarpurinn minn

Það er hreint út sagt ótrúlegt hvað þetta barn lætur sig hafa. Hún er ekki nema 5.ára og er ekki orðin synd en ég setti hana á sundnámskeið um daginn. Vissi að hún myndi hafa ótrúlega gott og gaman að því. Ég fékk svo að koma síðasta daginn til að horfa á dömuna og sjá hvað hún er orðin dugleg. Ég kem frekar seint þar sem ég þurfti að fá frí í vinnunni til að horfa á dömuna. Þegar ég kom heyrði ég bara andköf og stunur hjá foreldrunum sem mættir voru. Ég heyri svo þar sem aðstoðarmanneskjan í sundinu segir við mína dömu að ég sé komin að horfa á. Í sömu andrá snúa allir foreldrarnir sér við og spyrja hvort þetta sé mitt barn. Jú, ég gat ekki neitað því og þá fékk ég að heyra að hún sé mesti brjálæðingurinn í hópnum. Hún er langt um minnst og nær ekki í botninn. Hún þver tekur fyrir að hafa kúta en þar sem hún er ekki synd þá átti hún að vera með þá. Hún reddaði því hratt og örugglega. Hún buslar í kafi og svo þegar hana vantar súrefni lætur hún sig síga í botninn og spyrnir sér upp og grípur andann á lofti! Shocking

Ég fylgdist með henni smá stund og stóð ekki á sama, hún reddaði sér samt algjörlega úr öllum vandræðum. Synti á milli bakka og leiktækja eins og ekkert var....kútalaus! Það var ein manneskja algjörlega með henni og fylgdi henni hvert fótmál.

Kennarinn hafði orð á því að þetta barn þyrfti 100% eftirfylgni í sundi. Pinch

sundgarpur
sýnishorn af brjálæðisskapnum!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

239 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband