. - Hausmynd

.

Fyrir & eftir...eða bara Innlit/útlit

Nú eru framkvæmdirnar í eldhúsinu loksins búnar. Flísarannir voru snöggir að þessu og var lista vel gert hjá þeim.

Hér eru myndir fyrir, á meðan og eftir.

heima 3

Hér er bara búið að taka allt dótið af borðinu og beðið eftir að kallarnir komi.

eldhús

Hér er búið að setja flísarnar upp en ekki fúga.

eldhús

hér eru þeir búnir að flísa og fúga

eldhús

og að lokum er allt komið á sinn stað. Allt annað eldhús :)

 


Drama beauty queen

Viktorían fór í myndatöku til stráks sem er að taka myndir fyrir auglýsingastofur og fleiri. Hann óskaði eftir módelum í stúdíó til að stilla stúdíóið og lýsinguna. Viktorían var valin og fór hún til hans.

Hér er hægt að sjá myndirnar en þær eru 10 talsins og hver af annarri flottari. Til að skoða myndirnar þá er lítil ör neðst í hægra horninu sem hægt er að fletta með.

Ég fékk eina lánaða frá honum svona bara upp á montið. Kissing

viktoria2

myndarugl

Eins og flestir vita, hef ég mikla ánægju af því að taka myndir. Ég geri mér fulla grein fyrir því að ég er ekki næsta Huggy Ragnarsson eða Annie Lebovits en ég geri þetta á mínum forsendum. Smile

Ég ákvað að reyna að taka myndir af fiskunum mínum sem mér finnst æðislegir. Ekki vegna þess að þeir eru svo skemmtilegir (jú...samt smá..sérstaklega þegar ég er að gefa þeim að borða, þeir eru farnir að borða af fingrunum á mér) heldur vegna þess að þeir eru svo yndislega litskrúðugir.

Hér er eitt af mínu uppáhaldi og heitir hann Herra Varir (ekki deyja úr hlátri...)

herravarir litil

Allt á fleygi ferð

Það er búið að vera mjög annasamt hjá okkur undanfarið. Viktorían var að fá sér nýjan bíl úr kassanum sem pabbi hennar reddaði henni á svaka góðum díl. Hún fékk sér svarta Skoda Fabiu. Flottur bíll og nú er beðið eftir að klukkan verði 23:59 á laugardaginn því þá ætlar hún að sækja ökuskírteinið sitt.

Við erum búin að ráða flísara í vinnu til okkar við að flísaleggja á milli eldhúsbekkja og svo gólfið. Allar flísar komnar í hús svo nú er bara vinna framundan því við þurfum að koma öllum húsgögnum fyrir! Þó svo að herbergin séu stór þá rúma þau ekki alla stofuna, sjónvarpsstofuna, ganginn og holið á einu bretti!! Þetta er framtíðarvandi. Pinch

Við Stefán fórum heljarstökk afturábak og hliðarstökk um leið í fyrradag. Við sáum amerískan lazy boy til sölu og þetta var akkúrat stóllinn sem Stefán er búinn að dreyma um í langan tíma. Við skelltum okkur á þetta og sóttum.

Nú er sko nóg af sætum fyrir alla að góna á sjónvarpið Grin

heima


Í dag er dagurinn

Í dag er eitt ár síðan ég lenti í því að keyrt var aftan á mig. Mér finnst lítið vatn runnið til sjávar því enn er ég illa haldin af verkjum í öxlinni og ekkert útlit fyrir að það lagist á næstunni.

Hef verið hjá sjúkraþjálfa sem mér hefur fundist gera meira ógagn en gagn! Kannski það sé vegna þess að hann er að hræra í taugaendum og fleiru sem framkalla þessa verki.

Ég fór ekki í blakið í vetur því ég hef ekki verið með heilsu í það og er tæpast með heilsu í Pilates en reyni að þrauka því þar er ég á mínum hraða og minni getu.

Það er ótrúlegt hvað svona aftanákeyrslur eru slæmar. Mest vorkenni ég þó manninum mínum sem þarf að þola ýmislegt en ég er hætt að "væla" í honum um mína verki. Ég tek verkjalyf þegjandi og hljóðalaust en verst hvað skapið fer illa þegar manni líður svona illa. Get ekki lyft neinu, haldið á innkaupapokunum því þá fara verkirnir að bögga mig meira en venjulega.

Jæja. Ég horfi samt fram á bjarta tíma, ekki þýðir að leggjast í kör yfir þessu.

Svo má ekki gleyma því að yndislega tengdamóðir mín á afmæli í dag. Wizard


2. sætið

Ég ákvað að taka þátt í keppni á www.ljosmyndakeppni.is

Fyrirsögnin var; "Dyragættin" og lýsingin var; "Taktu mynd af því sem þér dettur í hug að geti mætt þér í dyragættinni!"

Ég fór á hugarflug eins og svo oft áður og sendi inn "Fortíðardraugur"

Hún mældist það vel fyrir að hún endaði í 2.sæti. Held að ég geti bara vel við unað. Stefni á toppinn....einhvertímann, tek þetta á mínum hraða Cool

fortíðardraugur

Abstrakt 2

Ég hef ágætis humyndarflug og ímyndunarafl. Finn út úr hinu ýmsu...

Þetta er ein tilraunin mín til viðbótar. Ég tek það fram að ég hef nánast ekkert gert við þessa mynd. Hún kemur bara beint úr "kúnni" Smile

abstrakt

Abstrakt

Er að leika mér með Abstrakt-tökur....

Hér er ein...

abstrakt-3-frosted


« Fyrri síða | Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 9
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

198 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband