15.2.2007 | 17:54
ný orðatiltæki
Ég er að vinna með breskum arkitekti sem hefur búið hér í fjölda ára en á samt erfitt með stafsetningar á íslensku (hver á ekki í þeim vanda? ) nema að það hentar kannski ekki mjög vel í hans stöðu að vera dálítið "heftur" í rituðu máli.
Ég og vinkona mín höfum oft skemmt okkur yfir þessum ritvillum hjá honum og höfum ákveðið að seetja upp svona nokkurskonar orðabók og skíra hana "Marteiníska orðabókin" (hann heitir semsagt Marteinn). Þessi Breti er óskaplega formfastur og kurteis maður með eindæmum svo það má lítið út af bera til að hann fari alveg í kleinu aumingja maðurinn. Hann má ekki heyra kvenfólk klæmast eða vera með tvíræðar setningar svo auðvitað hagar maður sér eins og fífl þegar hann er nálægt bara til þess eins að hann fari hjá sér .
Í eitt skiptið var ég að fara yfir verkefni með honum og hann bað mig um að hjálpa sér. Ég leit á þetta í fljótu og var ekkert að lesa allan textann og sagði svo við þann breska að allt væri í lagi, hann gæti sent þetta til byggingafulltrúans. Hann byrjaði að undirbúa útprentun en fyrir þá sem ekki vita þá þarf byggingarfulltrúinn að fá allt í þríriti og allar teikningar eru settar á fund og fullt af fólki fara yfir teikningarnar til að ákveða hvort eigi að samþykja þær eða hafna. Ég leit svo á teikninguna rétt áður en hann labbar út úr dyrunum og sá mér til mikillar skelfingar að það var herfileg villa í skjalinu. Þetta var semsagt stórt fyrirtæki með 6000 fm byggingu og á efrihæðinni eru skrifstofur, kaffistofur og starfsmannasvæði nema að þar sem starfsmannasvæðið var, var skrifað hvað það svæði var og hjá honum hét þetta starfsmanna sæði . Aumingja maðurinn missti sig og bugtaði og beygði, lagðist á hnéin og þakkaði mér fyrir að hafa tekið eftir þessu í tæka tíð. Mér var náttúrulega dálítið skemmt sérstaklega þar sem mitt nafn kom hvergi við á þessari teikningu
Svo var annað skiptið sem ég andaðist úr hlátri þegar hann var að setja upp flóttaleiðir á stóru húsnæði (einnig til að senda til byggingafulltrúa) og í stað þess að hafa þetta sem flóttaleiðir hét þetta útrýmingaleið . Aumingja maðurinn á sér ekki viðreisnar von. Svo var það í eitt skiptið sem viðskiptavinur kom á skrifstofuna til þess að láta arkitektinn skrifa undir teikninguna. Þetta var afskaplega fín frú í flottum pels og ók um á 8 millj. kr jeppa. Þegar hún kom inn um dyrnar stóð hann upp eins og sannur herramaður, gerði sig herðabreiðann og sagði svo háum róm: "jæja, á ég að skrifa uppundir"
Ef ég hef ekki skemmt mér vel í vinnunni....þá hefur ENGINN gert það
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2007 | 10:08
Ljóskan og bílstjórinn
stekkur út úr bílnum sínum, hleypur að trukknum og bankar á dyrnar.
Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna og hlustar á hvað hún hefur að segja.
"Hæ ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.
Bílstjórinn gerði ekkert með þetta og hélt bara áfram.
Þegar trukkurinn stoppaði aftur annars staðar á rauðu ljósi, stoppaði
stúlkan hann aftur. Hún stökk út úr bílnum sínum og bankaði á dyrnar
hjá bílstjóranum. Aftur skrúfaði hann niður rúðuna. Eins og þau
hefðu aldrei talað saman, sagði sú ljóshærða skýrt og greinilega:
"Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu.
Hristandi hausinn, hunsaði bílstjórinn hana aftur og hélt áfram niður götuna.
Á þriðja rauða ljósinu, þá gerðist það sama. Eins og stormsveipur
stökk sú ljóshærða út úr bílnum, hljóp að dyrum bílsins og bankaði.
Bílstjórinn skrúfar niður rúðuna. Enn og aftur segir sú ljóshærða:
"Hæ, ég heiti Lísa og þú ert að missa hluta af hlassinu þínu."
Þegar það var komið grænt ljós, keyrði trukkurinn af stað með það sama
að næsta ljósi. En þegar hann stoppaði í þetta skiptið, dreif hann
sig út úr trukknum og hljóp aftur að bíl ljóshærðu konunnar. Hann
bankaði bílrúðuna og þegar hún skrúfaði hana niður, sagði hann: "Hæ, ég heiti
Birgir, það er vetur í Reykjavík og ég er að keyra SALTBÍLINN."
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.2.2007 | 20:52
vangaveltur
Ég fór allt í einu að velta því fyrir mér hvað er í innkaupakörfu landans og úrvalið af því sem var í körfunni. Í einu af mínu þráhyggjuköstum fór ég að velta því fyrir mér hvað klósettpappír er dýr og hvað hann er mis drjúgur
Ástæðan fyrir þessu er sú að Sandra Dís er að selja pappír sem er svosem ekki til frásögu færandi nema að því að mér fannst þetta heldur dýr pappír. Ég fór að skoða umbúðirnar utan á pappírinn (wc pappírinn altso) og komst að ótrúlegri niðurstöðu.
í "kassanum" eru 48 rúllur og kostar það 3300kr. Ég ákvað að kafa aðeins dýpra því á umbúðunum stendur að það séu 360 blöð á einni rúllu (ég lofa, þetta stendur, ég taldi ekki sjálf). Hvert blað er 14cm langt svo ef ég margfalda þetta upp eru 50 metrar á rúllunni. Ef ég deili þessum 3300kr niður í þessar 48 rúllur útlegst rúllan á einar 68.75kr pr rúllu. Metrinn er þá á 1kr og 37 aura og ef við deilum enn lengra niður þá ætti hvert blað að vera á 19 aura! Þetta gæti þýtt að ég skeini mig fyrir eina krónu pr dag ef ég fer 2x á dag á klósettið!
Til að hafa samanburð þá fór ég í Fjarðarkaup í hádeginu í smá "leiðangur" (misjafnt í hvað fólk eyðir matartímanum sínum í). Ég komst að þeirri niðurstöðu að ef ég keypti Fjarðarkaups wc rúllur þá væru 12 rúllur í pakkanum (svo kallaður xxl pakkning) og kostaði sú pakkning 379kr og ef ég deili því í þessar 12 rúllur eru þetta einungis 31.58kr pr rúlla. En ekki er allt sem sýnist. Hvert blað var 14cm á lengd og á rúllunni voru 160 blöð sem gera 22metra af pappír á rúllu (ég taldi ekki í búðinni....). Metrinn er þá á 1kr og 43 aura og ef við deilum enn lengra niður þá ætti hvert blað að vera á 19 aura! Semsagt sama verð og á þessum "dýra" pappír.
Svo skoðaði ég pappír sem heitir Andrex (með hvolpunum utan á) og voru 6 rúllur í pakkningunni og kostaði pakkningin 426kr. pappírinn var áfram 14cm hvert eyðublað og á rúllunni voru 230 blöð sem útleggst í 32metra rúllan. Ef við leikum okkur aftur með tölurnar þá útleggst rúllan á einar 71kr og hvert eyðublað ætti því að kosta um 31 aur! Metrinn er þá á 2kr og 22 aura
Viðkoman á Andrex og þessum Katrin pappír sem SD er að selja er mjög svipuð. Verðmunurinn þarna á milli eru ein 60% sem ég er ekki að ná!
Þetta hljómar allt ótrúlega heimskt....en ef maður spáir í þetta þá getur maður sparað ótrúlegan pening á því að velta svona "smámunum fyrir sér.
Svo það sé á hreinu, þá erum við með til sölu hágæða wc og eldhúspappír. Gæði í gegn. Frí heimsending á höfuðborgarsvæðinu
Bloggar | Breytt 14.2.2007 kl. 10:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.2.2007 | 18:51
hvaða æsingur er þetta
Maður einn fær skelfilegan hausverk í vinnunni, ákveður að taka sér frí eftir hádegi og fer heim. Þegar hann kemur heim, fer hann inn í eldhús, finnur magnyl og tekur tvær. Svo heyrir hann tónlist, fer upp á loft og kemur að konu sinni með dverg. Hann öskrar á hana: Hundrað sinnum hef ég fyrirgefið þér þetta endalausa framhjáhald, þú lofaðir fyrir viku síðana ð hætta og svo kem ég að þér svona. Konan lítur á hann og segir: Vertu ekki að æsa þig elskan, sérðu ekki að ég er að reyna að minnka við mig?
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.2.2007 | 11:46
allt að verða vitlaust!
Þetta er nú meiri skrípaleikurinn orðinn þetta Baugsmál. Eins og þetta snýr að mér þá finnst mér þetta orðið þannig að þessir kappar VERÐI bara að finna eitthvað á móti þeim, þeir skulu ná að krossfesta einhvern.....sama hversu lítið það er!!
Hefði alveg vilja sjá þessa menn bara að fá að setjast niður og vera leystir úr þessum reipum sem búið er að negla þá í. Það getur vel verið að það sé einhver flækja á bakvið þessi mál en það er örugglega ekki alvarlegra en samráðin í olíusöðvamálunum
![]() |
Jóni Gerald vísað úr réttarsal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.2.2007 | 15:41
þriðja röð til vinstri
Þegar við keyrðum suður á sunnudaginn notuðum við allar sætaraðirnar í jeppanum. Við Stefán vorum á fyrstu röðinni, Viktoría Rós og Hólmfríður Sunna í þeirri næstu með sjónvarpið hengt upp á milli framsæta og svo þriðja röð á vinstri bekk sat Sandra Dís. Það var horft á DVD eins og gefur að skilja og Sandra Dís sér vel aftur í þar sem skjárinn er það stór. Eitthvað var Viktoría að vesenast svo Sandra Dís verður pirruð og biður hana í pirringsskap að færa sig. Hólmfríður Sunna gerir sér lítið fyrir og snýr sér til systur sinnar og hvæsir á hana: "Góða besta, róaðu þig aðeins stelpa". Það var ekki nokkur séns að ég gæti skammað þessa litlu sökum þess að ég var í hláturs kasti framí
12.2.2007 | 10:37
ekki séns!
Elsta dóttir mín vaknaði einn morguninn í síðustu viku eftir miklar draumfarir. Hún sagði mér hvað hana hafði dreymt og ég fékk nett sjokk
Draumurinn var sá að við vorum flutt norður til Akureyrar og bjuggum ekki langt frá Helenu vinkonu sem er alveg í lagi nema hvað að ég var að sinna nýlega fæddum börnum mínum, tvíburar, stelpa og strákur . Var meira að segja búin að skíra og hét stelpan E??? Líf og strákurinn Kristófer ???.
Ég fékk nett sjokk yfir þessum upplýsingum og hef tekið þá ákvörðun að ég flyt ekki norður til Akureyrar nema að fara í "klippingu" eða þegar ég er komin YFIR frjósemistímabilið og farin að taka hormónalyf til að jafna út ellihrörnunina
Annars veit ég um eina sem fór í svona "klippingu" fyrir nokkru en varð samt ófríks! og svo veit ég um enn aðra sem sendi manninn sinn í svona "klippingu" og 3 árum síðar verður hún ófrísk . Þetta gréri bara svona nett saman
Ekki laust við að maður fái netta velgju yfir þessu öllu saman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.2.2007 | 21:52
home sweet home


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 260769
Annað
- Innlit í dag: 6
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
78 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín