. - Hausmynd

.

Dónalegt par!

Ég kom að þessum dónapörum í garðinum mínum.

dónalegt par

Ég rak þau samstundis í burtu og kallaði á eftir þeim: "Get a room" W00t

Annars tók ég þátt í keppni á www.ljosmyndakeppni.is og bar keppnin yfirskriftina "skór". Þetta er það fyrsta sem mér datt til hugar að gera en vissi ekki hvort ég ætti að framkvæma þessa vitleysu eða ekki. Viðraði þetta við vinkonu mína sem taldi mig á að gera þetta.

Var að vonast til að húmorinn myndi koma mér áleiðis að toppsætinu en raunin varð önnur. Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að "lmk-ingar" eru húmorslausir!!! Angry Ég endaði í 10 sæti af 33. Woundering

Mömmu langaði að taka þátt líka svo ég fór í "brain-storming" fyrir hana og framkvæmdi þetta með henni og þetta er afraksturinn.

ástfangið par

Þessir skór hrepptu 15. sætið sem ég skil ekki. Miðað við mörg önnur pörin sem send voru í keppnina hefði þessi átt að fara ofar. Það segir líka dálítið mikið að þessi mynd hefur oftar verið skoðuð af notendum en allar hinar myndirnar nema þessar sem lentu í fyrstu fjórum sætunum. Fyrstu þrjú sætin eru á forsíðunni og hægt að skoða þær þar en þær sem lenda ofar en 3 sæti þarf að fara "sérstaka" leið til að skoða. 

Ætla að fikra mig áfram í tilraunastarfseminni en ég sagði við vinkonu mína í morgun eftir slæmt gengi í annarri keppni að ég er HÆTT að taka þátt í asnalegum keppnum, ég ætla bara að taka myndir fyrir mig og opna flickr síðuna mína aftur og gera gott úr henni. GetLost


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég hljóma kannski leiðinlegur en myndirnar sem eru í 1,2 og 3'ja sæti eru frábærar... 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.7.2008 kl. 18:28

2 Smámynd: Helga Linnet

Þú hljómar alls ekki leiðinlega....þær eru rosa flottar...en mér finnst samt röðunin hefði mátt vera öðruvísi. Hefði strax sætt mig við 5 sætið

Helga Linnet, 7.7.2008 kl. 20:26

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er sammála því

Gunnar Helgi Eysteinsson, 7.7.2008 kl. 21:04

4 Smámynd: Linda Linnet Hilmarsdóttir

Linda Linnet Hilmarsdóttir, 8.7.2008 kl. 00:24

5 Smámynd: Gúnna

Mér finnst báðar þessar myndir skemmtilegar. Ég hef nokkrum sinnum sent inn myndir í þessa keppni og lent í allt frá 3. og niður í næst síðasta sæti Oftast er ég nú nokkuð sammála úrslitum - en ekki nærri alltaf.

Gúnna, 8.7.2008 kl. 00:27

6 identicon

Þinn tími mun koma.......

Sóley (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 259689

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 52
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

239 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband