. - Hausmynd

.

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

fólk er fífl

Það er margt skrýtið í kýrhausnum en þetta slær öll met. Hvað fær fólk til að gera þetta?? Ég ætla svo sannarlega að vona að lögreglan nái þessu fólki og það svipt ökuréttindum með þeim afleiðingum að þeir þurfa að fara í gegnum ökuprófið aftur Angry Þetta er ekki bara hættulegt þessum ökumönnum heldur einnig okkur hinum sem förum eftir lögum og reglum.
mbl.is Hópur bifhjólamanna mældur á 174 km hraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Biðin langa

Jæja, nú er Rósin mín búin í þessum skanna. Ég á ekki von á því að það komi neitt út úr því annað en bara þetta mígreni. En staðreyndin er sú að hvað sem kemur út úr þessu þá tekur maður því sem höndum ber og vinnur úr því.

Ég er búin að heyra í Dísinni minni líka. Versta martröðin okkar foreldranna rættist einnig með hana. Hún var sett í herbergi með stelpu sem hefur lagt hana í hrikalegasta einelti mannkynssögunnar undan farin misseri. Það getur ALDREI boðað gott. Það passaði líka, stelpan sem að mínu mati er dóttir Satans gerði í því að vekja hana um nóttina af kvikindisskap svo mín dama fór út úr herberginu og fékk að gista annarsstaðar þá nóttina. Það átti ekki að gefa þennan kálvitaskap eftir svo hún var látin sofa næstu nótt með henni líka. Stelpan fékk tiltal svo hún lét hana í friði næstu nótt.

Ég ákvað að hringja í einn fararstjórann og tala við hana og láta vita hvernig þetta hefur verið undan farin misseri. Hún fékk sjokk yfir því að hafa ekki vitað þetta og lofaði að fylgjast vel með og rapporta hina líka. Ég vona svo sannarlega að stelpan mín geti átt góðar stundir þarna úti og verið laus við stríðni og fordóma. Einhverjar þessara stelpna sem er með henni úti núna sögðu við hana fyrir nokkrum árum síðan að þær vildu óska þess að hún hefði dáið úr krabbameininu!!! Er það furða að ég sé hvekkt og pirruð og öll á varðbergi?!?! Maður bara spyr sig FootinMouth


AAAAAARRRRRG!

Ég get svo svarið fyrir það að ég var í manndrápsskapi í gær Angry. Ég ákvað að vera ekkert að blogga fyrr en ég róaðist niður til að ná pínu sönsum.

Ég hringdi í vinkonu mína og ákvað að notfæra mér það að pabbi hennar er læknir. Bað hana um að spyrja hann út í Viktoríu. Ég lýsti þessu öllu saman fyrir henni og hún ætlaði að hafa samband við hann. Ég fæ svo fréttir nokkru síðar að ég ætti bara að fara með hana til læknis eins fljótt og auðið er. Ég ákvað að hlýða því og hringdi á Sólvang og bað um næsta LAUSA lækni, semsagt vildi fá tíma sem fyrst. Jú, ég fékk tíma 2 dögum síðar, gaf upp kennitöluna hennar en þá kom babb í bátinn. Hún hafði verði skráð á annan lækni sem væri hættur þarna og ég mætti einungis tala við þann lækni út af henni!!! Ég spyr hvort það sé VIRKILEGA þannig að ég MEGI ekki panta tíma hjá öðrum lækni þar sem EINHVER hefur tekið sér það bessaleyfi að skrá hana hjá ÖÐRUM lækni!!! Jú, kerlan í símanum taldi það vera þannig. Ég benti henni á að ég hafi ALDREI skráð hana hjá öðrum lækni og annað hvort hafa þær ákveðið að losa sig við hana eða einhver mistök hafa orðið þar sem ég hef ALDREI heyrt af þessum lækni áður. Hún sagðist ekki ætla að rífast við mig, svona væri þetta og nú yrði hún að slíta sambandinu. Með það var skellt á. Ég varð að sjálfsögðu arfa vitlaus yfir þessum  helv$%&/ meðferð á manni, maður er eins og kartöflusekkur sem er þeytt til og frá og komið fram við mann eins og annars flokks manneskju í þjóðfélaginu.

Ef einhver hefði veifað rauðri druslu fyrir framan mig hefði ég örugglega stokkið upp og stangað af fullum krafti, svo pirruð var ég. Ég ákvað að róa taugarnar og hringja þá á þennan stað sem þessi viðkomandi "heimilislæknir hennar" var með aðsetur og fékk ég tíma 2 tímum síðar. Ég fór með jákvæðu hugarfari.....eða dálítið blendnu....OK...ég skal viðurkenna það að ég fór með því hugarfarið að ef þessi manneskja hefði EITTHVAÐ misboðið mér, hefði ég misst mig við hana!! Devil

Raunin varð sú að þessi læknir var svo indæl, hlustaði á okkar sögu og tók hana í mjög ítarlegt test. Við vorum alveg sammála því að þetta væri líklega bara mígreni sem hún væri með. Það er það sem ég vissi svosem en vildi líka vita hvernig best væri að tækla það þegar það kemur upp. Þegar hún heyrði svo að hún vaknar oft með dúndrandi höfuðverk fölnaði hún. Þá væri málið orðið alvarlegra og vildi fá hana í heilaskanna strax. Gasp 

Ég hef svo samband við skiptiborðið í Domus og daginn eftir fengum við tíma og það bara fyrsta tímann. Ég hef grun um að þegar beðið er um heilaskönnun, sé það sett í forgang vegna þess að hún gat ekki gefið mér tíma fyrr en hún var búin að taka niður beiðnina og hvað átti að skanna.

Semsagt kl 8:50 í fyrramálið fer hún í skannann. Ég hef nú grun um að þetta sé ekkert merkilegt, "bara" þetta mígreni...eða ég vona að það komi ekkert annað en það út úr þessu. Crying

Until to morrow Cool Njótið veðurblíðunnar...það ætla ég að gera...


Unginn farinn í frí

Jæja, nú er Dísin mín farin til Lökken í Danmörku. Ég var með hnút í maganum að senda hana "eina" út, en ég er sannfærð um að hún hefur gott af þessu. Þetta er rosalega stór hópur stelpna sem fer út og eitt er víst að það eru ekki allar vinkonur innan hópsins! Frown Krossa fingur og vona það besta.

Ég heyrði í henni í dag, allt í sómanum.....ennþá....vona að það hangi þannig.

Í gær fórum við svo út að borða með Viktoríu. Fórum á Hereford steikhús sem er á Laugaveginum. Maturinn var fínn (fyrir utan vatnsþynntu sjávarrétta súpuna), nautasteikin var frábær og eftirrétturinn var góður. Þjónustan var mjög góð en ég ÞARF ekkert að fara þarna aftur!!! þetta er sko langt frá því að vera eitthvað kósý staður! Maður heyrði ekki í sjálfum sér þarna fyrir glym. Ég er sannfærð um að ef þeir létu laga hljóð einangrunina þarna, yrði þetta þægilegur staður, en þangað til að það verður lagað fer ég ekki aftur GetLost. Eftir matinn buðum við henni svo í bíó og fórum við á sjóræningjana. Góðir brandarar í myndinni, flott tölvugrafík, vel tekið en gjörsamlega innantóm mynd. Maður vissi ekki hver var að bomba á hvern eða hver var með/móti hverjum eða hvort það var vondi kallinn eða góði kallinn sem dó!!! Shocking Kannski var ég bara svona vitlaus! leyfum mér að njóta vafans Joyful

Á heimleiðinni segir Viktoría að sér sé aftur orðið svona illt í höfðinu og sé orðið flökurt. Við báðum hana um að segja okkur það í tíma ef hún þyrfti að æla. Skyndilega biður hún okkur um að stoppa NÚNA. Hún stekkur út úr bílnum og þar ælir hún lifrum og lungum Sick. Mér er hætt að finnast þetta eitthvað sniðugt. Þetta er farið að gerast ansi oft. Hún fær skyndilega svona illt í höfuðið (nánar tiltekið bakvið augað öðrumegin) og þá ælir hún skömmu síðar. Ég ætla að fara með hana til læknis. Ég vil bara búin að finna út úr þessu sjálf áður en ég tala við lækni. Þeir sem mig þekkja, vita ástæðuna GetLost.

Í dag hafði ég það af að gróðursetja nokkur sumarblóm í garðinn. allt að verða voða flott þarna Smile. Verst hvað ég er EKKI með græna fingur Blush Öll blóm í kringum mig deyja, ég er farin að hallast að því að þau drepist úr leiðindum!! Crying Sjáum hvað þessi blóm gera.


ég er húsið mitt.

Ég var að lesa fyrir Sunnu í gær. Hún bað um að ég læsi bókina "Ég er húsið mitt". Ég hafði einhvern tíman lesið þessa bók fyrir Söndru Dís en ég man ekkert eftir henni. Bókin fjallaði um hann Steina sem var að flytja í nýtt hús. Fólkið sem aðstoðaði við flutninginn fór inn á skítugum skónum og það líkaði honum illa þar sem húsið var hreint og fínt. Móðir Steina tekur hann eintali og bendir honum á að það sé annað hús sem hann þyrfti að passa enn betur, það væri húsið hans. Húsið hans er nefnilega líkaminn. Augun í barninu stækkuðu meir og meir, eftir því sem nær dró endann í bókinni. Steini áttaði sig á því að húsið hans væri líkaminn. Móðir drengsins predikaði um það að húsið hans vildi alls ekki vera óhreint. Það þyrfti að borða hollan morgunverð svo húsið yrði hreint og fínt, alltaf að bursta tennurnar og þvo hendurnar þegar maður er búinn að vera úti og svo frv. Eftir lestur bókarinnar spjölluðum við mæðgur um þetta tiltekna hús sem við eigum öll. Hún var mög hissa á þessu öllu saman. Stelpan fer svo að sofa og ég spái ekkert meir í þessu.

Í morgun vaknaði ég við stelpuna við hliðina á mér (en ekki hvað) og ég ýtti við henni þar sem klukkan hringdi. Hún teygði úr sér og sagði svo í svefnmókinu að nú vildi hún fá Cheerios í morgunmat. Ég varð mjög hissa og sagði ekki neitt heldur beið útskýringa á því hvers vegna hún vildi það. Jú, ekki löngu síðar sagði hún að nú vildi húsið hennar fá HOLLAN morgunmat FootinMouth. Það er alveg stórmerkilegt hvað hún tekur öllu svona bókstaflega.

Á morgun (laugardag) fer Dísin mín fagra til Danmerkur með fótboltanum. Allt orðið reddý fyrir ferðina og hún orðin spennt eins og lög gera ráð fyrir.

Á morgun er ég jafnvel að spá í að skella mér til Viðeyjar í smá myndunarleiðangur. Held að það gæti verið gaman ef veðrið verður gott.

Annað kvöld ætlum við að bjóða Viktoríu eitthvað flott út að borða. Staðurinn er enn leyndó þar sem hún fær ekki að vita neitt fyrr en komið er á staðinn. Smile

Myndin af Viktoríu er mjög flott í Víkur fréttum. Ég get ekki annað en verið rosalega stolt af henni. Ég frétti svo frá einni sem ég þekki að myndir af henni hafa einnig birst í Fréttablaðinu (vissi af viðskiptablaðinu ekki hinu) varðandi verkefnið sem hún vann í skólanum. Hún (ásamt 2 öðrum dömum) áttu að "stofna" kaffihús og gera teikningar af því og líkan ásamt kostnaðaráætlun, vínveitingaleyfi, starfsleyfi og svo frv. Þótti þetta einkar vel heppnað hjá þeim að áveðið var að kalla út blaðamenn. Ég sá þetta því miður ekki sjálf en að sögn þeirra sem sáu þetta, þótti þetta mjög flott. Nú þarf ég að útvega mér þetta Fréttablað sem kom út í síðustu viku.

Nóg í bili, langur og strangur dagur framundan á morgun Cool


stolt móðir

Í gær var Viktoría mín að útskrifast úr grunnskóla. Það voru veittar verðlaunir fyrir eitt og annað og þá sérstaklega fyrir stærðfræði, Íslensku og dönsku og svo voru verðlaun veitt fyrir íþróttir. Viktorían mín var nú ekki beinlínis í bóklegu fögunum en hún fékk verðlaunin Íþróttakona Álftanesskóla Grin. Hún fékk bókaverðlaun og farandbikar sem búið var að merkja nafnið hennar á. Ég var nú ekkert smá stolt af prinsessunni minni. Skólastjórinn minntist á það að þegar Viktoría var í 7.bekk, þá hefði hún unnið titilinn "Járnkerling" og Guðmundur Heiðar bekkjabróðir hennar unnið "Járnkarlinn" það ár. Nú, 3. árum síðar, þá standa þau tvö aftur uppi sem sigurvegarar sem Íþróttakona og Íþróttamaður Álftanesskóla 2007.

Víkurfréttir tóku myndir og var okkur sagt að það kæmi klausa um þetta í næsta blaði frá þeim. Wink


Allt að gerast

Það er bókstaflega allt að gerast. Í gær fékk ég til mín fríðan hóp blak-kvenna. Allar komu með einn rétt að heiman til að setja á hlaðborðið....en allar hugsuðu það sama....að hafa nóg handa öllum svo það er óhætt að segja að borðið svignaði undan kræsingum.

Frábært kvöld sem við áttum.

Í dag eiga svo tvíbura frændsystkin okkar 2 ára afmæli og vinkona mín eignaðist frumburðinn sinn í morgun rétt fyrir sjö. Reyndar með Akut-keisara en hraust dama lét sjá sig, einar 16 merkur Smile

Í dag á svo kunningjakona mín fimmtugs afmæli og var ég beðin um að sjá um barinn í veislunni í kvöld sem ég geri að sjálfsögðu með glöðu. Maðurinn hennar kokkaði nefnilega í afmælinu hans Stefáns og hann ætlar einnig að sjá um veislu fyrir okkur í haust Wink

Munið þið eftir þessari færslu? (allra neðst)

 http://www.hlinnet.blog.is/blog/hlinnet/entry/46094/

Ástæðan fyrir þessari gjöf var sú að minn maður lagðist á skeljarnar Grin FINALLY eftir 10 ára bið.

Stóri dagurinn verður 8.september í ár en sá dagur er mjög stór hjá okkur. Við erum bæði skírð þann 8.sept (með 7 ára millibili) og við trúlofuðum okkur þennan dag fyrir 10 árum síðan, foreldrar hans eiga 40 ára brúðkaupsafmæli þennan dag líka svo það er allt að gerast Smile

Best að gera sig klára í tvær afmælisveislur.


« Fyrri síða

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 259748

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

223 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband