. - Hausmynd

.

Eurovision

Jæja, nú eru ekki nema rétt tæplega 2 tímar í Evróvísíjón. Ég var nú kannski ekki allt of sátt við lagið okkar en úr því að það fór, þá er það bara fínt (pínu Pollyönnu stíll). Ég sit nú samt alveg föst á því að það fari ekki upp úr forkeppninni í kvöld....en EF svo ólíklega vill til að það komist upp úr forkeppninni, verður það mjög neðarlega í úrslitum í aðalkeppninni GetLost. Þetta er ekki sagt í einhverri illsku eða neitt þannig, málið er bara að við erum svo "ein í heimi" og við eigum engin landamæri að okkur til að múta svo við verðum dálítið afskekkt fyrir vikið. Ég get nú ekki alveg dæmt um það hvaða lag mun bera sigur úr býtum en miðað við hvað Úkraína er flott finnst mér ekki ólíklegt að þeir deili sæti á topp 5. Úkraína er sko með pottþétt sjó, svona miðað við myndbandið allavega.

Mér finnst það stór merkilegt að tvær dragdrottningar séu á sviðinu í þessari keppni en mikið finnst mér þessi dani vera lásí....svona miðað við þennan úkraínumann...eða konu....eða skiptir ekki!!

Það er svakaleg flóra af lögum í keppninni. Allt frá "pissupásulagi" í "algjörtmöstaðhorfalag". Eiki okkar er mjög sterkur og öflugur söngvari þó svo að mér finnist þessi texti alveg mega missa sín...en það er mín skoðun. Það verður gaman að sjá hvar við endum svo eftir allt. Smile


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 259712

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

234 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband