6.2.2008 | 12:12
samkynhneigð Patta!!
Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að Pattinn okkar er samkynhneigður!
Ég er jafn mikið á jeppanum og hann Stefán minn. Stundum meira og stundum minna. Í gær fór ég í mat til pabba og konunnar hans í Mos og þar sem ég ætlaði að vera með öll börnin með mér ákvað ég að fara á jeppanum. Eins er hann nokkuð öruggari í umferðinni en Yarisinn minn gagnvart árekstrum. (er nefnilega enn mjög trekkt í umferðinni eftir umferðaróhappið mitt þann 24. sept sl.)
Þegar ég var komin í Ártúnsbrekkuna fór bíllinn að nötra....full mikið. Mér stóð ekki á sama svo ég ákvað að hægja á ferðinni. Ekki það að ég hafi verið á ólöglegum hraða, alls ekki. Hægði það mikið að hann hætti að skjálfa. Á vesturlandsveginum byrjaði aftur þetta nötur, eða um leið og ég var komin upp í 80km/kls svo ég ákvað að hægja aftur á ferðinni og vera undir löglegum hraða.
Ekki var þetta skárra á heimleiðinni. Enn og aftur nötraði bíllinn það mikið að Viktoría var farin að panikka. Ég ákvað að biðja Stefán um að koma með mér í bíltúr til að fá hann til að sjá þessi ósköp og finna sjálfur. Hann var rétt á undan okkur heim úr skólanum svo ég sópaði krökkunum inn og fékk hann til að koma með mér út...hann fékk ekki einu sinni tækifæri til þess að fara í jakka...bara út með hann....ætlaði EKKI að gefa mig með það.
Stefán sest undir stýri og ákveður að fara Álftanesveginn því þar má fara í 70km/klst. Hann er kominn í 70 og ekkert gerist...hann ákveður að auka aðeins ferðina og er kominn í 80....og ekkert gerist....og hann ákveður þar sem enginn bíll var á ferð að auka örlítið meira og er kominn í 90 og EKKERT gerist....ansk#$%&. Hann hægir snarlega svo á ferðinni og ákveður að snúa við og prufa aftur. Enn og aftur reynir hann sömu gloríu og EKKERT GERIST ARGH
Ég komst að þeirri niðurstöðu að jeppa fíflið er samkynhneigður....allavega hagar hann sér öðruvísi við Stefán en mig.
Í morgun fór ég svo á Pattanum aftur og nú til þess að fara á dekkjaverkstæði og láta "ballensera" dekkin. Ákveð að fara á nýtt dekkjaverkstæði í Hafnarfirðinum. Kem fyrir utan og þá virtist enginn vera sýnilegur. Hurðin lokuð og enginn sjáanlegur. Skyndilega kemur dökkhærður broddaklipptur maður í gluggann og opnar dyrnar. Ég keyri inn á verkstæðið en hann beinir mér ekki á bílalyftuna, heldur bara á mitt verkstæðisgólfið með jeppann. Ég stekk út og þá mætir mér sú mesta skítafýla sem ég hef fundið. Engu líkara en 30 hraustir karlmenn hafi tekið höndum saman og farið á klósettið og leyst vind ásamt teflt við páfann. Ég reyni að bægja þessari fýlu frá mér og segi við þennan ágæta mann sem stóð og glápti á mig að ég vilji láta ballensera dekkin. Hann segir á bjagaðri "íslensku" "bjallensiling ja" og þá áttaði ég mig á því að sennilega er þetta Pólverji sem ekki kann íslensku...eða lítið af henni. Gott og blessað en ákvað að ég skyldi tala bara íslensku við hann ef ég þyrfti yfir höfuð að hafa einhver samskipti við hann almennt séð.
Nú tekur ekki betra við. Hann nær í tvo tjakka og setur þá fyrir framan bílinn og byrjar að hand tjakka bílinn. Ég finn allt í einu hvar hakan mín var komin það neðarlega að ég var farin að BRAGÐA á skítafýlunni þarna inni. Lokaði munninum aftur og reyndi að láta lítið bera á hneykslis svipnum á mér. Taldi að hann yrði bara fljótur að þessu og ekkert vesen. Maðurinn baksast við að ná snjóugum dekkjunum undan bílnum og leggur þau við vélina sem balleseringin fer fram á. Hann skellir öðru dekkinu upp á vélina og festir það. Hann setur ekki hlífina ofan á sem lá á gólfinu við hliðina til að varna bleytunni sem sprautast af dekkinu sem snýst hratt í hringi. Þegar ég sá að hann ætlaði ekki að setja hlífina á, ákvað ég að færa mig bara frá. Vissi það alveg að miðflóttaraflið er það sterkt að það er ekki séns að snjórinn, aurinn og bleytan hangi á dekkinu á fullri ferð. Eitthvað spáði þessi ágæti maður ekki í það svo hann skellir dekkinu í gang og stendur beint fyrir framan dekkið. Það þarf ekki að spyrja að því að það leggur snjó, aur og bleytu strókur yfir hann og spýtist í loftið ásamt nærliggjandi vegg. Hann færir sig...eða gerir tilraun til að færa sig og reyndir að dusta sem mest af ógeðinu úr broddaklipptu hárinu og úr fötunum sínum. Púkinn ég varð að snúa mér undan og halda fyrir munninn til að reka ekki upp hlátursroku. Mér var svo sannarlega skemmt þarna og hneyksluð um leið.
Ég fór að virða þennan dreng/mann fyrir mér og sé að hann er í HVÍTUM Reebook skóm, svörtum buxum, dökk blárri háskólapeysu með rendur í stroffinu sem minna einna helst á fána Samtakanna 78. Peysuna dró hann niður fyrir rass sem gerði hann enn hallærislegan fyrir vikið. Hann gerði ekki annað en að dusta ósýnilegt "rykið" af peysunni sinni og hugsaði mér mér að þessi maður væri greinilega ótrúlega pjattaður svona miðað við vinnuna sem hann er í. Þegar ég fór að fylgjast meira með honum sá ég að hann renndi reglulega með skítugar krumlurnar í gegnum hárið á sér. Þá varð mér illt
Nægan tíma fékk ég til að fylgjast með þessum manni vinna vinnuna sína því þessi skítafýluraun stóð yfir í FIMMTÍU MÍNÚTUR....ég hélt ég yrði ekki eldri. En hann vann þetta vel og vandaði til verka. Það mátti hann eiga svo ég fyrirgaf honum seinaganginn.
Þetta var raunin mín fyrir daginn í dag....ég vona að ég þurfi ekki að reyna þetta mjög oft
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.2.2008 | 12:45
Norðurljósin
Þessi stutta er svo forfallinn norðurljósaáhugamanneskja að það er beðið eftir því að þetta fyrirbæri birtist á himninum og fari að dansa. Hún getur staðið úti og horft á þetta heillengi.
Vissulega er þetta magnað og enn magnaðra finnst mér að ná þessu á mynd.
setti nokkrar í myndaalbúmið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.2.2008 | 13:42
tvíburar vs. þríburar!
Ég sótti skottuna mína á leikskólann um daginn og þá var hún að ræða um þríburana sem eru á deildinni á móti. Gengið inn um sama inngang en inn um sitthvora deildarhurðina. Henni fannst þetta rosalegt að eiga ÞRÍBURA og spurði mig hvernig í ósköpunum er hægt að eignast svona mörg börn í einu
Ég var náttúrulega bara skynsöm móðir og ræddi þetta aðeins við hana að þetta gæti bara gerst og þá sagði hún spekingslega:
mamma, ég ætla EKKI að eingast þríbura sko...ég ætla BARA að eignast TVÍBURA
Þetta fannst mér náttúrulega drep fyndið en ákvað að leyfa henni að eiga það fyrir sig.
Í gær fór ég með hana í íþróttaskólann og strax á eftir upp á höfða að brasa. Komum heim um kl 21:30 og þá sáum við rosalega mikið af norðurljósum. Ég fór með hana út til að sýna henni norðurljósin og hún vildi að sjálfsögðu vita hvernig þetta fyrirbæri væri búið til. Ég reyndi að útskýra það fyrir henni svo hún skildi en hún fann samt betri lausn á þessu óskiljanlegu "bulli" í mér um rafmagnið að hún sagði að þetta væru sko bara englarnir á himninum sem stæðu að þessari ljósadýrð.
Mér var skipað inn til að ná í myndavélina svo hægt væri að mynda þetta fyrirbæri sem englarnir hefðu gert svo lista vel.
Nú bíður hún spennt fram á kvöld til að sjá hvernig norðurljósin dansa í kvöld Tek kannski fleiri myndir og skelli inn á bloggið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.1.2008 | 22:33
Leitin mikla
Senn líður að fermingu hjá mið-prinsessunni. Stóri dagurinn er 16.mars 2008. Boðskortin eru reddy, þarf bara að prenta þau út og senda...í tölvuleysinu sem hefur hrjáð þessa fjölskyldu undan farna daga (held að ég hafi farið verst út úr því...allavega var ég mest háð fartölvunni minni
) Það stendur allt til bóta, búin að finna mér vél sem ég ætla að versla að utan.
Ég vildi fá Dísina mína til þess að koma með mér í bæinn að kaupa fermingaföt á sig. Hún vildi ekki koma, sagðist eiga föt sem hún vildi vera í. Ég hváði yfir þessu og spurði hvaða föt það væri, ætlaði sko ekki að láta hana komast upp með að vera í gallabuxum Hún segir voða rólega að hún vilji vera í kjólnum sem hún var í á brúðkaupinu okkar í haust. Ég vildi endilega að hún kæmi með mér í bæinn til þess að velja önnur föt en hún var alveg ákveðin í því að í bæinn færi hún ekki til þess að fá önnur föt...í kjólnum ætlaði hún að vera. Ég vildi þá stytta kjólinn en það var ekki tekið í mál...svona á kjóllinn að vera og við það ætlaði hún að standa.
Ég náði að lokka hana með mér á þeim forsendum að það þyrfti að kaupa jakka og létta peysu á hana sem hún gæti sveipað yfir sig yfir kjólinn. Fórum á nokkra staði en enduðum á að kaupa rosa flottan jakka og létta kasrmír peysu í Benetton. Reyndi að ota að henni flottum fötum en ef ég vogaði mér það fór hún í baklás...þver neitaði að skoða frekar.
Ég verð að leyfa henni að ráða þessu sjálf. Ef hún vill þetta endilega þá verður það bara að vera svo. Nú þarf ég bara að ná í hárgreiðslumeistarann og athuga hvort hún sé ekki tiltæk í hárgreiðslu daginn stóra
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.1.2008 | 11:47
Sunnudagur til sælu
Á sunnudaginn ákváðum við að skella okkur í smá ljósmyndajeppaleiðangur. Ég vopnuð myndavélinni minni og Stefán á sínum fjalla bíl. Sandra Dís var að fara á tónleika en það var svo gott veður að við fórum á flakk.
Æddum í Bláa lónið til að taka myndir og þurfti ég að skrifa undir samning þess eðlis að ég selji ekki þessar myndir frá mér. Þeir eiga kaupréttinn. Ekkert mál enda bara til gamans gert.
Skunduðum svo í Bláfjöll til að leyfa þessari yngstu að renna sér á sleða. Þegar við komum að Bláfjöllum, sáum við bílaflota sem náði yfir marga kílómetra svo við snérum við og lékum okkur í jaðrinum. Stelpurnar skemmtu sér ágætlega, Stefán skemmti sér við jeppaleiðangurinn og ég skemmti mér við að taka myndir...og allir hamingjusamir
Ég setti inn fullt af myndum inn í albúmið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
22.1.2008 | 08:47
R.I.P
Fór með fartölvuna mína til míns elskulega bróður og bað hann um að finna út hvað væri að. Hann skoðaði tölvuna og kætti mig með því að þetta væri ekki skjárinn, heldur skjákortið. Þá er málið einfalt. Hann ætlar að opna tölvuna og skoða hvernig skjákort er í henni, ég átti svo að fara í dag og kaupa nýtt kort, hann setja það í og VOLLA....alles klar!!!!
Hann skrúfar ca 100 skrúfur úr botninum og víðar úr tölvunni og kemst að innvolsinu og þá fölnaði hann.....skjákortið er sambyggt móðurborðinu sem þýðir nýtt móðurborð....sem þýðir ný vél Hann rétti mér harða diskinn úr henni ásamt geisladrifinu, minniskortinu og sagði að þetta væri það eina sem ég gæti nýtt mér úr vélinni....EF ég gæti nýtt það
Heim fór ég með tölvuna í frumeindum
sorgarkveðja
HHH
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2008 | 10:44
bravó og húrra fyrir öllum þeim sem komu að þessum tónleikum
Þetta eru frábærar fréttir. Dísinni minni var boðið af SKB á þessa tónleika og var hún himin lifandi yfir þessu öllu. Nefndi það í gær þegar hún kom heim að þetta hafði verið frábært og það hafi komið einhver "óperukall" sem söng svo hátt að hún fékk illt í eyrun....!!! Hélt ég yrði ekki eldri, væntanlega var hún að tala um Garðar Thor Cortes
Þetta er mjög þarft málefni því ekki gerir ríkið ráð fyrir því að börn geti veikst og endar það oft með að foreldrar þessara barna eiga nánast ekki salt í grautinn. Því er gott að eiga félagið að sem hjálpar fólki fjárhagslega séð, þegar mest á reynir.
![]() |
Söfnuðu þremur milljónum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.1.2008 | 10:32
Helga hin heppna..................NOT!
Lukkan virðist elta mig á röndum þessa dagana.....eða þannig. Vildi samt að ég ynni lottó vinning
Fartölvan mín bilaði og virtist sem skjárinn hefði andast á honum. Það er mjög óvenjulegt fyrir Toshiba en er þekkt fyrirbæri á nokkrum öðrum merkjum (leyfum þessu að njóta vafans) .
Ég ákvað að leita nótuna uppi af tölvunni því ég man að ég keypti sennilega dýrustu tölvuna á sínum tíma því hún var með svo langri ábyrgð. Vissi að mér veitti ekki af því þar sem ég er svo ótrúlega seinheppin þegar kemur að kaupum hjá mér á rafmagnsvörum.
Ég fann nótuna og sá ég mér til mikillar hamingju að hún var enn í ábyrgð......eða það taldi ég... Hún rann úr ábyrgð 18.janúar 2008......og á föstudaginn var 18. janúar 2008 . Nú til að toppa það, þá var klukkan átta um kvöld svo það var búið að loka verkstæðinu.....og ekki bara það, þá er tölvan keypt í Tæknival og þeir eru löngu farnir á hausinn og BT teknir við og ekki svo víst að þeir taki við ábyrgðinni!
Ég hringi svo í morgun í verkstæðið til að kanna stöðuna og þar sögðu þeir mér að þeir tækju bara VERKSMIÐJUÁBYRGÐINA en ekki Tæknivals ábyrgðina....sem þýðir að tölvan rann úr ábyrgð á föstudaginn en hún er að sjálfsögðu framleidd einhverjum vikum/mánuðum áður en ég kaupi hana svo hún er dottin úr verksmiðjuábyrgð! Ég vildi þá vita hvað kostar að gera við skjáinn....og svarið var einfalt.....
60-80 þúsund
Hann benti mér á að ég gæti reynt að fara í mál við þrotabúið.....yeah right!
Ætla ekki að láta gera við hana fyrir þennan pening.....
Ljóst er, að ég þarf að vinna meira...og meira...og meira....tja...eða reyna að fá kauphækkun!!! (ásamt því að vinna meira) því ég þarf á annarri tölvu að halda.....hver getur verið tölvulaus í dag???? ég bara spyr
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (3.10.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
82 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín