10.5.2007 | 15:10
harðsperrur ættaðar frá helvíti!
ég fór í G.T.S þjálfun í gær með einkaþjálfanum (Gravity Training System). Þetta er svokallað Gravity æfing sem byggist upp á að nota eigin þyngdarafl í allar æfingarnar.....já....ég sagði eigin þyngdarafl!! Þá getið þið ímyndað ykkur hversu erfiðar sumar æfingarnar eru....fyrir mig altso! (og alla þá sem hafa svona mörg grömm umfram að bera)
Þetta eru mjög skemmtilegar æfingar í alla staði og mjög fjölbreyttar. Svo í gærkvöldi fór ég í blak í 2 tíma svo ég fékk vænan skammt af hreyfingu í gær. Þetta þýðir það að ég er undirlögð af harðsperrum svo að ég get mig ekki hreyft nema að finna til í ÖLLUM skrokknum . Úff...spurning um að hægja aðeins á sér og fara bara í bekkina á morgun
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 15:09
Gosh-ver


![]() |
Goshver á bílastæði; Skódi rekinn í gegn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.5.2007 | 20:13
myndir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2007 | 15:12
komin heim í borgar sæluna !





Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2007 | 15:00
Dónaskapur!
Þegar maður fer í búð að versla er nánast undantekningalaust miði eða skilti við kassana þar sem fólk er beðið um að tala ekki í símann á meðan afgreiðslu stendur. Þetta finnst mér bara sjálfsagður hlutur og ég passa mig mjög vel á því að tala ekki í símann á meðan ég er á kassa og ef svo óheppilega vill til að hann hringi þegar ég er á kassa, þá annað hvort þagga ég niður í honum og hringi í viðkomandi þegar ég er búin eða leyfi honum að hringja (ef það heyrist ekki mikið í honum). Ég persónulega þoli ekki fólk sem virðir þetta ekki og er jafnvel gjammandi í símann á meðan afgreiðslu stendur. Eins er þetta þannig að þegar ég er að vinna í Sturtu, þá skil ég símann minn eftir á skrifstofunni, dettur það ekki til hugar að hafahann á nér á meðan ég er að afgreiða. Mér finnst það jafn mikill dónaskapur að tala í símann á meðan ÉG afgreiði fólk eða þegar er að fá afgreiðslu sjálf.
Í hádeginu hentist ég inn í Pennan Hafnarfirði. Ég var með 3 hluti sem ég fór með á kassann. Drengurinn sem afgreiddi mig var svosem ekkert að flýta sér eða var einfaldlega nýlegur starfsmaður þarna en ég sýndi honum þolinmæði og biðlund á meðan hann dundaði sér við að skanna inn þessa hluti sem ég var með. Áður en hann kláraði að afgreiða mig hringir farsíminn hans. Það var meira að segja það há hringin að maður varð bara pirraður að láta símann hringja áfram. Mér til mikillar furðu, tók hann símann úr hulstrinu og svaraði!! Ok. þetta hefði ekki verið mjög mikið tiltökumál nema að því leiti að hann hægði á sínum ferli (sem nóta bene var ekki mjög hraður fyrir) og eitthvað var sambandið lélegt svo hann varð að snúa sér í einhverja hringi og marg kalla halló í símann áður en viðkomandi manneskja í símanum byrjaði að rulla út úr sér efni þess sem hún hringdi útaf. Ég varð svo forviða yfir þessum vinnubrögðum og varð bara mjög móðguð yfir þessu athæfi svo ef ég hefði ekki verði búin að rétta honum kortið mitt (sem ég afhenti honum ÁÐUR en hann svarði símanum), þá hefði ég strunsað út án þess að versla nokkuð!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.5.2007 | 15:09
fnykur


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2007 | 10:38
Stollt af stelpunum OKKAR
Þessari blak-törn lauk í gær. Þetta er búið að vera ofsalega strembið en samt ofsalega skemmtilegt. Maður er innan um svo margar flottar og skemmtilegar konur sem gera þetta svona skemmtilegt líka. Ég er ofsalega sátt við minn hóp sem ég var í, allar svo ljúfar og enginn að skammast ef illa gekk. Ekki komst okkar lið á verðlaunapall en A-liðið OKKAR náði 2.sætinu Ekkert smá flott hjá þeim að ná svona langt en þær spiluðu í 6.deild. B-liðið okkar spilaði í 7.deild og gekk bara ljómandi vel hjá þeim þó svo að þær hafi ekki endað á verðlaunapallinum en þá endaði ein úr liðinu þeirra sem besti blakmaðurinn í deildinni
. Það var frábært en það er kosið um það svo einhver stig hefur stelpan fengið, enda er þetta rosalega flott stelpa.
Herlegheitunum var svo slúttað með balli í Ásgarði í gær. Þar var tjúttað fram á nótt og allir í góðu skapi. Ég hélt heim á leið um 1, var búin að fá nóg þá.....bæði af dansi og "djúsi" svo dagurinn í dag einkennist aðallega af því hvað það er lágskýjað bæði úti og inni!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2007 | 12:42
alveg að verða búið og búin á því!
Síðasti leikurinn er í dag kl 14:40 í Mýrinni. Þetta er orðið alveg ágætt og ágætis törn.
Í gær hittumst við heima hjá einni um kvöldið og elduðum saman. Auðvitað var hellingur skrafað eins og gengur og gerist í hópi kvenna. Við vorum 18 sem mættum í gær um kvöldið og svo um miðnætti þá ætluðu nokkrar......eða bara ansi margar að skella sér og kíkja á lífið í Garðabænum. Öskubuska fór bara heim og var komin heim um miðnætti....eins og hin kvöldin!
Í kvöld er svo lokahófið og verður það haldið í Ásgarði. Ég leyfi mér að efast um að ég verði komin heim um miðnætti!! Þetta flakk á bara svo illa við mig eitthvað það er svo gott að vera heima hjá börnunum og manni, ég er náttúrulega ekki naut fyrir ekki neitt
Nú er bara að skella sér heim úr vinnunni, ná í búningana (sem vonandi eru orðnir þurrir) og skella sér á síðast leikinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
78 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín