2.4.2009 | 22:18
Frænkur og vinkonur
Á þessu heimili er búið að vera stuð....mikið stuð....
Er á kafi í fermingarmyndatökum og svona til ánægju og yndisauka þá smellti ég litlu systur í stúdíóið og vinkonunum Sunnu og Fanney.
Eyddi samt aðfaranótt miðvikudags í vitjun læknis heim og svo deginum inn á barnaspítala. Dísin mín fagra veiktist skyndilega og leist okkur ekkert á blikuna um tíma. Sem betur fer er þetta ekki alvarlegt og hún verður búin að ná sér á strik þegar kemur að páskaeggja áti
Fimmtudagurinn strembin og von á strembinni helgi en það virðist vera þannig að allir sem okkur þekkja hafi komið sér saman um að koma til okkar akkúrat þessa helgi...meira að segja vinkona mín frá Svíþjóð ætlar að koma þessa helgi og eiga með okkur vonandi yndislega helgi. Það er bara gaman að þessu og hlakka bara til að fá allt þetta fólk í heimsókn.
Hér eru svo nokkrar úr stúdíóinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2009 | 11:02
7. ára prinsessa
Skottan mín er 7. ára í dag. Ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða. Mér finnst hún ný búin að vera 2. ára!!
Hún hélt stelpupartý í gær fyrir allar vinkonurnar og inn í þeim hópi var einn drengur....já...EINN drengur....!!!
ótrúlegt hvað honum fannst samt gaman með stelpunum og öllum píkuskrækjunum
Hér er skottan mín komin í brúðarmeyjar kjólinn sinn og svo vinkona hennar sem er líka í sínum brúðarmeyjar kjól....nánast alveg eins kjólar...bara sitt hvort liturinn.
Sjáðu hvað Sunna er flott og snyrtileg...í ULLARSOKKUM!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.3.2009 | 21:19
Á ferð og flugi
Í dag fór ég með klúbbnum "mínum" á rúntinn eins og við gerum alltaf á þriðjudögum. Förum milli kl 10 og 11 af stað á morgnana og komum heim seinnipartinn.
Í dag var förinni heitið á Akranes og svo í Hvalfjörðinn að mynda. Þetta eru ótrúlega skemmtilegar ferðir með hreint út sagt ótrúlega skemmtilegu fólki. Svo ekki skemmir að þarna má finna reynda og þekkta ljósmyndara sem eru svo viljugir að kenna okkur ljóskunum það sem uppá vantar fyrir góðar ljósmyndir...já..og svo eru þetta meirihlutinn strákar..og þeir eru tækjaóðir...og það er ekki sérlega hentugt fyrir Helgu litlu...sem er dálítið fljót að grípa þetta nýjasta og flottasta....sko mér finnst það frábært...en minn ástkær eiginmaður er kannski ekki jafn hrifinn!
hér eru nokkrar myndir en svo er heill hellingur á www.flickr.com/photos/hlinnet
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.3.2009 | 18:45
Nýjasta leikfangið mitt
Hér er nýjasta leikfangið mitt. Hef lengi dreymt um stærra búr en þar sem þau eru ekki beinlínis á lausu þá ákvað ég að sætta mig við örlítið stærra en það sem ég var með. Þetta búr er 270 L og sómir sér bara vel í stofunni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.3.2009 | 22:37
Bikarmót
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.3.2009 | 20:54
Töfrar!
Hér á eftir er að finna sýnishorn af hreinum töfrum sem urðu til á heimili mínu.
Ég og ÓH frænka vorum eins og svo oft áður á flækingi og í eitt skipti í RL-búðinni. Við gengum á milli rekka til að fá hugmynd að stúdíógerð.
Þegar við gengum framhjá einum rekkanum rak ÓH augun í kerruplast á minni gerð af kerrum. Hún tók andköf yfir því og greip einn pakka og sagðist endilega vilja sauma sér regnkápu úr kerruplastinu. Ég horfði á hana agndofa og neitaði að taka þátt í því...til að byrja með. Hún setti upp hvolpa augun og þrjósku svipinn svo ég gaf mig og sagðist ætla að aðstoða hana.
Hún keypti 3 pakka af þessu plasti og heim fórum við að sníða eitt stykki kápu.
Ég var ekki viss hvernig saumavélin myndi höndla svona gúmmí plast en ákvað að láta deigan ekki síga.
Eftir margar umferðir af bölvi og ragni, slatta af geðvonsku kasti, helling af fýlu, heilmörg gleðitár ótal klukkutíma og ótrúlega þolinmæði í okkur frænkunum þá hafðist þetta allt saman og útkoman var bara nokkuð góð.
Dæmi hver sem vill en hér er mín fallega frænka komin í kápuna flottu sem hér eftir verður kölluð Prada kápan hennar ÓH.
Segið svo að þetta sé ekki geranlegt
Fleiri fjölskyldu meðlimir voru svo myndaðir í tilefni áfangans
Bloggar | Breytt 6.3.2009 kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.3.2009 | 00:17
Gleði
Það er svo óendanlega gaman að gleðja þá sem kunna að meta það og gleðjast. Amma og afi eru ein af þeim sem eru svo þakklát þegar við kíkjum í heimsókn.
Fór með yngri dömurnar mínar til ömmu og afa á Hrafnistu og bauð þeim út í bíltúr. Fórum á Snæland þar sem ég ætlaði að bjóða þeim gömlu upp á ís en gamli tók það ekki í mál að ég borgaði og var fljótur að skipa ömmu til að borga.
Tókum rúntinn á höfnina þar sem ég varð að fá að smella myndum af þeim.
Ég vil einnig minna á að það eru nýjar myndir á flickr síðunni minni.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.2.2009 | 12:00
Villtar meyjar
Ég er í klúbbi sem nefnist A-klúbbur áhugaljósmyndara. A-ið stendur fyrir þá sem eru atvinnulausir eða atvinnulitlir. Ég flokkast undir það síðarnefnda.
Einu sinni í viku hittumst við og förum yfir stöðuna, skellum okkur í eitthvað smá ferðalag og tökum myndir og setjum svo árangurinn í grúppu sem við erum búin að stofna. Eins hefur þessi hópur þær hugmyndir að gera "vef-blað" í formi heimasíðu og kynna land og þjóð fyrir útlendingum og hafa flottar myndir inná til að fólk geti skoðað og jafnvel verslað.
Í gær fórum við á Vatnsleysu strönd og með mér í bíl var SÓ vinkona. Við fórum aðeins seinna af stað en hinir en við vissum hvert förinni var heitið svo við höfðum ekki áhyggjur.
Þegar við vorum komnar á Vatnsleysuströndina hringdum við í forsprakkann til að fá nánari lýsingu á því hvar hinir voru. Jú, lýsingin var gefin og átti þetta að vera fyrsta beygja til hægri. Við fórum fyrstu beygju til hægri en fundum hvergi hópinn.
Eftir langa mæðu sáum við hvar þeir voru að keyra til baka og náðum þeim. Þeir hlógu heil ósköp af okkur og sögðu okkur vera villtar meyjar...sem hefði verið rosalega fyndið EF við hefðum fengið RÉTTAR LEIÐBEININGAR HVAR ÞEIR VORU!!! Þeir gleymdu bara einum gatnamótum eða svo!!! Svo er því haldið fram að VIÐ séum LJÓSKUR....held ekki.
hér er svo árangurinn minn úr þessari annars ágætu ferð en það er svo meira á flickr síðunni minni
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
199 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín