7.10.2006 | 14:47
mamma kemur í bæinn bráðum og borgar skuldina mína
var að vinna í dag í www.sturta.is seldi eldri Siglfirðingum sturtu . Bauð þeim svo merktar könnur og gaf þeim líka 3 handklæði með sturtunni sinni (eitt fyrir hvort og eitt til að leggja á gólfið) kappinn varð svo rosalega ánægður að hann smellti á mig koss og faðmlagi . Það er svo frábært þegar fólk er svona þakklátt fyrir það sem það fær
Sandra Dís og Katrín vinkona hennar sváfu heima í nótt. Svo í morgun tilkynntu þær mér að þær ætluðu í Smáralindina og það með strætó . Litla barnið mitt sem aldrei hefur ferðast ein með strætó eða bara með strætó yfir höfuð var alveg hörð á því að fara með strætó. Mér fannst þetta mjög merkilegt framtak hjá stelpunni. Gaf henni 600kr og strætómiða og sagðist ætla að sækja þær í Smáralindina kl 3 þegar ég væri búin að vinna.
Stefán minn er í botnlausri vinnu og fær engan frið fyrir símanum. Þurfti að rjúka út þegar hann var búinn að slafra matnum í sig og kom svo ekki heim aftur fyrr en um 23 og þá var hann svo þreyttur að hann sofnaði í sófanum . Ég skreið þá bara í rumið um miðnætti, náði samt að skola niður einum bjór eða svo áður
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
32 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.