. - Hausmynd

.

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Fokk after mí!

Ég fór á leiksýninguna með Ladda, 6-tugur. Frábær sýning, þar komu fram allar persónurnar hans Ladda ásamt Ladda sjálfum. Ég dáðist að því hvað hann var fljótur að skipta um gervi. Við hjónaleysin fórum með Viktoríu á sýninguna, sátum á fremsta bekk nánast í miðju og vorum með allar persónurnar beint í æð LoL

Ég hef nú oft verið talin algjör ljóska en ég viðurkenni það bara, ég ER ljóska og ekkert við því að gera nema að ljóskuhátturinn náði held ég hámarki þegar ein persónan kom fram á sviðið. Karakterinn var semsagt Guide, hann var með "hóp" útlendinga sem hann var að draga á fornfrægar söguslóðir. Þessi "hópur" útlendinga átti að fara þessa leið á hestum. Guide-inn blandaði mjög skemmtilega saman íslensku og ensku og það var mjög fróðlegt að hlusta á þetta bull. Guide-inn skellti sér á bak og snéri sér að hinum útlendingunum og sagði svo hátt og skýrt: "fokk after mí" og tölti áfram á sviðinu með 4 útlendinga á eftir sér. Skyndilega snar-stoppaði Guide-inn með þeim afleiðingum að hinir 4 klesstu aftan á hann, við það öskraði Guide-inn: "dónt fokk só klós"!

Ég lít á Viktoríu og Stefán og sá að þau voru um það bil að detta úr stólnum af hlátri, ég náði allavega ekki sambandi við þau á þessu stigi máls en ég bara gat ekki skilið það afhverju þau hlógu svona mikið AKKÚRAT þarna!! Shocking Ég ákvað að halda höfði og spáði ekki meira í Því. Næst fer Guide-inn að tala um sögufrægar slóðir eins og "barbeque Njál". Þá andaðist ég úr hlátri. Fannst þetta skemmtileg þýðing á Brennu-Njálu.

Í hléinu ákvað ég að herða mig upp í það að spyrja Stefán út í það afhverju þetta "fokk after mí" var svona fyndið. Þegar ég bar upp spurninguna, missti bæði Viktoría og Stefán sig gjörsamlega úr hlátri Frown. Ég fékk svo útskýringuna þegar þau voru búin að jafna sig á ljóskunni. Auðvitað var þetta "ríðið á eftir mér"....þau voru jú á hestum!! LoL

Ljóska ársins 2007 segir að Laddi 6-tugur sé alveg peninganna virði að sjá Wink


montin

já, ég er sko montin að segja frá því að einn af leikmönnum KR-liðsins er einkaþjálfinn minn Grin
mbl.is Einar: „Körfuboltinn hefur færst upp á annað stig”
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

allt er gott í hófi....og samkvæmi

Ég fór í opnunarpartý hjá Bræðrunum Ormsson á föstudagskvöldið. Vinnuveitandi er aðal innanhúsarkitektinn hjá þeim og ég og Anna teiknuðum svo innréttingarnar. Þetta var allt saman ljómandi fínt og flott og mjög vel heppnað. Þeir veittu líka vel í þessari veislu og sökum heilsuleysis á laugardeginum var ég ekkert að blogga neitt sérlega... Whistling

Það stöðvaði mig ekkert í því að fara og keppa í blaki á Selfossi á laugardagsmorgun. Ég hefði alveg vilja hafa þessa keppni aðeins síðar um morgunin en við þurftum að leggja af stað frá Álftanesinu rétt uppúr átta. Ég harkaði þetta af mér, enda kom ég mér SJÁLF í þetta skjálfskaparvíti. Sick

Við spiluðum í þriðju deild og enduðum í sjöunda sæti....af tíu...svo það sé á tæru Tounge. Það verður spennandi að fara á öldung, við erum enn að slípa okkur saman í okkar liði enda eru 2 splunku nýjar í liðinu sem aldrei hafa komið við blakbolta áður svo þetta verður ekkert annað en fjör Wink


Ég hef komist að einu....

það er að ég hef ENGAN tíma Shocking. Það er svo mikið um að vera hjá mér þessa dagana að ég hef bara engan tíma!

Í kvöld er æfingaleikur við Stjörnuna í blakinu. Ég mæti þangað að sjálfsögðu, svo á laugardaginn er Kjörísmót á Selfossi sem ég er skráð á líka. Um kvöldið fer ég, Stefán og Viktoría á leiksýninguna með Ladda. Sunnudagsmorgun fer ég á smá fund milli 10-12 og svo æfingaleikur í blaki um kvöldið.

Það er svooo erfitt að vera ég Tounge

Annars fengum við góðar heimsóknir um páskana. Málfríður og Siggi komu með börnin sín tvö í kaffi á laugardeginum. Það var voða gaman að spjalla aðeins við þau. Þau ætluðu svo keyrandi vestur aftur annan í páskum.

Á mánudeginum komu Eyrún og Jobbi með krílin sín tvö. Þau komu með síðbúna afmælisgjöf handa Sunnu, æðisleg náttföt sem hún fór í strax um kvöldið og neitar að leyfa mér að þvo þau Pouty. Sunna var búin að hlakka svo til að fá tvíburana í heimsókn en svo þegar á hólminn var komið fannst henni þau full miklir óvitar ennþá! En hún þver-neitaði að viðurkenna það.Kissing Fannst þau bara sæt....sem þau eru að sjálfsögðu Wink

Við fjölskyldan fórum svo í hjólatúr á páskadag, svona til að viðra liðið aðeins. Sunna hjólaði eins og herforingi og alveg ákveðin í það að nú væri hún nú sko orðin FIMM ÁRA og hún þyrfti ekki nein hjálpardekk á hjólinu. (Maður getur nú verið stór þó svo maður sé ekki nema 103cm á hæð) Hún á frekar lítið hjól en hún er það smá að hún veldur því ekki hjálpardekkjalaus. Sjáum hvað hún verður dugleg í sumar. Smile Við foreldrarnir fundum nú alveg fyrir því að hafa ekki hjólað mjög lengi....allavega treysti ég mér ekki á hjólið daginn eftir....og heldur ekki daginn þar á eftir Pinch. Gjörsamlega komin úr allri æfingu....en ég stefni á að breyta því hratt og örugglega Whistling


samviskan

Gosh hvað hún getur verið stór partu af lífi manns!

Ég keypti mér páskaegg....eins og ég gaf börnunum, ein ríkisstærð á alla, svo fékk ég óvænt egg frá vinnunni, eitthvað sem ég átti alls ekki von á svo ég eignaðist TVÖ egg þessa páskana. Ég held að það hafi ekki komið fyrir síðan ég var 7 ára eða eitthvað álíka.

Einkaþjálfinn minn sagði við mig í síðasta tímanum fyrir páska að ég ætti að fara heim og NJÓTA páskanna. Ekki stíga á vigtina heldur bara að njóta þess að vera til, við tækjum afleiðingunum eftir páska. Mér hlýnaði mikið um hjartarætur við þessi orð og ætlaði svo sannarlega að njóta þess að vera til með fjölskyldunni minni. Á páskadag vaknaði ég hinsvegar upp við skríkina í krökkunum við að finna eggin sín og þá rifjaðist upp draumurinn um nóttina. Þetta var hálfgerð martröð um að páskarnir gætu farið illa ef ég passaði mig ekki á súkkulaði átinu. Með þennan draum á bakinu fór ég fram að aðstoða börnin við að opna eggin sín. Ég horfði á Stefán opna sitt egg og byrja að smjatta á því. Ég hugsaði með mér að ég ætlaði fyrst að fá mér hálfan prótein sjeik áður en ég færi í óhollustuna. Ég mixaði mér drykk, settist niður með fjölskyldunni við matarborðið og þegar ég horfði á þau smjatta á sínum eggjum, langði mig ekkert sérstaklega í páskaegg. Ég opnaði hinsvegar minna eggið og las málsháttinn, nartaði eitthvað aðeins í það og pakkaði því svo niður í poka og þar hefur það verið óhreyft síðan.

Mér fannst alveg nóg "svindl" að borða góðan mat bæði á laugardagskvöldið og sunnudagskvöldið að mig langaði bara alls ekki að fá mér meiri óhollustu.

Til að bæta aðeins þessa samvisku, ákvað ég í morgun þegar ég vaknaði að ég færi beina leið á hlaupabrettið í skúrnum og myndi ekki hætta á því fyrr en treyjan yrði það blaut af svita að það væri farið að leka af henni líka. Ég stóð við það, fór á brettið og skokkaði nokkra kílómetra, skellti mér svo í yndislega sturtu og fór og hrærði mér morgunmat.

Mér er búið að ganga allt of vel til þess að eyðileggja prógrammið sem ég hef verið í undan farna 2 mánuði.

Ætli það endi ekki þannig að ég geymi eggin, brýt þau svo niður í mola og býð gestum og gangandi upp á kaffi og súkkulaði með Wink


tónleikar - afmælisgjöf

Ég er búin að fá eina afmælisgjöf.....ég á ekki afmæli fyrr en 15. maí og ég fæ heldur ekki að nota afmælisgjöfina fyrr en þá....enda ekki annað hægt. Þetta er nefnilega tónleikar á Josh Groban sem haldið verður 15. maí. Grin Ég fékk meira að segja miða á besta stað, eða á 4 bekk í sal (fremst við sviðið) og nánast algjörlega í miðjunni Cool. Gosh....hlakka ég til eða hlakka ég til?! Stefán minn ætlar að koma með mér.....tók ekki annað í mál...enda er það bara frábært. Smile

ég hef komist að einu....

að þessi Kitchen Aid blandari er sko hverrar krónu virði Grin. Yndislegt að hann skuli mixa þetta NÁKVÆMLEGA eins og ég vil hafa þetta. Dálítið af kögglum og klippir rúsínurnar í tvennt svo maður bryður þær hæfilega......gosh.....

hvolpar

Við skruppum í gær í heimsókn í Mosfellsbæinn. Þar enduðum við eins og svo oft áður í kaffi, mat og kvöldkaffi! Það voru bara 5 hvolpar eftir af 10 og Viktoría fékk það verkefni að bursta einn hvolpinn og gera hann sætann áður en nýr eigandi tæki við. Hún bað um símann minn að láni til að taka myndir og fyllti símann af myndum....ég er enn að bíða eftir kortinu mínu í símann svo maður geti farið að nota hann almennilega.

Í kvöld ætla þau svo að koma yfir til okkar í mat.

Hér er myndasería með hvolpinum sem fór í gær til nýs eiganda, 8 vikna gamall og alger rúsína....eins og allir hinir Wink

Mynd059
Mynd064
Mynd066
Mynd073

 


bruðl!

Ég fór og bruðlaði aðeins Kissing alltaf gaman að eyða aðeins peningum. Í þetta skiptið keypti ég mér Kitchen Aid blandara og það rauðan. Ég var orðin svo þreytt á þessum gamla sem kom bara brunalykt af ef hann var í gangi í smá tíma og svo var hann ekki nógu duglegur að mixa.

Ég er búin að prufa þennan nýja en það á eftir að koma betri reynsla á hann. Ég ætla rétt að vona að hann hafi verið peninganna virði þessi nýi GetLost nóg kostar þetta!

kitchen aid


páskar!

Það voru heimsspekilegar umræður við matarborðið í kvöld. Sunna var að velta ástinni fyrir sér sem henni fannst taka á sig ýmsar myndir. Svo bað Stefán mig um að skenkja sér í vatnsglasið og lauk setningunni á "elskan". Þá lítur þessi litla upp og spyr: "pabbi, elskar ÞÚ mömmu??". Hann lítur á hana og segir við hana að hann elski mig svo sannarlega. Hún hugsar smá stund og segir þá: "ég líka!". Ég var ekki viss hvert þessar samræður myndu enda, en hún hætti að velta þessu fyrir sér svo.

Seinna um kvöldið var Stefán kallaður út á bakvakt og ég var á leið á blak æfingu og enginn til að passa svo ég býð henni með mér á æfingu gegn því að vera rosalega góð. Hún jánkar öllu og með það förum við svo út. Hún stóð alveg við sitt........þar til undir lokin en þá hvarf hún. Ég var farin að ókyrrast þar sem ég hafði ekki séð hana í einhverjar 2-3 mínútur og fór þá að leita að henni. Þetta var í lok tímans sem þetta var svo ég var svosem ekkert að stinga af frá blakinu. Þegar ég kem fram, sé ég hana koma inn frá sundlauginni. Ég fékk nett sjokk yfir þessu og sérstaklega þar sem ég sá að hún var talsvert blaut. Ég varð ofsalega fegin að sjá hana koma en kraup á hné og tók í hendurnar á henni og benti henni á að nú væri ég sko ofsalega vonsvikin að hún skuli hafa farið út á sundlaugarbakkann. Hún laut höfði og faðmaði mig og sagðist elska mig rosalega mikið. Hvað er hægt að segja þegar þau bræða mann svona? GetLost

Þær systur (yngri) háttuðu sig og tannburstuðu og komu svo og báðu um að fá að gista saman (byrjar snemma!) Ég sagði að þær mættu sofna saman með EINU skilyrði....að það myndi ekki heyrast MÚKK frá þeim. Þær urðu ofsa kátar og hlupu inn í rúmið hennar Söndru Dísar og það heyrðist ekki boffs frá þeim meir. Ég kíkti svo á þær klukkustund síðar og þar sváfu þær eins og litlir englar InLove.

Við mæðgur, Sunna og ég fórum að versla páskaegg á línuna. Auðvitað fengu þær "hæfilega" stórt egg...annað var nú ekki hægt. Ég er ákveðin í að leyfa mér "örlítið" eggjaát um helgina....þó svo að ég sé í aðhaldi er ekki þar með sagt að lífið sé búið! Wink

Mikið afskaplega ætla ég að njóta þess að vera í FRÍI næstu daga, og ofsalega er ég fegin að vera bara heima hjá mér til tilbreytingar. Nú tekur bara slökun við næstu 4-5 dagana. Ekki veitir af að hlaða batteríin smá Joyful ætla samt að baka eitthvað smá ef við skyldum fá einhverjar skemmtilegar heimsóknir um páskana Smile


« Fyrri síða | Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

248 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband