Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007
29.6.2007 | 16:51
Mikið er maður heppinn að vera með báðar fætur á jörðinni
Hvað er að þessu fræga fólki? Heldur að það sé Guð almáttugur og geti bara lagt inn pöntun fyrir því sem það vill og vollah....alles klar! Hvað ætla þau að gera ef þeim fæðast svo tvíbura drengir og annar er fatlaður....ætla þau þá bara að gefa hann....eða hvað!
Heldur vil ég hafa báðar fætur á jörðinni og vera afskaplega þakklát fyrir að eiga þó mín 3 yndisleg börn. Ekki ætlast ég til þess að ef maður kæmi með annað barn að það verði strákur. Ef allt gengur vel, skiptir kynið ekki máli.
Ok, ég veit að ég er pirruð....það verður bara að hafa það. Ég hef þurft að hafa fyrir lífinu svo ég veit að maður fær það ekki bara eftir pöntun allt sem maður vill
Tvíburastrákar efstir á óskalistanum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2007 | 15:18
Grand princess
Grand Princess á Akureyri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2007 | 15:15
Djöfull eru margir feitir hérna á gangi
Undur og stórmerki gerðust í dag. Ég byrjaði á því að fara á sumarhátíð í leikskólanum hjá Sunnu litlu og svo þegar ég ætlaði að fara var það ekki tekið í mál annað en að koma með mér. Ég sagði við hana að hún yrði þá að koma með mér í bæinn og ekkert mehe! Því var lofað.
Við fórum þá niður á Laugaveg þar sem ég þurfti að erinda í tvær verslanir á Laugaveginum. Í þessu blíðskapar-veðri ákvað ég að labba aðeins lengra niður Laugaveginn. Litlu dömunni minni fannst það frekar ósanngjörn meðferð og bað um að snúa við. Ég hugsaði með mér að það væri kannski ekkert meira að sjá í bili svo ég sný við. Um leið og ég sný mér við heyri ég í tviemur mönnum tala saman og heyrist upphátt hjá öðrum þeirra: "djöfull eru margir feitir hérna á gangi". Ég heyri þetta að sjálfsögðu og lít á mennina sem litu ekki í áttina til min. Ég varð ofsalega sár í fyrstu en svo varð ég bara REIÐ. Ég ákvað að virða þessa einstaklinga fyrir mér og sá þá að annar þeirra (sá sem tjáði sig upphátt) að hann var bara alls ekki í kjörþyngd sjálfur og svo ekki bara það heldur hrikalega ófríður í þokkabót. Ég vil nú meina það að af öllu þá eru "effin" þrjú best
FYNDINN, FEITUR OG FALLEGUR
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2007 | 08:11
Kúnstin að meðhöndla fortíðina er að kunna að fyrirgefa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2007 | 22:00
24 dagar í Svíþjóð
Það er orðið svo stutt í brottförina til Svíþjóðar að maður nær þessu ekki.
Ég fer með Viktoríu og fimleikadrottningum til Falun í Svíþjóð 22.júlí. Leikskólinn hjá þessari yngstu er í sumarfríi svo ég tek hana með mér út. Eittnvað á að ferðast, fara í garða, tívolí og eitthvað álíka. Það verður ábyggilega gaman að fara svona út sem fararstjóri. Ég hef alltaf horft á fararstjóra sem aðila sem þekkja til og rata og svoleiðis....en eitt er víst að ég hef ALDREI farið til Svíþjóðar svo ekki verð ég þessi "typical" farastjóri . Eigi síður ætla ég sko svo sannarlega að njóta þess að fara með 30 dömum og sleikja sólina
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2007 | 13:39
dugleg
Umdeildur dugnaðarforkur breiðir úr sér í borginni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.6.2007 | 11:26
Litla ameríka
Ótrúlegt hvað við Íslendingar nálgumst hratt ameríkanana, endalaust að kæra þennan og hinn fyrir það eitt að vera til. Lítur út eins og skjótur gróði að kæra!
Hefði verið nær að biðjast bara velvirðingar og ganga í burtu eins og sannur Víkingur
Slapp við refsingu en þarf að greiða bætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.6.2007 | 08:27
ný Hilton
Paris segist vera orðin dauðleið á djamminu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2007 | 10:38
Heltekin
Ótrúlega sorgleg skrif hjá þessum föður. Alltaf erfitt þegar einstaklingar eru að reyna að koma sér á beinubrautina aftur.
Erfiður þessi gullni meðalvegur
Sjóður vegna átaks gegn eiturlyfjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.6.2007 | 08:28
Grasið grænna hinumeginn við árbakkann
Þrír fangelsaðir í Brasilíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
336 dagar til jóla
Myndaalbúm
Tenglar
áhugavert
skoða þetta
- Flickr.com myndirnar mínar á flickr
- Margrét frænka Athygliverð stelpa
- Eyrún og Jobbi verkfræðingar með meiru
- Ólöf Helga sæta músin mín