. - Hausmynd

.

skemmtilegt stelpuskott

Fórum í mat í gær til kokksins. Að venju klikkar ekki maturinn hjá honum og fengum við agalega góðan mat.

Þegar leið á kvöldið voru þeir félagar (kokkurinn og minn elskulegi) búnir að smakka dálítið af þessu dýrindis koníaki sem hann bauð uppá eftir matinn.

Eitthvað fór minn maður að hafa móral yfir því að vera ekki búinn að þrífa bílinn "minn" og á endanum fór sonur kokksins út og fór að þrífa bílinn.

Honum innan handar var sunnuskott sérlegur aðstoðarmaður og stóð sig með prýði...sér í lagi við að sprauta köldu vatni á kokksson!

það var mikið hlegið og skemmt sér við bílaþvott og tók þessi stutta uppá því að blása framan í sig með loftpressunni. Mér fannst þetta óborganlega fyndið og náði þessu videoi af henni við slíka iðju.

Að sjálfsögðu endaði heilt klapplið á að koma út og hvetja hana til dáða LoL


Komin á flug!

Nú ætlar maður aldeilis að gleypa allan heiminn!!

Búin að vera meira og minna verkjalaus undanfarna daga og ræð mér ekki af kæti. Ákvað að skella mér í prjónana...sjá hvernig það gengi og viti menn...ég virðist geta prjónað án vandkvæða Grin

Sat heila kvöldstund við að reikna út nýja uppskrift af peysu á dömuna mína og eftir heila kvöldstund í útreikninga tókst mér að koma öllu heim og saman og náði að fitja upp.

Ég get ekki annað sagt en að þessi útkoma hafi farið fram úr öllum vonum og get ekki annað sagt en að ég sé ánægð með útkomuna.

Tók nokkrar myndir til að sýnast en ætla að taka góðar myndir þegar vel viðrar og skottan mín tilbúin í myndatöku.

Kaðlapeysa Helgu

.

Kaðlapeysa Helgu

.

Kaðlapeysa Helgu

.

Kaðlapeysa Helgu


Sól og sumar ylur

Óskaplega er þetta búið að vera ljúft undanfarið. Börnin í góðum gír. Framkvæmdagleðinni fer bráðum að ljúka á heimilinu, styttist óðum í að allt fari á sinn framtíðar stað í húsinu.

Fyrsta sinn í að verða tvö ár er ég nánast verkjalaus!!! Geri aðrir betur. Mér líður eins og ég geti gripið allan heiminn í einu :)

Fórum norður til Akureyrar í byrjun júní og þar fórum við að grafreit ömmu í Sunnuhlíð í fyrsta sinn síðan hún lést.

Sunnuskottið mitt vildi sjá um að vökva blómin á leiðinu og þegar við vorum búin að ræða um allt á milli himins og jarðar kvaddi skottan ömmu sína mjög innilega. Þau eru svo hreinskilin þessi grey.

Hlúð að ömmu í Sunnuhlíð
systur

Tók þessar myndir af skottunum mínum fyrir norðan.


Fjögur brúðkaup og jarðaför!

Þannig upplifi ég þetta....búin að fara í fjögur brúðkaup og eina jarðaför hjá nákomnum ættingjum síðastliðið ár.

Var í skemmtilegu og fallegu brúðkaupi í gær hjá frænku minni. Athöfnin var alls ekki áfalla laus og settu litlu grislingarnir þeirra sterkan svip á athöfnina.

Ljósmyndaðist í veislunni og athöfninni fyrir brúðina og hefði svo vilja setja myndir hér inn en vil ekki gera það nema með samþykki þeirra. Þau voru bara svo falleg bæði börnin og hjónin. Kannski fæ ég leyfi til að pósta eins og einni eða tveimur myndum inn. Vil fyrst leyfa brúðhjónunum að skoða myndirnar. Kissing

Rósarskreyting

 

Brúðartertan góða

 

Fallega amma mín

 

Yndislegi afi minn

Ég set samt hér nokkrar sem ég veit að mér er óhætt að pósta hér. Joyful

Annars eru nokkrar myndir sem ég setti inn á flickr síðuna mína. Set inn nokkrar og svo er velkomið að skoða síðuna fyrir þá sem hafa áhuga. Reyndar ekkert merkilegar myndir en góðar minningar. Smile

einhverskonar tré...eða ekki...

 

Liseberg garðurinn

 

Í blóma

 

Blómlegur garður

 

Flottur garður í Gautaborg

Svo er fullt í viðbót á flickr


Ég gaf vitlausum manni blómið!

Þetta fékk ég að heyra frá 7 ára gamalli dóttur minni. Ég vissi ekki um hvað hún var að tala en hún var rosalega miður sín yfir því að hafa gefið vitlausum manni blómið.

Ég ákvað að fá meiri upplýsingar upp úr barninu og spurði hverjum hún ætlaði að gefa blóm. Svarið sem ég fékk var að hún ætlaði að gefa Ása blóm á leiðið. Þegar hún fór að leiðinu stóð hvergi "Ási" heldur eitthvað annað svo hún fór að næsta leiði en þar var heldur enginn "Ási". Hún stóð ráðvillt í smá tíma þar til hún ákvað að taka á sig rögg og hugsa hvað hann Ási okkar hafi heitið í alvörunni og eina nafnið sem hún fann var Ásgeir.

Ásgeir var hvergi að finna á þeim stað sem hún mundi eftir að hafa farið á áður svo hún rölti um kirkjugarðinn að leita af Ásgeiri. Á endanum fann hún einn Ásgeir og lét hann hafa blómin en var ekki viss hvort hún væri með réttan mann eða ekki.

Daginn eftir var þetta enn að þjaka hana svo hún spurði mig hvað hann Ási okkar hafi heitið í alvörunni. Ég svaraði því að hann hafi heitið Ásgrímur og þá runnu á hana tvær grímur og hún stundi þungan og sagðist hafa gefið vitlausum manni blómið.

Ég sagði að þetta væri allt í lagi, við færum bara fljótlega saman og settum blóm hjá Ása okkar.

Er ekki viss hvort hún hafi samt verið sátt við þessa niðurstöðu.


15 ára í einn dag!!!

Ég og Selma vinkona peppuðum hvor aðra í það að fara í Liseberg tívolíið í Gautaborg. Svo var spurningin hvor okkar var meiri hæna svo hvorug okkar gaf sig og á endanum fórum við í ÖLL tækin...líka þau sem fóru nokkra hringi!!!

Hrikalega skemmtum við okkur vel og urðum svo sannarlega 15 ára aftur. Mættum kl 12:30 í tívolíið og fórum heim uppúr kl 20:00 en það var bara vegna þess að við fórum í vatnstækin og urðum öll rennandi blaut. Stefán minn er ekki sami adrenalíns fíkillinn og við en lét sig hafa það að fara með okkur í nokkur tæki sem ekki litu út fyrir að vera mjög hættuleg en þess á milli var hann töskuberi...og hann var meira en sáttur við það Tounge

Þegar heim var komið var tekið til við eldamennsku og svo var fjörinu haldið áfram í Singstar....til 4 um nóttina W00t. Mikið skemmtum við okkur vel.

Í dag verður förinni haldið til Ullared sem er stærsta búð ever í Svíþjóð og að Selmu sögn sú ódýrasta ever!

Stefáni finnst vissara að taka visa kortið af mér.....en ég er bara með annað LoL

Nokkrar myndir tók ég í gær í tívolíinu og hér fá nokkrar að koma.

Selma & Ég

 

Selma & Stefán rennandi blaut

 

Liseberg

 

Liseberg

 

Liseberg


Húsið að verða full klárað

Loksins er maður farinn að sjá fyrir endann á framkvæmdunum á heimilinu. Flísarnar komnar á og húsgögnin komin aftur í hús. Þetta er búið að vera ótrúlega strembinn tími en óskaplega er maður ánægður með útkomuna.

Hér koma svo nokkrar myndir Smile

sjávargata 6266
sjávargata 6263
sjávargata 6259
sjávargata 6258
sjávargata 6249


Vatn verður að víni!!

Ég komst að því að á þessum síðustu og verstu tímum að auðvelt er að breyta vatni í vín!

Ég greip tóma bjórdós sem var á eldhúsborðinu og skolaði hana vel og vandlega og notaði hana til að vökva blómin mín. (sem eru ekkert óskaplega mörg...en þau sem eru þurfa jú vatn)

Ég var búin að vökva eitt blómið þegar ég lagði bjórdolluna frá mér til þess að hagræða að næsta blómi. Því næst gríp ég aftur bjórdolluna til að vökva en þegar ég helli þá kemur bara bjór! W00t Ég tók ekki strax eftir þessu en um leið og ég átta mig á mistökunum hætti ég snarlega að sjússa blómið og greip rétta bjórdós Joyful

Ég var með afmælisveislu um helgina....eða réttara sagt ég átti afmæli og ætlaði ekki að bjóða neinum en minn elskulegi maður tók þetta í sínar hendur og bauð fullt af fólki án þess að segja mér neitt sérstaklega frá því og kom mér því á óvart.

Auðvitað sá hann til þess að það yrði nóg af bakkelsi og fékk "kokkinn" til að smyrja "nokkrar" snittur.

Allt heppnaðist þetta ljómandi vel og var ég al-sæl með þessa óvæntu veislu.

Hér koma svo nokkrar myndir úr veislunni.

Ólöf og kærastinn

Fallega frænkan og kærastinn hennar

 

Örverpið mitt

Litla skottið mitt

 

Litla sys

Guðrún Alda litla systir...algjör skvísa

 

Amman

 Föðuramma mín

 

Móðirin

Móðir mín

 

Frænkurnar

Frænkurnar (og vinkonur mínar)

 

Stefán & Kokkurinn

Stefán og "Kokkurinn" í góðum gír


« Fyrri síða | Næsta síða »

hin fagra

Helga Linnet
Helga Linnet

sú eina sanna

Slakaðu á og njóttu lífsins, þú munt aldrei lifa þennan dag aftur

Smelltu á þetta...

vinsældarlistinn

smá könnun

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 260456

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

200 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband